Morgunblaðið - 09.09.2011, Page 41
MENNING 41
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. SEPTEMBER 2011
Í gær leit afrakstur samstarfs
hönnuðarins Nicola Formichetti og
CCP dagsins ljós á opnunardegi
New York Fashion Week. Nichola
Formichetti, sem er þekktastur fyr-
ir hönnun sína fyrir og í kringum
poppdrottninguna Lady Gaga og
listræna stjórnun fyrir franska
tískuhúsið Mugler, vinnur nú með
CCP að sýningu þar sem notast er
við Carbon-tækni CCP og umhverfi
tölvuleiksins EVE Online til að end-
urskapa og bjóða hönnun Form-
ichetti velkomna í nýjan stafrænan
heim. Með samstarfinu er hátíska á
sviði fatahönnunar sýnd við nýjar
aðstæður. Sýningin er gagnvirk,
þar sem gestir geta með hjálp
spjaldtölvu haft áhrif á hvernig
þeir upplifa hönnun Formichetti,
þar sem fatnaður hans er sýndur af
eftirmynd módelsins Rick Genest á
stafrænni sýningarbraut sýnd-
arheims EVE Online. Rick, sem
einnig gengur undir nafninu Zom-
bie Boy, hefur afar sérstakt útlit og
er þakin húðflúrum, nú bæði í raun-
heimi og sýndarheimi. Samstarfið
hefur þegar vakið athygli í New
York Times og á CNN.
Skrautlegur Rick Genest.
CCP vinnur
með Nicola
Formichetti
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
Ungverski kvikmyndaleikstjórinn
Béla Tarr hlýtur heiðursverðlaun
RIFF 2011 fyrir ævistarf í þágu
kvikmyndalistarinnar. Þetta var
kynnt á blaðamannafundi Alþjóð-
legrar kvikmyndahátíðar í Reykja-
vík (RIFF) sem haldinn var í gær í
nýjum húsakynnum hátíðarinnar
við Tjörnina. „Hann er ekki mjög
kunnur almenningi, en hefur samt
sem áður getið sér mjög gott orð í
evrópskri kvikmyndagerð og er af
mörgum talinn einn sá besti í
bransanum fyrir sinn sérstaka stíl,“
sagði Hrönn Marinósdóttir, stjórn-
andi RIFF. Þrjár af myndum Tarr
verða sýndar á hátíðinni, þar á
meðal hans síðasta mynd, Hest-
urinn í Tórínó, en Tarr lýsti því ný-
verið yfir að hann væri hættur
kvikmyndagerð.
Myndir frá 30 löndum
Kvikmyndahátíðin, sem nú er
haldin í áttunda skiptið, fer fram
dagana 22. september til 2. október.
Í ár verða sýndar ríflega 100 kvik-
myndir í 12 flokkum, en alls koma
myndirnar frá 30 löndum. Sem fyrr
verður heimildarmyndum gert hátt
undir höfði í dagskránni. Aðspurð
sagði Hrönn að um 25 þúsund gest-
ir hefðu skilað sér á hátíðina í fyrra
og reiknar hún fastlega með svip-
uðum fjölda gesta í ár. Segir hún
gaman að skynja gagnkvæman
áhuga samfélagsins og hátíðarinnar.
„Samfélagið hefur áhuga á hátíðinni
og kvikmyndahátíðin hefur áhuga á
samfélaginu, því þarna erum við að
sýna myndir sem fjalla um það sem
skiptir fólk máli,“ sagði Hrönn og
tók fram að um 70% mynda hátíð-
arinnar kæmu frá Evrópu.
Mikil hagsbót fyrir íslenska
kvikmyndamenningu
Á fundinum voru kynntar þær
myndir sem keppa um Gyllta lund-
ann í flokki sem nefnist Vitranir, en
mynd Rúnars Rúnarssonar, Eld-
fjall, er fyrst íslenskra mynda til að
keppa í þessum flokki. Auk þess
voru kynntir úrvalsflokkarnir Kast-
ljósið og Fyrir opnu hafi, en upplýs-
ingar um allar myndir hátíðarinnar
má finna á vef hátíðarinnar, riff.is.
Þar fer einnig fram forsala á pöss-
um og klippikortum. Sem fyrr verð-
ur upplýsingamiðstöð RIFF í bóka-
verslun Eymundssonar við
Austurstræti. .„Við erum gríðarlega
stolt og ánægð með þetta kvik-
myndaprógramm okkar sem við er-
um að kynna fyrir íslenskum áhorf-
endum eftir hálfan mánuð,“ sagði
Hrönn og tók fram að í hópi leik-
stjóra í ár með nýjar myndir væru
Aki Kaurismaki og Wim Wenders.
„RIFF hefur skilað þúsundum
gesta til landsins, fagfólki í kvik-
myndaiðnaði, fjölmiðlafólki, áhuga-
mönnun og ferðafólki, auk al-
þjóðlegra kvikmyndaverkefna sem
skilað hafa miklum gjaldeyr-
istekjum inn í landið. Með sam-
stilltu átaki má nýta RIFF til mik-
illa hagsbóta fyrir íslenska
kvikmyndamenningu,“ sagði Hrönn.
Myndirnar fjalla um það
sem skiptir fólk máli
Béla Tarr hlýtur heiðursverðlaun RIFF í ár Ríflega 100 kvikmyndir sýndar
Veisla Hrönn Marinósdóttir, stjórnandi RIFF, blæs til kvikmyndaveislu.
Morgunblaðið/Kristinn
Knús Filmundur, Filmünd Reel, einn einlægasti aðdáandi RIFF, faðmaður
innilega af búningahönnuðinum Dóru Einarsdóttur í gær.
EIN FLOTTASTA
SPENNUHROLLVEKJA ÞESSA ÁRS
MÖGNUÐ
ÞRÍVÍDD
75/100
VARIETY
75/100
SAN FRANCISCO
CHRONICLE
75/100
ENTERTAINMENT
WEEKLY
SÝND Í 3D
EIN BESTA MYND STEVE CARELL
OG RYAN GOSLING TIL ÞESSA
BESTA
MYNDIN Í
SERÍUNNI TIL
ÞESSA
MIÐASALA Á SAMBIO.IS
ALGJÖR SVEPPI kl. 6 - 8 2D L
FRIGHT NIGHT kl. 10:10 3D 16
CRAZY, STUPID, LOVE kl. 8 2D 7
FINAL DESTINATION kl. 10:10 3D 16
BÍLAR 2 Með ísl. tali kl. 6 2D L
/ AKUREYRI
HHHH
-BOX OFFICE MAGAZINE
-ENTERTAINMENT WEEKLY
HHHHH
-VARIETY
HHHH
ALGJÖR SVEPPI kl. 4 - 6 2D L RED CLIFF M. enskum texta kl. 5 2D 14
FRIGHT NIGHT kl. 10:20 3D 16 BAARÍA Með ísl. texta kl. 5 2D 7
CRAZY, STUPID, LOVE kl. 8 2D 7 THE BEAVER Ótextuð kl. 8 2D 12
KVIKMYNDAHÁTÍÐ CASINO JACK Með ísl. texta kl. 8 2D 16
THE TREE OF LIFE Ótextuð kl. 10 2D 10 HESHER Með ísl. texta kl.10 2D 16
/ KRINGLUNNI
ALGJÖR SVEPPI kl. 6 - 8 2D L
FRIGHT NIGHT kl. 10:10 3D 16
PLANET OF THE APES kl. 8 2D 12
BÍLAR 2 Með ísl. tal kl. 5:50 2D L
FRIENDS WITH BENEFITS kl. 10:10 2D 12
/ KEFLAVÍK
HHHH
- J.T - VARIETY
HHHH
- KA, FBL
SÝND Í EGILSHÖLL
SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL, KRINGLUNNI,
AKUREYRI OG SELFOSSI
JENNFIER ANNISTON JASON BATEMAN JAMIE FOXX
JASON SUDEIKIS COLIN FARRELL KEVIN SPACEY CHARLIE DAY
RYAN REYNOLDS
BLAKE LIVELY
MARK STRONG
GEOFFREY RUSH
FRÁÁÁBÆ
R
GAMANM
YND
88/100
- CHICAGO SUN-TIMES
91/100
- ENTERTAINMENT WEEKLY
100/100
- ST.PETERSBURG TIMES
ÞAÐ GETUR VERIÐ ERFITT
AÐ LOSA SIG VIÐ LEIÐINLEGAN
YFIRMANN EN ÞEIR ÆTLA AÐ REYNA...
HHH
M.M.J. - KVIKMYNDIR.COM
á allar sýningar merktar með appelsínuguluSPARBÍÓ 750 kr.
SÝND Í ÁLFABAKKA OG EGILSHÖLLSÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL OG AKUREYRI
SÝND Í EGILSHÖLL SÝND Í EGILSHÖLL SÝND Í ÁLFABAKKA OG SELFOSSI