Morgunblaðið - 09.09.2011, Síða 44
FÖSTUDAGUR 9. SEPTEMBER 252. DAGUR ÁRSINS 2011
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 399 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 2550
1. Ömurlegt að vera einstæð móðir
2. Leynimakk með Magma Energy
3. Sneru við á Víkurskarði
4. Þráinn rekinn úr ræðustól
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Bjúddarinn 2011 er heiti á skemmt-
un sem KF Mjöðm, knattspyrnufélag
skipað frammámönnum í neðan-
jarðarrokki, stendur að. Munu liðs-
menn og aðrir skemmta sér á Faktorý
við undirleik hljómsveita í kvöld.
Fótboltafélagið KF
Mjöðm skemmtir sér
Ge9n er kvik-
mynd um níu
þátttakendur í
pólitískri aðgerð á
pöllum Alþingis 8.
desember 2008.
Myndin verður
frumsýnd í Bíó
Paradís í dag og
verður í sýningum
þar næstu vikur. Leikstjórn og klipp-
ing var í höndum Hauks Más Helga-
sonar sem framleiddi myndina ásamt
Boga Reynissyni.
Heimildarmyndin
Ge9n frumsýnd
Á morgun stendur RVK Under-
ground fyrir eins árs afmælisveislu á
Faktorý þar sem margir af
bestu plötusnúðum Ís-
lands þeyta skífum.
Þeir sem koma fram
eru DJ Margeir, Grét-
ar G, Karíus&Baktus
Impulze, Exos,
Oculus,
Introbeats
og break-
beat.is.
Afmælisveisla RVK
Underground
Á laugardag Norðaustan 8-13 m/s og skýjað með köflum, en 13-
18 og fer að rigna suðaustanlands um kvöldið. Hiti 5 til 12 stig, hlýj-
ast suðvestantil. Á sunnudag Ákveðin norðaustanátt og víða rign-
ing, en úrkomulítið suðvestantil. Fremur hlýtt veður, einkum syðra.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Norðan og norðaustan 8-13 m/s og víða
bjartviðri, en skúrir austanlands. Hiti yfirleitt 6 til 8 stig.
VEÐUR
Yohan Blake, nýbakaður
heimsmeistari í 100 metra
hlaupi, spretti heldur betur
úr spori á Demantamótinu í
Zürich í Sviss í gærkvöldi.
Blake, sem er 21 árs gamall
og frá Jamaíka, kom fyrstur
í mark á 9,82 sekúndum og
setti um leið persónulegt
met í greininni. Asafa Pow-
ell keppti að nýju eftir nokk-
urt hlé og varð að sætta sig
við annað sætið. »1
Blake hafði betur
gegn Powell
„Ég hef oft hugsað til baka og þakkað
guði fyrir að hafa ekki hætt. Það er
alltaf möguleikinn, ef þú heldur
áfram, að eitthvað frábært gerist.
Það er oft ekki auðvelt að halda
áfram en efinn er líklega verri,“ segir
Hannes Þór Hall-
dórsson, mark-
vörður KR og ís-
lenska
landsliðsins, í
viðtali en
hann var
kominn að
því að hætta
knatt-
spyrnuiðkun
fyrir fáeinum
árum. »3
Þakkar guði fyrir að
hafa ekki hætt
„Ég fór í aðgerð þar sem fjarlægður
var stór hluti úr efsta rifbeininu. Það
var opnað í kringum brjóstvöðvann
og tekinn stór hluti af rifbeininu. Það
var það sem olli þessu og pressaði á
æð í öxlinni sem orsakaði blóðtapp-
ann,“ segir Geir Guðmundsson, hand-
knattleiksmaður með Akureyri hand-
boltafélagi, sem mætir til leiks á
komandi leiktíð. »2
Hluti úr efsta rifbeini
fjarlægður úr Geir
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Enn fæðir kría unga sína í Grímsey,
þótt um þriðjungur sé af september,
en vafamál er hvort þeir dafna nægj-
anlega til þess að hafa kraft til að
fljúga suður á bóginn. Lífslíkur
þeirra eru því ekki miklar, að sögn
Freydísar Vigfúsdóttur, dokt-
orsnema í dýravistfræði.
Fyrir um þremur vikum hélt krían
áleiðis til Suðurskautslands, þar sem
hún hefur vetursetu, eftir vægast
sagt slæmt varp í sumar. Mælingar
sýna að krían stendur vel undir nafni
sem farfugl en hún flýgur um 70.000
km á ári, að sögn Ævars Petersen.
Freydís hefur rannsakað kríuvarp
á Snæfellsnesi síðan 2008 en mældi
einnig kríuvarp á Melrakkasléttu í
sumar. Hún bendir á að varpið á
Snæfellsnesi í ár hafi hafist um mán-
uði seinna en árin 2008-2010 eða upp
úr miðjum júní og ungafæða hafi ver-
ið af skornum skammti. Vörpin hafi
verið gisin og færri egg í hreiðri en á
fyrri árum. Mikill meirihluti unga
hafi drepist úr hor og afar fáir ungar
orðið fleygir.
Viðkomubrestur hefur verið árleg-
ur viðburður frá 2008 og vísbend-
ingar eru um svipaða stöðu árlega frá
2005. Rannsóknir Freydísar hafa
sýnt að um 90% unga í stóru kríu-
vörpunum á Snæfellsnesi hafa drep-
ist og hún er ekki bjartsýn fyrir hönd
unganna í Grímsey. „Lífslíkur unga,
sem verða fleygir í árferði þegar
varpárangur er almennt mjög slakur,
eru líklega mjög litlar,“ segir hún.
Freydís segir að þeir fáu ungar,
sem urðu fleygir á rannsóknarsvæð-
inu á Snæfellsnesi í sumar, hafi flogið
illa á sig komnir út í umhverfi sem
hafi verið lítt fallið til ungauppeldis
og góðs varpárangurs. „Lífslíkur
þeirra eru því ekki miklar,“ segir
hún. Freydís bætir við að unganna í
Grímsey bíði langt og strangt ferða-
lag til Suðurskautslands. Þar sem
meirihluti kríanna hafi þegar hafið
þetta langa farflug sé óvíst hvort
þessir fuglar í Grímsey nái að fylgja
hinum farfuglunum eftir, en árangur
síðbúins fars sem þessa sé ókann-
aður.
Flýgur allt að 70.000 km á ári
Mikill meirihluti kríuunga drapst úr hor og afar fáir ungar urðu fleygir
Lífslíkur unga í Grímsey ekki taldar miklar enda langt ferðalag framundan
Morgunblaðið/Ómar
Lífslíkur Rannsóknir Freydísar hafa sýnt að um 90% unga í kríuvörpum á Snæfellsnesi hafa drepist og hún er ekki bjartsýn fyrir hönd unganna í Grímsey.
Ævar Petersen, fuglafræð-
ingur og sérfræðingur hjá
Náttúrufræðistofnun, segir að
kríustofninn sé mjög sterkur,
þrátt fyrir áföll, og varpstaðir
um 1.500 um allt land. Varp
hafi oft misfarist vegna
slæms veðurs og skorts á æti.
Meðalaldurinn sé 10 til 15 ár
en þær elstu nái vel á fer-
tugsaldurinn. Því sé stofninn
vart í hættu.
Krían langlíf
EINN ALGENGASTI FUGLINN