Morgunblaðið - 16.09.2011, Blaðsíða 35
DAGBÓK 35
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. SEPTEMBER 2011
Sudoku
Frumstig
9 8
2 7 1 3
5 7
8 1 3
7 2 6 9
2 7
6 3 9 5
1 8 2 6
3 5 6
8 3
2 8 9
4 9 7 2
6 4 2 5
2 3
9 4 8
4 6 8 3 5
4 9 3
1 6 7 5
7 4
6 4 7
3 9 1 6
8 1 6 4
1 9 6
3 4
3
3 7 5 2 6 9 1 8 4
4 6 8 5 3 1 7 2 9
1 2 9 7 8 4 5 6 3
7 4 2 6 5 3 9 1 8
5 8 6 9 1 7 3 4 2
9 1 3 4 2 8 6 5 7
8 5 1 3 7 2 4 9 6
6 3 4 8 9 5 2 7 1
2 9 7 1 4 6 8 3 5
8 2 9 3 7 4 5 1 6
6 7 4 5 8 1 3 2 9
5 1 3 9 6 2 8 7 4
3 4 7 6 1 8 9 5 2
1 8 2 4 5 9 6 3 7
9 6 5 7 2 3 4 8 1
7 9 1 8 3 6 2 4 5
4 5 8 2 9 7 1 6 3
2 3 6 1 4 5 7 9 8
3 8 1 7 9 2 5 4 6
4 7 9 6 8 5 2 1 3
5 2 6 3 4 1 7 9 8
6 4 2 1 7 8 9 3 5
7 9 3 5 2 6 4 8 1
8 1 5 9 3 4 6 7 2
2 3 7 8 6 9 1 5 4
1 6 8 4 5 7 3 2 9
9 5 4 2 1 3 8 6 7
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að
gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og
lóðrétt birti einnig tölurnar
1-9 og aldrei má tvítaka
neina tölu í röðinni.
Í dag er föstudagur 16. september,
259. dagur ársins 2011
Orð dagsins: Verðið heldur sjálfir heil-
agir í allri hegðun, eins og sá er heil-
agur, sem yður hefur kallað. (1Pt. 1, 15)
Í dag er Dagur íslenskrar náttúruhaldinn hátíðlegur í fyrsta sinn.
Það rifjar upp draum sem Víkverji
heyrði í Kraká í Póllandi ekki alls fyr-
ir löngu.
x x x
Víkverji gisti á Hótel Panorama,litlu hóteli skammt frá mið-
bænum í Kraká. Þar unnu tvær stúlk-
ur í móttöku frá morgni til kvölds auk
þess sem þær litu eftir morg-
unmatnum og fylltu á bakka eftir
þörfum. Stúlkurnar töluðu ensku og
Víkverji gaf sig á tal við þær. Önnur
þeirra, Urszula Szczesniok, var yfir
sig hrifin þegar í ljós kom að gestirnir
voru íslenskir. „Það sem mér finnst
merkilegt við Ísland er að það eru
fleiri kindur en menn á Íslandi,“ sagði
hún. Þegar hún var innt nánar eftir
þessari vitneskju sagðist hún hafa
valið að gera verkefni um Ísland í há-
skólanum og þá viðað að sér ýmsum
fróðleik um land og þjóð.
x x x
Urszula er frá litlu þorpi um 100km frá Kraká. Eftir að hún lauk
háskólanámi í uppeldisfræði var ekk-
ert starf að fá við kennslu en þar sem
henni bauðst vinna á hótelinu ákvað
hún að taka því enda ekkert annað að
fá. Hún sagðist samt ekkert vera fyr-
ir stórborgarlífið, auk þess sem laun-
in væru lág og allt dýrt í borginni, og
færi því heim í sveitina og náttúruna
þá sjaldan hún ætti frídag.
x x x
Áundanförnum árum hafa margirPólverjar freistað gæfunnar í
útlöndum og meðal annars búa um
9.500 Pólverjar hérlendis. Urszula
þakkar fyrir að hafa vinnu, þó hún sé
ekki á því sviði sem hún hafi menntað
sig til. Samt leiti hugurinn alltaf heim
í náttúruna og sveitina. Náttúran á
Íslandi sé einnig heillandi og þar sem
gera megi ráð fyrir að pólsk börn á
Íslandi þurfi kennslu á móðurmáli
sínu eigi hún sér þann draum að slá
tvær flugur í einu höggi með því að
verða kennari á Íslandi og njóta nátt-
úrunnar í leiðinni. Óvenjulegur en
skemmtilegur pólskur draumur.
víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 kinnhestur, 8
vatnsból, 9 háð, 10 starfs-
grein, 11 vondur, 13 heimsk-
ingjar, 15 drolls, 18 forin, 21
strit, 22 kompa, 23 menn, 24
fer illum orðum um.
Lóðrétt | 2 duglegur, 3 let-
urtákn, 4 minnast á, 5 klauf-
dýrið, 6 mestur hluti, 7 borð-
andi, 12 ýlfur, 14 dreift, 15
poka, 16 mannsnafn, 17
spyrna, 18 á, 19 málmi, 20
galdrakvenndi.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt 1 ramba, 4 fanga, 7 móður, 8 njálg, 9 agg, 11 aurs, 13
hlóð, 14 óvera, 15 stál, 17 lóru, 20 eir, 22 pólar, 23 ímynd, 24
angra, 25 andúð.
Lóðrétt 1 remma, 2 móður, 3 aura, 4 fang, 5 Njáll, 6 augað, 10
gleði, 12 sól, 13 hal, 15 soppa, 16 árleg, 18 ómynd, 19 undin, 20
erfa, 21 rísa.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Nýjasta nýtt. A-NS.
Norður
♠G
♥ÁK98
♦Á102
♣ÁKD109
Vestur Austur
♠972 ♠ÁKD108643
♥D10532 ♥G4
♦K73 ♦--
♣64 ♣853
Suður
♠5
♥76
♦DG98654
♣G72
Suður spilar 6♦.
Hvað gera menn með langan og þétt-
an hálit, en lítið til hliðar? Fyrir svo sem
hálfri öld stakk Terence Reese upp á því
að nota 4♣ og 4♦ sem yfirfærslur með
slíkar hendur. Samuel Stayman kynnti
aðferðina í Bandaríkjunum og kallaði
„Namyats“, sem er „Stayman“ skrifað
afturábak. Á seinni árum hefur færst í
vöxt að nota opnun á 3G í þessum hálita-
tilgangi. Sú sögn sást í úrslitaleik bik-
arkeppninnar. Þröstur Ingimarsson var
í austur og vakti á 3G. Makker hans,
Júlíus Sigurjónsson, tók út í 4♠, viss um
að sá væri liturinn. Var þá komið að
Guðmundi Snorrasyni í norður. Hann
doblaði. Aron Þorfinnsson í suður sagði
5♦ og Guðmundur hækkaði í slemmu.
Tígulkóngur réttur og tólf slagir.
Sama niðurstaða á hinu borðinu, en
þar opnaði austur á „gamaldags“ 4♠.
16. september 1936
Franska hafrannsóknaskipið
Pourquoi pas? strandaði í fár-
viðri við Straumfjörð á Mýr-
um. Alls fórust 38 menn,
þeirra á meðal vísindamað-
urinn og heimskautafarinn dr.
Jean Charcot, en einn komst
lífs af. Minnisvarði var reistur
á strandstaðnum rúmum sex-
tíu árum síðar.
16. september 1959
Mjólkursamsalan hóf sölu á
mjólk og rjóma í hyrnum.
Pappaumbúðir leystu þar með
glerflöskur af hólmi. Blöðin
sáu ástæðu til að birta leið-
beiningar um hvernig ætti að
opna umbúðirnar.
16. september 2007
Gamanþáttaröðin Næt-
urvaktin hóf göngu sína á Stöð
2. Í aðalhlutverkum voru Jón
Gnarr og Pétur Jóhann Sig-
fússon. Þættirnir voru tólf og
nutu mikilla vinsælda.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson
Þetta gerðist…
„Ég verð að störfum á göngudeildinni og við erum
síðan boðin í mat til sonar okkar, Agnars, um
kvöldið,“ segir Helgi Þ. Valdimarsson, fv. prófess-
or í ónæmisfræðum við Háskóla Íslands, spurður
hvernig hann muni halda upp á 75 ára afmælið í
dag. Eiginkona hans, Guðrún Agnarsdóttir, fv.
forstjóri Krabbameinsfélagsins, varð sjötug fyrr á
þessu ári en auk Agnars eru börn þeirra Birna,
sem býr í London, og Kristján Orri, í Edinborg.
Helgi á tvo syni af fyrra hjónabandi, þá Ásgeir
Rúnar, í Stokkhólmi, og Valdimar, sem býr í
Reykjavík. Barnabörnin eru orðin 12 talsins.
Helgi er enn að störfum sem sérfræðingur í ónæmisfræðum. Hann
tekur reglulega á móti sjúklingum á göngudeild Landspítalans við
Hringbraut og vinnur að rannsóknum á ónæmisfræðideild spítalans,
sem hann tók þátt í að byggja upp fyrir um 30 árum. Einnig er hann
að leiðbeina doktorsnemum við læknadeild HÍ og var einmitt að
ganga frá grein eins þeirra til birtingar í alþjóðlegu fagtímariti þegar
Morgunblaðið náði tali af honum í gær. Helgi segist ætla að starfa við
sína sérgrein á meðan starfskrafta hans sé óskað. „Núna ræð ég tíma
mínum sjálfur og þarf til dæmis ekki lengur að sitja misskemmtilega
fundi,“ segir Helgi. bjb@mbl.is
Helgi Þ. Valdimarsson ónæmislæknir 75 ára
Ræður sínum vinnutíma
Nýirborgarar
Vestmanna-
eyjar Elvar
Breki fæddist
25. maí kl. 7.45.
Hann vó 3.920
g og var 53 cm
langur. For-
eldrar hans eru
Símonía Helga-
dóttir og Frið-
berg Egill Sig-
urðsson.
Flóðogfjara
16. september Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur
Reykjavík 2.11 0,5 8.15 3,8 14.26 0,7 20.30 3,6 6.54 19.53
Ísafjörður 4.17 0,4 10.12 2,1 16.33 0,5 22.24 1,9 6.56 20.00
Siglufjörður 0.41 1,3 6.33 0,3 12.47 1,3 18.50 0,3 6.39 19.44
Djúpivogur 5.30 2,1 11.44 0,5 17.39 1,9 23.51 0,5 6.22 19.23
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Gerðu ekkert að vanhugsuðu máli í
viðskiptum. Notaðu innsæi þitt til þess að
stjórna og beina tilfinningunum í þá átt að
skapa betri framtíð.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Þú færð óvænt tækifæri til ferðalaga
eða endurmenntunar fyrir vinnuna. Gleymdu
samt ekki sjálfum þér því þú átt líka við þín
vandamál að stríða.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Tvíburinn kemur mjög miklu í verk,
ekki síst vegna þess að hann neitar að
stoppa. Fólk vill hitta þig og þú vilt hitta það.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Munið að hvatning er betra veg-
arnesti en aðfinnslur. Vel unnin verk afla þér
hins vegar vinsælda. Látið ekki ykkur sjálf
sitja á hakanum.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Hversdagslegir hlutir hafa áhrif á fram-
tíð þína. Hugsaðu þig vel um áður en þú hellir
þér út í samræður við annað fólk.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Reyndu að taka því vel þótt þú verðir
fyrir einhverjum skakkaföllum því þau munu
ekki koma í veg fyrir að þú náir takmarki
þínu.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Þú ert í góðu formi og nýtur þess að vera
til. Það er aldrei of seint að læra og allt nám
kemur þér til aukins þroska.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Ný kynni gætu tekist í dag fyrir
milligöngu fjölskyldunnar. Skoðaðu mál þín á
raunsæjan hátt og þá skilurðu betur viðbrögð
þín og getur breytt þeim.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Það er eitt og annað heima við,
sem þú hefur látið sitja á hakanum. Allir hlut-
ir kosta sitt en það er forgangsröðin sem
skiptir máli.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Þótt allt virðist ganga þér í haginn
skaltu hafa það bak við eyrað hversu fljótt
veður skipast í lofti.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Ljúktu einu af í einu og þetta
reddast. Ef þig endilega langar að láta hlutina
flakka gerðu það þá í einrúmi.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Þú ættir að einbeita þér að heimilinu
og fjölskyldunni í dag. Reyndu að láta fara lít-
ið fyrir þér og bíta á jaxlinn þótt eitthvað
angri þig.
Stjörnuspá
Fyrir fimmtíu árum ákváðu
Randý Sigurðardóttir og Berg-
hreinn Þorsteinsson að eyða ævinni
saman. Þau eiga fimmtíu ára brúð-
kaupsafmæli í dag, 16. september.
Á þessum merku tímamótum ætlar
öll fjölskyldan að hittast og sam-
gleðjast heima hjá þeim.
Gullbrúðkaup
1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bc4 Bc5 4. O-O
Rf6 5. d4 Bxd4 6. Rxd4 Rxd4 7. f4 d6 8.
fxe5 dxe5 9. Bg5 De7 10. Ra3 Hg8 11.
Kh1 Bd7 12. c3 Re6 13. Bxf6 gxf6 14.
Df3 Hg6 15. Rc2 Rg5 16. De2 Re6 17.
Re3 Rf4 18. Df3 O-O-O 19. Had1 Be6
20. Hxd8+ Dxd8 21. Hd1 De8 22. Bf1
Dg8 23. Rf5 Kb8 24. g3 Bxf5 25. exf5
Hg5 26. Bc4 Rh3 27. Df1 Hg4
Staðan kom upp á Stigamóti Tafl-
félagsins Hellis sem var haldið í byrjun
júní síðastliðins. Davíð Kjartansson
(2294) hafði hvítt gegn Jóhanni Helga
Sigurðssyni (2071). 28. Bxf7! og svart-
ur gafst upp. Norðurlandamóti öld-
unga fer senn að ljúka í húsakynnum
Taflfélags Reykjavíkur í Faxafeni 12,
sbr. nánar www.skak.is.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
Hvítur á leik.
Nýbakaðir
foreldrar?
Sendið mynd af
barninu til birtingar
í Morgunblaðinu
Frá forsíðu mbl.is er einfalt að senda
mynd af barninu með upplýsingum
um fæðingarstað, stund, þyngd,
lengd, ásamt nöfnum foreldra. Einnig
má senda tölvupóst á barn@mbl.is