Morgunblaðið - 16.09.2011, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 16.09.2011, Blaðsíða 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. SEPTEMBER 2011 SVIÐSLJÓS Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is Fullkomin óvissa ríkir nú um hvort álver Alcoa muni rísa á Bakka við Húsavík. Í öllu falli er af- ar ólíklegt að það fari í gang á kjörtímabili þess- arar ríkisstjórnar. Hver aðili bendir á annan, þegar rætt er um hvað veldur töfum á verkefn- inu, og heimamenn eru vonsviknir yfir þeirri stöðu sem upp er komin vegna álversins. Þannig telja forráðamenn sveitarfélagsins Norðurþings að stefnubreyting hafi orðið hjá stjórnvöldum og enginn alvöruvilji sé til þess að fá Alcoa á Bakka. Katrín Júlíusdóttir iðnaðar- ráðherra hafnar þessu hins vegar alfarið. Eng- in stefnubreyting hafi orðið en stjórnvöld haldi ekki með neinu fyrirtæki umfram annað. Verið sé að keppa um orkuna á svæðinu og Alcoa þurfi að taka þátt í því á sama grundvelli og önnur. Fram kom í viljayfirlýsingu frá Alcoa í fyrra- dag að fyrirtækið muni nú meta hvaða áhrif það hefur á mögulega fjárfestingu á Bakka að stjórnvöld og Landsvirkjun hafi að undanförnu leitað annarra fjárfestingartækifæra en álvers. Nýjustu fregnir hermi að orkusölumál á Norð- urlandi hafi tekið nýja stefnu. Kom yfirlýsingin í kjölfar þeirra ummæla iðnaðarráðherra á þriðjudag að Alcoa myndi ekki taka ákvörðun um álver á Bakka á næstu árum. Því væri mik- ilvægt að leita annarra tækifæra fyrir atvinnu- uppbyggingu. Hefur kostað 16-17 milljarða „Ég held að það liggi nokkuð ljóst fyrir,“ seg- ir Bergur Elías Ágústsson, bæjarstjóri Norð- urþings, spurður hvort heimamenn líti svo á að stjórnvöld hafi engan áhuga lengur á að fá álver Alcoa á Bakka. „Við erum að sjálfsögðu miður okkar yfir þeirri stöðu sem upp er komin. Við erum búin að vinna að þessu verkefni í fimm ár og enginn smáræðis tími og orka farið í þetta,“ segir Bergur og bendir jafnframt á að unnið hafi ver- ið að Alcoa-verkefninu frá upphafi í samstarfi við stjórnvöld, m.a. með viljayfirlýsingum sem stjórnvöld hafa átt aðild að. Sé það raunin að engin alvara hafi staðið þar á bak við, „þá þykir okkur miður að hafa verið sendir af stað í þetta ferðalag“. Bergir segir fyrstu hindrunina hafa verið þegar verkefnið var sett í sameiginlegt um- hverfismat árið 2008, sem tók tvö og hálft ár en ekki einhverja tíu daga eins og fyrst hafi verið talað um. „Þetta hefur kostað sveitarfélagið Norður- þing ómælda fjármuni sem íbúar mínir þurfa að bera,“ segir Bergur en talið er að samanlagður kostnaður við undirbúning álvers og orkurann- sóknir í Þingeyjarsýslu undanfarin ár sé kom- inn í 16-17 milljarða króna. „Alcoa þarf að fara að svara“ Katrín Júlíusdóttir segist í samtali við Morg- unblaðið ekki hafa sagt neitt annað sl. þriðju- dag en fram hafi komið í máli forráðamanna Al- coa haustið 2008, þegar ný viljayfirlýsing um Bakka var gerð, þ.e. að það stæði ekki til að taka ákvörðun um uppbyggingu á Bakka á næstu árum. Þess vegna hafi ferlið á Bakka verið opnað og þar hafi Alcoa haft forskot á önnur fyrirtæki. „Það þýðir ekkert að benda á okkur í þessu sambandi. Fyrirtækið þarf að fara að svara spurningum sjálft um hvort það ætlar að fara í þessa uppbyggingu eða ekki, það þýðir ekki alltaf að benda á okkur. Ef alþjóðlegt stórfyr- irtæki eins og Alcoa getur ekki staðið í sam- keppni við minni fyrirtæki um að nýta orku á svæðinu þá veit ég ekki hvað skal segja,“ segir Katrín. Hún segist hafa átt fund með yfirmönnum Alcoa í sumar og ekki hafi verið á þeim að heyra að þeir hefðu verið í virkum viðræðum við Landsvirkjun undanfarin misseri um uppbygg- ingu á Bakka. Hún segir enga stefnubreytingu hafa orðið hjá stjórnvöldum núna síðustu dagana. „Ef ein- hver stefnubreyting hefur orðið þá er það helst sú að nú eru menn farnir að tala um hærra verð á orku en áður, af því að það eru aðilar tilbúnir til þess. Sú stefnubreyting kom fram fyrir meira en einu og hálfu ári hjá Landsvirkjun,“ segir Katrín, sem telur það heldur ekki sann- gjarnt hjá forráðamönnum Norðurþings að segja stjórnvöld ekki hafa unnið af fullri alvöru við uppbyggingu álvers á Bakka. „Ég hef stutt þetta verkefni frá fyrstu tíð og geri enn. Ég styð stórfellda uppbyggingu á Bakka en held ekki með einu fyrirtæki umfram önnur. Menn eru að keppa þarna á jafningja- grundvelli og Alcoa á vel að vera í stakk búið til þess að keppa við önnur fyrirtæki um uppbygg- ingu á þessu svæði, ef þeir hafa raunverulegan áhuga,“ segir Katrín. Álver á Bakka komið út af kortinu?  Heimamenn í Norðurþingi telja stjórnvöld engan áhuga hafa á álveri Alcoa Bakki Tölvugerð mynd sem sýnir fyrirhugað álver Alcoa á Bakka við Húsavík. Áformin eru í mikilli óvissu og nýir aðilar hafa jafnframt sýnt svæðinu áhuga. Kristján Þór Júlíusson, þingmaður Sjálfstæð- isflokksins í Norðaust- urkjördæmi, segist taka undir með heimamönnum í Norðurþingi að aldrei hafi verið fullur vilji til þess hjá núverandi ríkisstjórn að ál- ver Alcoa risi á Bakka. Það sé rangt hjá iðnaðarráð- herra að bera áhugaleysi Alcoa á uppbyggingu ál- vers fyrir sig og það hafi verið ástæða þess að stjórnvöld fóru að leita annarra leiða. „Þetta er tilraun til að færa andstöðu íslenskra stjórnvalda við uppbyggingu álvers á Bakka yfir á fyrirtækið sjálft sem alla tíð hefur sýnt þessu áhuga,“ segir Kristján og telur and- stöðuna hafa verið eindregna allan tímann innan VG og sums staðar innan Samfylking- arinnar. „Ég leyfi mér að fullyrða að hluti af stjórnarmyndun Samfylkingar og Vinstri grænna hafi verið sá að koma í veg fyrir upp- byggingu álvers á Bakka. Það er óþarfi hjá stjórnvöldum að koma ábyrgðinni á því á alla aðra en sjálf sig.“ Enginn vilji hjá stjórn- völdum Kristján Þór Júlíusson „Þetta er orðið dálítið eins og með Helguvík, það eru allir að bíða eftir öll- um hinum,“ segir Kristján L. Möller, þingmaður Samfylkingar í Norðaust- urkjördæmi, um þá stöðu sem virðist vera komin upp um álver Alcoa á Bakka. Hann segir stjórn- völd aldrei hafa haft þá stefnu uppi að útiloka Al- coa frá Bakka umfram önnur fyrirtæki. Það sé hins vegar slæmt hve uppbygging fjár- festingarverkefna á Norðausturlandi hafi tafist lengi. Kristján segist aldrei hafa verið hræddur við uppbyggingu álvers á Bakka af ákveðinni stærð. „Það sem hryggir mig er sú vitneskja að álfyrirtæki vilja ekki byggja minna álver en 360 þúsund tonn. Þess vegna sé ég ekki fyr- ir mér að við séum að fara að byggja slíkt álver þarna á næstunni, ef fyrirtækin vilja enga aðra stærð. Svona álver þarf allt að 600 megavött og þar sem við erum rétt að byrja orkuvinnslu þarna þá segja mér sér- fræðingar að það geti tekið 10 til 20 ár að afla 600 megavatta á þessu svæði,“ segir Kristján. „Allir eru að bíða eftir öllum hinum“ Kristján L. Möller Nokkrir aðrir aðilar en Alcoa hafa viljað fjár- festa í stóriðju á Norðausturlandi og sett sig í samband við Landsvirkjun um mögulega orkuöflun. Allir þeir kostir þurfa mun minni orku en álver Alcoa. Nýverið ræddi bæjarstjórn Norðurþings um samstarfsyfirlýsingu við þýska fyrirtækið PCC um byggingu kísilmálmverksmiðju á Bakka. Einnig hefur fyrirtækið Thorsil sótt um lóð á svæðinu undir sambærilega starf- semi í kísiliðnaði en það er á vegum íslenskra og kanadískra aðila. Þá hefur fyrirtækið Car- bon Recycling International, sem er í eigu ís- lenskra og bandarískra aðila, uppi áform um metanólverksmiðju við Kröflu. Finnska fyrir- tækið Kemira hefur sent inn fyrirspurn um matsskyldu vegna mögulegrar natríumkló- rat-verksmiðju á Bakka. Bergur Elías Ágústsson segir sveitarfélag- ið skoða alla áhugaverða kosti en ekkert þessara verkefna sé fast í hendi. Eftir sé t.d. að fara í gegnum matsferli og leyfisveitingar. Kísilmálmur og metanól FLEIRI VERKEFNI ÁFORMUÐ Á NORÐAUSTURLANDI Morgunblaðið/ÞÖK Stóriðja Nokkrir kostir eru til skoðunar. Katrín Júlíusdóttir Bergur Elías Ágústsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.