Morgunblaðið - 16.09.2011, Page 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. SEPTEMBER 2011
SVIÐSLJÓS
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
Fullkomin óvissa ríkir nú um hvort álver Alcoa
muni rísa á Bakka við Húsavík. Í öllu falli er af-
ar ólíklegt að það fari í gang á kjörtímabili þess-
arar ríkisstjórnar. Hver aðili bendir á annan,
þegar rætt er um hvað veldur töfum á verkefn-
inu, og heimamenn eru vonsviknir yfir þeirri
stöðu sem upp er komin vegna álversins.
Þannig telja forráðamenn sveitarfélagsins
Norðurþings að stefnubreyting hafi orðið hjá
stjórnvöldum og enginn alvöruvilji sé til þess að
fá Alcoa á Bakka. Katrín Júlíusdóttir iðnaðar-
ráðherra hafnar þessu hins vegar alfarið. Eng-
in stefnubreyting hafi orðið en stjórnvöld haldi
ekki með neinu fyrirtæki umfram annað. Verið
sé að keppa um orkuna á svæðinu og Alcoa
þurfi að taka þátt í því á sama grundvelli og
önnur.
Fram kom í viljayfirlýsingu frá Alcoa í fyrra-
dag að fyrirtækið muni nú meta hvaða áhrif það
hefur á mögulega fjárfestingu á Bakka að
stjórnvöld og Landsvirkjun hafi að undanförnu
leitað annarra fjárfestingartækifæra en álvers.
Nýjustu fregnir hermi að orkusölumál á Norð-
urlandi hafi tekið nýja stefnu. Kom yfirlýsingin
í kjölfar þeirra ummæla iðnaðarráðherra á
þriðjudag að Alcoa myndi ekki taka ákvörðun
um álver á Bakka á næstu árum. Því væri mik-
ilvægt að leita annarra tækifæra fyrir atvinnu-
uppbyggingu.
Hefur kostað 16-17 milljarða
„Ég held að það liggi nokkuð ljóst fyrir,“ seg-
ir Bergur Elías Ágústsson, bæjarstjóri Norð-
urþings, spurður hvort heimamenn líti svo á að
stjórnvöld hafi engan áhuga lengur á að fá álver
Alcoa á Bakka.
„Við erum að sjálfsögðu miður okkar yfir
þeirri stöðu sem upp er komin. Við erum búin
að vinna að þessu verkefni í fimm ár og enginn
smáræðis tími og orka farið í þetta,“ segir
Bergur og bendir jafnframt á að unnið hafi ver-
ið að Alcoa-verkefninu frá upphafi í samstarfi
við stjórnvöld, m.a. með viljayfirlýsingum sem
stjórnvöld hafa átt aðild að. Sé það raunin að
engin alvara hafi staðið þar á bak við, „þá þykir
okkur miður að hafa verið sendir af stað í þetta
ferðalag“.
Bergir segir fyrstu hindrunina hafa verið
þegar verkefnið var sett í sameiginlegt um-
hverfismat árið 2008, sem tók tvö og hálft ár en
ekki einhverja tíu daga eins og fyrst hafi verið
talað um.
„Þetta hefur kostað sveitarfélagið Norður-
þing ómælda fjármuni sem íbúar mínir þurfa að
bera,“ segir Bergur en talið er að samanlagður
kostnaður við undirbúning álvers og orkurann-
sóknir í Þingeyjarsýslu undanfarin ár sé kom-
inn í 16-17 milljarða króna.
„Alcoa þarf að fara að svara“
Katrín Júlíusdóttir segist í samtali við Morg-
unblaðið ekki hafa sagt neitt annað sl. þriðju-
dag en fram hafi komið í máli forráðamanna Al-
coa haustið 2008, þegar ný viljayfirlýsing um
Bakka var gerð, þ.e. að það stæði ekki til að
taka ákvörðun um uppbyggingu á Bakka á
næstu árum. Þess vegna hafi ferlið á Bakka
verið opnað og þar hafi Alcoa haft forskot á
önnur fyrirtæki.
„Það þýðir ekkert að benda á okkur í þessu
sambandi. Fyrirtækið þarf að fara að svara
spurningum sjálft um hvort það ætlar að fara í
þessa uppbyggingu eða ekki, það þýðir ekki
alltaf að benda á okkur. Ef alþjóðlegt stórfyr-
irtæki eins og Alcoa getur ekki staðið í sam-
keppni við minni fyrirtæki um að nýta orku á
svæðinu þá veit ég ekki hvað skal segja,“ segir
Katrín.
Hún segist hafa átt fund með yfirmönnum
Alcoa í sumar og ekki hafi verið á þeim að heyra
að þeir hefðu verið í virkum viðræðum við
Landsvirkjun undanfarin misseri um uppbygg-
ingu á Bakka.
Hún segir enga stefnubreytingu hafa orðið
hjá stjórnvöldum núna síðustu dagana. „Ef ein-
hver stefnubreyting hefur orðið þá er það helst
sú að nú eru menn farnir að tala um hærra verð
á orku en áður, af því að það eru aðilar tilbúnir
til þess. Sú stefnubreyting kom fram fyrir
meira en einu og hálfu ári hjá Landsvirkjun,“
segir Katrín, sem telur það heldur ekki sann-
gjarnt hjá forráðamönnum Norðurþings að
segja stjórnvöld ekki hafa unnið af fullri alvöru
við uppbyggingu álvers á Bakka.
„Ég hef stutt þetta verkefni frá fyrstu tíð og
geri enn. Ég styð stórfellda uppbyggingu á
Bakka en held ekki með einu fyrirtæki umfram
önnur. Menn eru að keppa þarna á jafningja-
grundvelli og Alcoa á vel að vera í stakk búið til
þess að keppa við önnur fyrirtæki um uppbygg-
ingu á þessu svæði, ef þeir hafa raunverulegan
áhuga,“ segir Katrín.
Álver á Bakka
komið út af kortinu?
Heimamenn í Norðurþingi telja stjórnvöld engan áhuga hafa á álveri Alcoa
Bakki Tölvugerð mynd sem sýnir fyrirhugað álver Alcoa á Bakka við Húsavík. Áformin eru í mikilli óvissu og nýir aðilar hafa jafnframt sýnt svæðinu áhuga.
Kristján Þór Júlíusson,
þingmaður Sjálfstæð-
isflokksins í Norðaust-
urkjördæmi, segist taka
undir með heimamönnum í
Norðurþingi að aldrei hafi
verið fullur vilji til þess hjá
núverandi ríkisstjórn að ál-
ver Alcoa risi á Bakka. Það
sé rangt hjá iðnaðarráð-
herra að bera áhugaleysi
Alcoa á uppbyggingu ál-
vers fyrir sig og það hafi verið ástæða þess að
stjórnvöld fóru að leita annarra leiða. „Þetta
er tilraun til að færa andstöðu íslenskra
stjórnvalda við uppbyggingu álvers á Bakka
yfir á fyrirtækið sjálft sem alla tíð hefur sýnt
þessu áhuga,“ segir Kristján og telur and-
stöðuna hafa verið eindregna allan tímann
innan VG og sums staðar innan Samfylking-
arinnar. „Ég leyfi mér að fullyrða að hluti af
stjórnarmyndun Samfylkingar og Vinstri
grænna hafi verið sá að koma í veg fyrir upp-
byggingu álvers á Bakka. Það er óþarfi hjá
stjórnvöldum að koma ábyrgðinni á því á alla
aðra en sjálf sig.“
Enginn vilji
hjá stjórn-
völdum
Kristján Þór
Júlíusson
„Þetta er orðið dálítið
eins og með Helguvík, það
eru allir að bíða eftir öll-
um hinum,“ segir Kristján
L. Möller, þingmaður
Samfylkingar í Norðaust-
urkjördæmi, um þá stöðu
sem virðist vera komin
upp um álver Alcoa á
Bakka. Hann segir stjórn-
völd aldrei hafa haft þá
stefnu uppi að útiloka Al-
coa frá Bakka umfram önnur fyrirtæki. Það
sé hins vegar slæmt hve uppbygging fjár-
festingarverkefna á Norðausturlandi hafi
tafist lengi. Kristján segist aldrei hafa verið
hræddur við uppbyggingu álvers á Bakka
af ákveðinni stærð.
„Það sem hryggir mig er sú vitneskja að
álfyrirtæki vilja ekki byggja minna álver en
360 þúsund tonn. Þess vegna sé ég ekki fyr-
ir mér að við séum að fara að byggja slíkt
álver þarna á næstunni, ef fyrirtækin vilja
enga aðra stærð. Svona álver þarf allt að
600 megavött og þar sem við erum rétt að
byrja orkuvinnslu þarna þá segja mér sér-
fræðingar að það geti tekið 10 til 20 ár að
afla 600 megavatta á þessu svæði,“ segir
Kristján.
„Allir eru að
bíða eftir
öllum hinum“
Kristján L.
Möller
Nokkrir aðrir aðilar en Alcoa hafa viljað fjár-
festa í stóriðju á Norðausturlandi og sett sig
í samband við Landsvirkjun um mögulega
orkuöflun. Allir þeir kostir þurfa mun minni
orku en álver Alcoa.
Nýverið ræddi bæjarstjórn Norðurþings
um samstarfsyfirlýsingu við þýska fyrirtækið
PCC um byggingu kísilmálmverksmiðju á
Bakka. Einnig hefur fyrirtækið Thorsil sótt
um lóð á svæðinu undir sambærilega starf-
semi í kísiliðnaði en það er á vegum íslenskra
og kanadískra aðila. Þá hefur fyrirtækið Car-
bon Recycling International, sem er í eigu ís-
lenskra og bandarískra aðila, uppi áform um
metanólverksmiðju við Kröflu. Finnska fyrir-
tækið Kemira hefur sent inn fyrirspurn um
matsskyldu vegna mögulegrar natríumkló-
rat-verksmiðju á Bakka.
Bergur Elías Ágústsson segir sveitarfélag-
ið skoða alla áhugaverða kosti en ekkert
þessara verkefna sé fast í hendi. Eftir sé t.d.
að fara í gegnum matsferli og leyfisveitingar.
Kísilmálmur og metanól
FLEIRI VERKEFNI ÁFORMUÐ Á NORÐAUSTURLANDI
Morgunblaðið/ÞÖK
Stóriðja Nokkrir kostir eru til skoðunar.
Katrín
Júlíusdóttir
Bergur Elías
Ágústsson