Líf og list - 01.05.1952, Blaðsíða 16

Líf og list - 01.05.1952, Blaðsíða 16
KVEIKJUR ÚR BÓKMENNTUM LÍF OG LIST byrjar hér á nýjum þætti, seni falið er það hlutverk að rifja upp kveikjur úr bókmenntum, íslenzkum og erlendum, fornum og- nýjum, sem vegrna listræns og sannleiksriks inntaks eiga köllun til allra manna á öllum tím- um. Rétt er að taka fram, til þess að koma í veg fyrir óþarfa misskilning, að það, sem vakir fyrir ritinu, er ekki beinlínis að taka dálkinn Sigurðar Skúlasonar, Þeir vitru sögðu, í Samtíð- inni, sér til fyrirmyndar og birta ólseigar heim- spekikenningar allt frá Plató gamla gríska og niður í íþróttahússhugleiðingar Alexanders há- skólarektors, heldur mun timaritið leitast við að velja í þessa dálka einvörðungu kafla eða brot úr fögrum bókmenntum (skönlitteratúrn- um), kafla, sem sameina lif og list í jöfnum mæli. RITSTJ. SAMDRÁTTUR MANNS OG KONU Haustboð var efnat í Grímstungum ok knattleik- ar. Ingólfr kom til leiks ok margt manna með hon- um neðan ór dalnum. Veðr var gott, ok sátu kon- ur úti ok horfðu á leikinn. Valgerðr Óttarsdóttir sat upp í brekkuna frá ok konur hjá henni. Ingólfr var at leiknum, ok fló knöttrinn upp þangat. Val- gerðr tók knöttinn ok lét koma undir skikkju sína ok bað þann sækja, er kastat hafði. Ingólfr hafði þá kastat. Hann bað þá leika, en hann settist niðr hjá Valgerði ok talaði við hana allan þann dag. (Úr Hallfreðarsögu). ★ HIÐ SANNA UM SIÐGÆÐI BORGARANS — Æskan er stundum hugsunarlaus, ónærgætin, sagði Álfhildur. En heimurinn þarf langan tíma til þess að gera mennina vonda. ... Hvernig gátuð þér hugsað yður, að hann Bjarni minn væri vondur maður ? Hvernig átti hann að losna við hana ? Hann hafði ekki kjark til þess að reka hana út. Hann gat ekki annað en svarað henni einhverju. En allt, sem hann sagði, hlaut að verða henni tilefni til þess að halda samræðunni áfram. Hvernig átti hann að hafa tíma til að skeggræða við allar kerlingar bæjarins út af hverri grein í Ökuþór, sem þeim geðjast ekki vel að ? Hann hálfkenndi í brjósti um hana. Og hann var henni lfka hálfreiður. — Eg hef ekki neitt um það sagt, mælti hann. Ég hef ekki sagt annað en það, sem er satt og á- reiðanlegt. . . . En þó að yður kunni að þykja hart að heyra það, þá er það samt satt, að sonur yðar hefur ekki sem bezt orð á sér. Hann er drykkfelld- ur í meira lagi. Og hann er óvenjulega vondur við brennivín. — Já . . . já . . . sagði Álfhildur seint og hugs- andi, , , , Þér drekkið ekki, Þér eruð ekki í áflog- um. . . . Þér gangið eftir snúrunni, sem mannfélag- ið er að reyna að setja ástríðum mannanna og yfir- sjónum. — Finnst yður það vera ókostur á mér ? — Ég veit ekki. . . . Nei, Líklegast ekki. . . . En ég veit það ekki. Ég er svo fáfróð. Eg veit ekki, hvað er kostur eða ókostur . . . í guðs aug- um. . . . Vitið þér það ? Ritstjórinn svaraði dálítið drýgindalega: — Eg get að minnsta kosti ekki hugsað mér, svona til dæmis að taka, að það sé kostur í hans augum, fremur en annarra, að fylla sig á áfengi og gera sig að svíni. — En að fylla sig á eigingirni ? sagði Álfhildur hægt. Ritstjórinn stóð upp og yppti öxlum óþolinmóð- lega. — Nei, það er fráleitt gott, sagði hann. — En það er einmitt þetta, sem þið teljið aðal- kostinn á mönnunum, sagði Álfhildur, og var nú tekin að lifna. — Hvers vegna talið þér svona ? sagði ritstjórinn hálfreiður. — Af því það er satt: Þið eruð alltaf að drekka ykkur drukkna. £g gæti bezt trúað því, að guði sýnist þið vera að drekka ykkur vitlausa. Sumir drekka líkama sinn fullan í áfengi, eins og hann Bjarni minn. Aðrir drekka sál sína fulla í gróða- löngun og valdafýsn og alls konar heimsku. Og þeir eru taldir sæmdarmenn. Því bólgnari sem sál ykkar verður af drykk eigingirninnar, því betur sem þið standið á verði fyrir hagsmunum sjálfra ykkar, því ótrauðari sem þið eruð að stjaka öðrum mönn- um frá lífsins gæðum, því leiknari sem þið eruð í því að leika á aðra, án þess að á verði haft, því fimlegar sem ykkur tekst að nota aðra, til þess að klifra upp eftir þeim upp í það hásæti, sem sál 1G LÍF og LIST

x

Líf og list

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Líf og list
https://timarit.is/publication/819

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.