Birtingur - 01.04.1955, Qupperneq 16

Birtingur - 01.04.1955, Qupperneq 16
HÖRÐUR ÁGÚSTSSON : Byggingarlist Sálfræðileg áhrif húsforms Hið opna og lokaða í húshlið Það er talað um að beizla orku, vatnsorku, raforku. Hér mætti tala um beiztun rúms. Hús afmarkar rúm, umlykur það, gefur því gildi. Hús er rúm- eining, samsett eða stök. Eins og hljómur eða litur hefur rúmið sérstök sálræn áhrif eftir lögun þess eða stærð. Það má einu gilda hvort við skynjum það að utan eða innan. Tign eða reisn húss er mikið komin undir stærð þess. Hugsum okkur t. d. Keopspýramídann smækkaðan niður í vanalega húshæð. Við myndum að vísu alltaf dást að samræmi í hlutföllum en ægifegurðin væri samstundis flúin. Þar með er ekki sagt að stærðin sé einhlít til að skapa byggingarlist en hún er samt skilyrði fyrir stórfengleik hennar. Þegar hlutfall er jafnt milli hæðar, lengdar og breiddar í húsformi, verða áhrifin einhliða og hversdags- leg, húsið skortir tilbreytni og spennu. Beinum við sjónum inn eftir gotnesku miðskipi höfum við gott dæmi um ráðandi hæð í rúmformi; línur og form beina augum okkar upp á við, slíkt vekur alvörugefni, næstum upphafningu. Ef við hinsvegar stöndum fyrir framan norðurhlið Alþingishússins hér í Reykjavík höfum við gott dæmi um ráðandi breidd. Það er eins og hún veki jarðneskan virðuleik. Aftur á móti er eins og lengd, eða segjum dýpt, veki dul. Sumir vilja halda því fram að hin ýmsu trúarbrögð mannkynsins hafi óafvitandi eða vitandi fært sér í nyt mismunandi áhrif rúmformsins til þess að tákna heimsskoðun sína. Þannig þykjast menn sjá í útgröfnum og óreglu- legum musterum Indlands hliðstæður dulspekilegrar heimsafstöðu, þetta óljósa og fljótandi, þar sem vitund guðs rennur yfir, um og í alla hluti. f grísk- um hofum eru lengd og breidd og hæð í hvað mestu samræmi, enda virðist birtast í grískri heimsskoðun nokkurt jafnvægi milli hins himneska og jarð- neska. Guðirnir byggðu Ólympstind og mennirnir áttu hlutdeild í ríki þeirra. Gotneskt guðshús þykir lýsa vel kristnum viðhorfum, sem voru jarðfjandsam- leg og himinhrópandi. Fleira kemur til greina um sálfræðileg áhrif húsformsins, einkum afstað- an milli hins opna og lokaða í húshliðinni, milli glugga og dyra annarsvegar og veggflatar hinsvegar. Þetta er ekki ólíkt samleik skugga og ljóss í mynd- um. Þegar veggurinn er næstum heill verða áhrifin drungaleg, þyngslaleg, heimsfj andsamleg, samanber fangelsi, virki eða klaustur. Því meira sem vegg- flöturinn opnast, því meira hýrnar yfir húsinu, það verður glaðlegra, tekur þátt í hag umhverfisins. Mörg nútímahús lýsa þessu vel. Hið skynsamlega, 14

x

Birtingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Birtingur
https://timarit.is/publication/823

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.