Birtingur - 01.04.1955, Qupperneq 42

Birtingur - 01.04.1955, Qupperneq 42
það cr aðeins blæbrigðamunur á sömu vitlcysunni. Hvernig eigum við eiginlega að uppræta þennan skclíi- lega ótta við að treysta sjálfum sér, eða erum við þá einskis megnug í dag? Er mönnum þá ekki ennþá ljóst að til er nútímalist, að hún er.í dag okkar list, að hún hæfir bezt þörfum okkar, að það er út í bláinn að ætla sér að stæla eða endurtaka nokkurn hlut, allt er síbreytilegt og í stöðugri framvindu, ekkert getur orðið aftur, sem það var áður? Þetta er lögmál og þetta vita allir, ef þeir hugsa sig um. En því eru þá beztu menn slegnir þvílíkri firru að ætla sér að brjóta gegn skynseminnar lögmáli og reisa kirkju í dag í gamalli stíltegund? Það er fyrirsláttur að það sé eitthvað afsakanlegra að gera slíkt í nafni rómansks stíls en gotnesks. Það er til saga um það frá Ameríku að þeir vildu byggja þar háskóla en voru í ákaflegum vand- ræðum með stílinn, flestir vildu þó víst þann gotneska. Þá datt einum góðum manni það snjallræði í hug að spyrja þá í Oxford í Englandi ráða og þeir í Oxford svöruðu: Hér í Oxford hefur ekki verið byggt í got- neskum stíl síðan á 16. öld. Það er cndalaust hægt að deila um það hvort reisa eigi kirkju, biskupssetur, bónda- bæ, fjós, hesthús og hvað það nú allt heitir, sem til stendur í Skálholti. Ég fyrir mitt leyti teldi nóg að rífa þessar kofaómyndir sem þar standa og slétta vel á eftir, reisa síðan þokkalega steinsúlu, þar sem á væri ritað: Skálholt, fornt biskupssetur. Ef menn hinsvegar vilja endilega reisa, segjum t. d. kirkju, þá á hún auðvitað „að bera samtíðinni vitni“, hún á að bera þeim viðhorfum vitni, sem frumlegust og ferskust cru á þeim degi, scm við erum að skila aftur fyrir okkur. Og þá kemur að því þýðingarmesta á þessu stigi máls- ins: Það nær engri átt að þrír menn, sem ekki hefur spurzt urn að kunni nokkur skil á byggingarlist um- fram meðallag, ákveði svona í hasti hver og hvernig byggja eigi hús, sem á eftir að standa um aldir á forn- um sögustað. Menn hljóta að krefjast þess að samkeppni fari fram um svo þýðingarmikið verkefni. Um fram- komna tillögu er því ekki hægt að ræða að sinni, ekki fyrr en samanburður hefur fengizt við tillögur fleiri húsameistara, sem yfirleitt fá alltof fá tækifæri til að spreita sig á umfangsmiklum verkefnum. Kirkja í Florisant, Missouri, Bandar. Arkitekt: Harris Armstrong St. Anselm kirkjan í Vancouver, Canada Arkitektar Semmens og Simpson 40

x

Birtingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Birtingur
https://timarit.is/publication/823

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.