Húsfreyjan - 01.07.1961, Qupperneq 30
Margrét Jóhannesdóttir:
Meðferð ungbarna
3. þáttur
Hollasta, fyrirhafnarminnsta og ódýr-
asta fæða fyrir ungbarnið er brjóstamjólk-
in. Hún er mátulega heit, auðmelt, laus
við sýkla og óhreinindi, og inniheldur öll
nauðsynleg næringarefni fyrir barnið —
að minnsta kosti fyrstu fjóra mánuðina,
nema hvað barnið þarf að fá lýsi frá hálfs
mánaðar aldrinum. Auk þess hefur
brjóstamjóljk mótefni gegn vissum sjúk-
dómum.
En móðirin þarf að lifa heilsusamlegu
lífi meðan hún hefur barn á brjósti. Hún
þarf að neyta hollrar fæðu og helzt að
taka inn matskeið af þorskalýsi daglega,
forðast óþægilegar geðshræringar, og hafa
eins mikinn svefn og hvíld og hún getur
án þess að vanrækja skyldustörfin. Auk
þess þarf hún að hafa góða gát á, að allt
sé í lagi með brjóstin, láta sér til dæmis
ekki verða kalt, en að öðru leyti fræðast
um meðferð þeirra hjá sinni ljósmóður,
eða þar sem hún elur barnið.
Barnið heimtar oftast mat sinn á 3ja
til fjögurra klukkustunda fresti — eða frá
5—7 máltíðir á sólarhring eftir aldri —
nema á nóttunni, þá líða oft 6 og 8 klukku-
stundir milli mála, og er það vel.
Venjulega er aðeins annað brjóstið gef-
ið í einu. Sé móðirin lausmjólka er bezt
fyrir hana að liggja útaf, og sjá um að
barnið drekki ekki of ört og gleypi sem
minnst loft, því það orsakar verki. Ekki
ætti barnið undir þessum kringumstæð-
um að sjúga lengur en 20 mínútur í einu.
Ef konan er fastmjólka, er bezt fyrir
hana að sitja sem þægilegast í góðum stól
með barn sitt í fanginu, og hafa skemil
undir fótum. Barnið er í þessu tilfelli
heldur lengur að sjúga, en hvorki er gott
fyrir móður eða barn að máltíðin taki
lengri tíma en um það bil hálfa klukku-
stund. Alltaf þarf að láta barnið ropa eftir
að það hefur drukkið, og ef til vill einnig
í miðri máltíð. Móðirin þarf að sjá svo
um, að hún geti haft frið á meðan hún gef-
ur barninu, og hún þarf helzt að vera
ánægð og í góðu skapi, eins og er líka eðli-
legast að hún sé undir þessum kringum-
stæðum.
Oft minnkar mjólkin á vissum tímabil-
um, t. d. fyrst eftir að móðirin fer að sinna
heimilisstörfum aftur, einnig 6 til 7 vik-
um eftir fæðinguna og loks enn eftir að
hún hefur haft barnið á brjósti í þrjá mán-
uði. í öllum þessum tilfellum ætti konan
ekki að gefast upp, heldur að leggja barn-
ið oftar á brjóst en venjulega, eða láta það
sjúga úr báðum i sama skifti. Oftast eykst
mjólkin þá aftur og verður nægileg að
nokkrum dögum liðnum. Við það, að barn-
ið sýgur, örfast mjólkurkirtlarnir til starf-
semi.
Heimboð
í bandaríska sendiráðið
í lok Kvenfélagasambandsþingsins bauð frú
Ann Penfield, kona bandaríska sendiherrans
á ísiandi, öllum þeim fulltrúum til kaffidrykkju,
sem ekki voru við annað bundnar. Rösklega þrjá-
tíu konur þekktust boðið og áttu ánægjulega
stund á heimili hinnar gestrisnu sendiherrafrú-
ar, sem með aðstoð dóttur sinnar, tengdamóður
og eiginkvenna sendiráðsstarfsmanna, veitti gest-
unum hinn bezta beina. Frú Anna Bjarnadóttir í
Reykholti þakkaði móttökurnar fyrir hönd gest-
anna með hlýlegu og virðulegu ávarpi.
Frú Penfield hefur beðið Húsfreyjuna fyrir þakk-
ir til gestanna fyrir fagran blómvönd, sem þær
sendu henni, og fyrir heimsóknina, sem hún seg-
ir hafa veitt sér kærkomið tækifæri til að kynn-
ast íslenzkum konum.
30
II ú s I r e y j u n