Húsfreyjan - 01.04.1962, Side 23
varlega saman við hvíturnar. Hellt í vel-
smurt, eldfast mót. Mótið á að vera með
beinum hliðum. Fyllið mótið aðeins að
að % hluta. Bakað við 175 gr. í 30—40
mínútur. Borðað strax.
1. Fiskbakstur: Bætið 2 dl af soðnum
eða hráum fiski í uppskriftina. Saxið
fiskinn smátt, einnig lítinn lauk. —
Nokkrir dropar af Worchestershire-
sósu bæta bragðið.
2. Spínaíbakstur: Bætið 2 dl af söxuðu
nýju eða hraðfrystu spínati í uppskrift-
ina, einnig litlum, smátt skornum lauk,
14 tsk. salt og 14 tsk. muskat.
3. Ostbakstur: Bætið 250 g af rifnum,
bragðsterkum osti og 14 tsk. papriku
í uppskriftina. Setjið pottinn yfir væg-
an hita og hrærið í, þar til osturinn
er bráðnaður.
4. Kjötbakstur: Bætið 2 dl af söxuðum
kjötafgöngum. 200 g af smátt brytj-
aðri skinku, dálitlu þurru sinnepi og
saxaðri steinselju í uppskriftina.
5. Ost-fiskbakstur: Bætiö 250 g af söx-
uðum, soðnum fiski, 1 msk. af rifn-
um lauk, 2 msk. af rifnum, bragð-
sterkum osti, og salti, pipar og sinn-
epi eftir bragði í uppskriftina.
Sett strax inn í 175° ofn
Notið mót með beinum brúnum. —
Smurt vel.
Sé ætlunin að útbúa eftirrétt, er saltinu
sleppt úr uppskriftinni, en í stað þess
komi 2 msk. af sykri.
1. Aprikósubakstur: Bætið 1 bolla af nið-
urskornum, útbleyttum aprikósum
(eða úr dós), i uppskriftina.
2. Sítrónubakstur: Bætið 3 msk. af press-
uðum sítrónusafa og rifinn börk af 1
sítrónu í uppskriftina. Ef til vill má
einnig auka sykurmagnið dálítið.
3. Appelsínubakstur: Bætið safanum og
rifna berkinum af 1 appelsinu i upp-
skriftina.
Berið þessa ábætisrétti fram með þeytt-
um rjóma.
Sveppabakstur
2 msk. smjör
2 msk. hveiti
2Vz dl heit mjólk
2 msk. rifinn ostur
salt, pipar
Muskat eftir bragði
1 lítill, saxaður lauk
ur
200 g sveppir
2 msk. smjör
4 eggjarauður
5 eggjahvítur
Smjörið brætt í potti. Hveitinu hrært
saman við, látið brúnast dálítið. Mjólk-
inni bætt út í, soðið, hrært stöðugt í á
meðan, þar til sósan er orðin þykk og
Uús f r ey j an
23