Húsfreyjan - 01.04.1964, Page 13
Verið er að undirbúa ferðina á þing
Húsmæðrasambands Norðurlanda, sem
haldið verður í Bodö í Norður-Noregi
í lok júnímánaðar. Munu um 25—30
konur taka þátt í þeirri för og eru þær
fulltrúar félaga og héraðssambanda
víðs vegar af landinu.
Vegna þessa þings, sem aðeins er
haldið f jórða hvert ár, var ákveðið að
formannafundur K.í. yrði að þessu
sinni haldinn dagana 31. ágúst og 1.
sept. í haust. Er það gert til þess, að
hægt sé að taka þar upp þau málefni
sem rædd verða á þingi Húsmæðra-
sambandi Norðurlands og eru þess
eðlis að ástæða þykir að þau séu tekin
til athugunar og umræðu hjá kvenfé-
lögunum.
Orlofsnefndir eru nú að hefja starf
sitt og undirbúa hvíldarvikur fyrir hús-
mæður um land allt. Orlof húsmæðra
er eitt af þeim vinsælu málum, sem
K.I. hefir haft á stefnuskrá sinni, en
fyrir ötula framgöngu milliþinganefnd-
ar K.I. og okkar ágætu Alþingiskonu
frú lögfr. Auðar Auðuns voru samþykkt
lög frá Alþingi um orlof húsmæðra
árið 1960.
Samkvæmt þeim lögum ber héraðs-
samböndum að kjósa orlofsnefndir,
hverju á sínu svæði, en þeim orlofs-
nefndum aftur að snúa sér beint til
félagsmálaráðuneytisins um allar upp-
lýsingar og fyrirgreiðslu, þar sem mál-
ið er ekki lengur í höndum Kvenfélaga-
sambands Islands, heldur ráðuneytis
eins og önnur landslög.
Um leið og ég þakka góðan og gjaf-
mildan vetur óska ég öllum félags-
deildum heilla og hamingju í þeirra
margvíslegu störfum.
LEIÐRÉTTING
Allmeinleg prentvilla slœddist inn í greinina „Á hœttustund“ í síðasta tölublaði
„Húsfreyjunnar“. Þetta er í fremra dálki á 4. bls., 14. línu að neðan. Rétt er máls-
greinin á þessa leið: Ljósin dúu, útvarpið þagnaði o. s. frv.
Nokkrar fleiri prentvillur munu vera hrvði í þessari grein og ef til vill víðar, en
liggja þá svo í augum uppi, að góðfúsir lesarar rnunu afsaka.
HÉSFREYJAN vill vekja atliygli kaupenda á því, að verð árgangsins þetta ár
er 60 krónur. Einnig skal á það bent, aðgjalddagi er 1. júlí.
HÚSPREYJAN
11