Vera - 01.07.1983, Síða 5

Vera - 01.07.1983, Síða 5
Hin konan í mér Þessa stundina finnst mér ótrúlega erfitt að vera kona. Ég held næstum ég vildi miklu frekar vera karl. Ég bara held og held og er aldrei viss. Ég virðist endalaust geta flækt mig í hlutum, sem öðrum finnast einfaldir. Og einhvern veginn finnst mér ég vera á skjön við Kvennaframboðið. Auðvitað vilja allar konur taka þátt í jafnréttisbaráttunni. En það eru bara í mér tvær konur. Annarri þeirra langar bara að vera kona upp á gamla mátann. Tilfinninganæm, stundum barnaleg, stundum ósjálf- bjarga. Vera heima hjá börnunum, hlúa að þeim og eiginmanninum — upp á gamla mátann. Vera alltaf til taks, dekra við þau öll og þá ekki síst eigin- manninn. Elda góðan mat, baka og sauma, jafnvel búa sjálf til sultu og kæfu, þið vitið, eins og mamma gerði. Það er svo hundómerkilegt að kaupa tilbúið úr búð. Málið er það, að það finnst mömmu. Og það sem mamma hefur alið mig uppí í 20 ár, hristi ég ekki af mér si sona. En svo er það hin konan í mér. Hún er gjörsamlega ósammála þeirri fyrri. Því skyldi ég t.d. sauma þegar mér finnst það hundleiðinlegt og er þar að auki klaufsk? Og því skyldi ég búa til kæfu eins og mamma gerði, þegar ég fæ ágæta kæfu úr búð? Því skyldi ég dekra við eiginmanninn, ekki dekrar hann við mig. Því skyldi ég færa honum kaffið, passa að hann fái nógan svefn, passa að kvarta ekki, ofbjóða ekki. Ekkert af þessu plagar hann. Svo er það þetta fár- ánlega samviskubit. Meira að segja þeg- ar ég fer í vinnu, fæ ég samviskubit yfir að skilja hann eftir með börnin. Hvern- ig fer ég að því að finna milliveginn? Er kannski enginn millivegur? Þeir kvennaframboðsfulltrúar, sem ég þekki, eða heyri til í ræðu og riti, virka á mig sem sjálfsöryggið holdi klætt. Og þið gerið mig jafnvel enn ó- öruggari. Þess vegna finnst mér að konur og þá kannski helst heimavinnandi húsmæð- ur ættu að skrifa nokkrar línur. Gefa mér og mínum líkum smá hlutdeild í því hvernig þið upplifið hlutina. Það myndi örugglega hjálpa. Því eg trúi því helst ekki að óreyndu, að ég sé ein um að sveiflast milli þess sem ég er alin upp við að sé rétt og svo hins sem sennilega eftir allt saman er rétt. Með kveðju, Edda. 5

x

Vera

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.