Vera - 01.04.1984, Page 5

Vera - 01.04.1984, Page 5
þaö særir mig þegar kona kallar mig ,,karl- rernbukonu” og uppskafning. Eflaust er ýmislegt viö mig og mín skrif aö athuga og e9 verð aö vera viöbúin því aö saeta gagn- rýni og endurskoða sjálfa mig (þetta gildir um okkur allar). En ég er alveg varnarlaus Qagnvart svo hörkulegum áfellisdómi frá annarri konu og get ekki sætt mig viö hann. Ég væri óheiöarleg ef ég héldi ööru fram. Ég vona að þú virðir það viö mig. Þér aö segja, þá held ég líka aö þú gerir °kkur „gáfaöri” og „meövitaöri” en efni s^anda til. A.m.k. er ég þeirrar skoöunar að viö séum hvorki sérlega gáfaöar né meö- vitaðar ef okkur mistekst eins hrapallega, °9 Þú segir, aö ná til kvenna, sem viö þó svo gjarnan viljum. Gagnrýni þín hlýtur aö vera alvarlegt íhugunarefni fyrir okkur, því vissulega viljum viö ná til sem allra flestra kvenna þó viö gerum okkur engar gyllivon- lr um að allar konur vilji eöa geti, að- stæðna sinna vegna, tekiö þátt í kvenna- baráttu. En svo er margt sinnið sem skinniö, J^fnt meöal kvenna sem karla. Viö gefum ut 6 blöö á ári, 40 síður hvert, og það gefur auga leiö aö viö getum ekki gert svo öllum iiki- Sumir lesenda segja aö þaö vanti meira fræðsluefni í blaöið (sbr. síöasta ^i-). t.d. um kvennapólitík, aörir þar á meðal þú, aö VERA sé bara þurr fræðsla. VeRA reynir aö feta hinn breiða meöalveg en kannski hefur þaö ekki tekist. Okkur til afsökunar höfum viö þaö aö VERA er skrif- uð og gefin út í sjálfboöavinnu, og í slíkri vinnu vill bregöa við aö samhengið og yfir- sýnina vanti. Gagnrýni á blaöiö getur haldiö okkur viö etniö og veitir okkur aöhald. Hún stuðlar aö því að VERA veröi betra blað og meira 1 takt við þarfir lesenda sinna. Meöan 9agnrýnin kemur vitum viö líka að fleirum en okkur er annt um blaöiö og vilja veg Þess sem mestan. Ég þakka þér þvi kær- 'e9a fyrir ýmsar góöar ábendingar og rit- nefndin mun gera sitt besta til að koma til móts viö þær. Kær kveðja, f.h. ritnefndar Sólrún Gísladóttir. SÉRFRA MBOÐ .__ NIÐURLÆGJANDI Kcera Vera. Eg styð hvorki Kvennaframboðið né vennalistann, bœði vegna þess að ég er œgri sinnuð og svo finnst mér þetta sér- 'urnboð ykkar svo niðurlœgjandi fyrir 'onur. Það er eins og þið hafið gefist upp á a berjast við kartana innan flokkanna, og verðið að vera í sér kvennahópum til að þora eitthvað. Ef ég vildi komast í borgarstjórn eða á þing dytti mér aldrei í hug að fara í kvenna- flokk. Einhverntíma las ég í viðtali við kvenna- framboðskonu að stefnan vœri m.a. sá að leggja meiri áherslu á kvennamál eins og dagvistun barna og slíkt. Ekkert mál varðar bara konur, þó að karlarnir hafi reyndar ekki skipt sér svo mikið af þessu þá þarf það ekki að heita kvennamál fyrir því. Ef ykkur finnst eitthvað vanta uppá kvennamálin ykkar þá skuluð þið frekar berjast fyrir úrbótum innan flokkanna. Svo er annað. Mér finnst að konur cettu að tala um eiginkarlinn sinn, frekar en eig- inmann. ,,Maður” þýðir nefnilega bœði karl og kona. Vonandi verður þetta birt, og vonandi fœ ég einhverjar athugasemdir frá ykkur. Áfram konur! Jórunn Valgarðsdóttir Nemandi i 9. bekk grunnskóla Kæra Jórunn. Auðvitað birtum viö bréfiö. Þaö er eitt helsta markmið Veru aö vera opin um- ræðuvettvangur um hugmyndir og aðferð- ir kvenfrelsisbaráttunnar. Og svo kætir þaö okkur alveg sérstaklega þegar ungl- ingar — ekki síst stelpurnar — sýna kvennabaráttunni áhuga og umhugsun. Viö eigum vitanlega dálítið erfitt með aö viðurkenna, að sérframboð kvenna sé „niðurlægjandi.” Engum dytti í hug að kalla t.d. sérframboð verkamanna eða bænda niðurlægjandi. Það þætti liggja í augum uppi, aö þeir hópar heföu sér- hagsmuna aö gæta, nógu margt sameig- inlegt til að geta mótaö sína eigin pólitísku hugmyndafræði og stefnu. Hvers vegna ætti ekki hiö sama aö gilda um okkur kon- ur? Þegar Kvennaframboðið fór í gang, töluðum viö um reynsluheim kvenna og kvenleg viðhorf og uröu þá margir til aö skopast aö þeim hugtökum. Þau hafa hlot- ið nær almenna viöurkenningu síðan. Reynsluheimur kvenna og þau viðhorf, sem hann hefur mótaö, hefur ekki veriö hluti af þeim reynsluheimi, sem mótar stjórnmál. Hugtök á borö við hægri og vinstri hafa þróast í samfélagi, í atvinnu- og efnahagslífi, í þjóðfélagsuppbyggingu, sem konur áttu engan þátt í sem stjórn- endur eöa virkir þátttakendur — þær stóöu þar utan dyra. Þegar við í Kvennaframboö- inu, ákváöum að knýja dyra í stjórnmála- heiminum meö sérframboöi, vildum viö vekja athygli á þessari staðreynd og móta okkur stefnu og hugmyndir á forsendum kvenlegra viðhorfa, ekki þeirra viðhorfa, sem liggja aö baki stefnu flokka, sem karl- ar stofnuöu til og stýra. Getur þetta veriö niðurlægjandi? Gæti ekki veriö aö þaö, aö standa á eigin reynslu og reynslu for- mæöranna, þurfi meira þor en margt ann- aö? Þú talar um aö „berjast viö karlana innanflokkana”. Hvers vegnaskyldum við eyöa dýrmætri orku i þaö í stað þess aö nota orkuna til aö skapa eigin stíl? Þú segir líka: „ef ég vildi komast í borg- arstjórn. . .” Vissulega mun sú eða sá, sem vill komast í borgarstjórn, velja sér þá leiö sem hún/hann telur sér hentugasta. En þetta er bara ekki spurning um eina og eina persónu heldur um hlut kvenna í stjórnmálum og þjóðfélaginu öllu. Kvennaframboðið til borgarstjórnar var tæki til aö vekja athygli á þeim rýra hlut, aðferö í baráttu kvenna fyrir bættri stööu og til aö koma kvenlegum viðhorfum upp á pallboröiö. Hvaö varðar kvennamál, þá erum viö þér alveg sammála um þaö, aö þau mál - ættu aö varöa karla jafnt sem konur. Þau bara gera þaö ekki. (Hvers vegna skrifarðu „kvennamálin ykkar”?) Og á meðan svo er, verðum viö aö gera þau aö okkar mál- um því einhvers staðar veröur sá málstaö- ur að heyrast. Svokölluö kvennamál eru kannski þau mál, sem skipta hvert samfé- lag mestu og meðferð karlanna á þeim til þessa sýnir einungis, hversu skrýtið mat stjórnmálaflokkarnir leggja á hlutina. Þaö er mat, sem þarf að breytast og vonandi munum viö konur hafa þar erindi sem erf- iöi. Þær konur, sem „berjast fyrir úrbótum innan flokkanna” berjast aö þessu leyti á sama sviöi og viö (og mynda sérhópa kvenna innan þeirra flokka í þeim tilgangi) — hugsaöu þér bara hvaöa kraftur gæti hlaupiö í þær breytingar, sem viö berjumst fyrir, ef viö stæöum allar saman og nýttum alla orkuna í þá baráttu, líka þá orku, sem nú fer í að berjast viö karlana innan þeirra flokka! Já, og auövitaö eigum viö aö kalla karla karla og konur konur. Aö síðustu, þakka þér aftur fyrir bréfiö. Athugasemdirnar sem þú vonast eftir gætu orðiö miklu fleiri. Þær kalla á upprifjun á sögu kvenna og kvennahreyfinga og líka á hugmyndafræöi og stefnuskrá bæöi Kvennaframboðs og Kvennalista. Þaö síðasttalda liggur frammi í Kvennahúsinu. Sögunni og viö- horfum kvenna erum við að reyna að gera skil hér í Veru. Áfram konur! Vera 5

x

Vera

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.