Vera - 01.02.1990, Síða 14

Vera - 01.02.1990, Síða 14
menn í verkalýðshreyfingunni um jafnréttismál. 4) Skipuleggja vinnuna á annan hátt t.d. koma á auknum tilflutn- ingi milli starfa. 5) Bjóða konum á vinnumarkaðn- um upp á fullorðinsfræðslu. 6) Gera fleiri störf, sem þarf menntun og færni til að gegna, að hlutavinnustörfum. 7) Jafnari ábyrgð á fjölskyldunni. Þá benti hún lfka á þær aðstæður og þá aðila sem gætu haft áhrif á kynskiptinguna með tilteknum hætti. 1) Skortur á vinnuafli af ,,réttu“ kyni t.d. væri hugsanlegt að kon- um fjölgaði í stétt sjómanna ef karlar fengjust ekki til sjós. Ger- andinn í þessu tilviki eru mark- aðsöflin. 2) ,,Fyrirmyndar“-fyrirtæki þ.e. fyrirtæki sem t.d. einsetja sér að fjölga konum í stjórnunarstöð- um. Gerandi: Stórfyrirtæki t.d. Volvo eða önnur svipuð. 3) Jafnréttisáætlanir sem samið er um. Gerandi: Verkalýðsfélögin og samtök atvinnurekenda. 4) Opinberar reglur eða „þving- anir“. Dæmi: „Affirmative aktion“ (Jákvæð aðgerð) sem samþykkt var í tíð ríkisstjórnar Carters í Bandaríkjunum en Reagan-stjórninni tókst að kippa grundvellinum undan. 5) Opinber umbun fyrir það sem vel er gert eða ,,gulrót“ sem væri nægilega freistandi til að fyrirtæki reyndu að standa sig í jafnréttis- málum. 6) Aukinn félagslegur styrkur og möguleikar kvennasamtaka og -hreyfinga. Drude Dahlerup Að lokum tók Drude fyrir tvær goðsagnir sem vinna gegn konum en konur sjálfar nota gjarnan. í fyrsta lagi er það goðsögnin um að konur raði sér á miklu færri starfsgreinar en karlar, eða eins og stundum hefur verið sagt: „Kon- ur eru í 30 starfsgreinum en karlar Í300.“ Sagði hún aðþetta ætti við lítil rök að styðjast og segði í raun- inni ekkert um starfsval kvenna heldur hitt, að í hefðbundnum karlagreinum er mikil sérhæfing og mörg starfsheiti en færri starfs- heiti og breiðari verksvið í hefð- bundnum kvennagreinum. Hin 1 Auglýsing um fasteignagjöld Lokið er álagningu fasteignagjalda í Reykjavík 1990 og hafa álagningarseðlar verið sendir út ásamt gíróseðlum vegna fyrstu greiðslu gjaldanna. Gjalddagar fasteignagjalda eru 15. janúar, 1. mars og 15. apríl. Gjöldin eru innheimt af Gjaldheimtunni í Reykjavík, en einnig er hægt að greiða gíró- seðlana í næsta banka, sparisjóði eða pósthúsi. Fasteignagjaldadeild Reykjavíkurborgar, Skúlatúni 2, veitir upplýsingar um álagningu gjaldanna, sími 18000. Tekjulágir elli- og örorkulífeyrisþegar hafa fengið lækkun á fasteignaskatti samkvæmt reglum, sem borgarstjórn setur og framtalsnefnd úrskurðar eftir, sbr. 4. mgr. 5. gr. laga nr. 91/1989 um tekjustofna sveitarfélaga. Vegna mistaka við tölvuvinnslu varsama hlut- fallsleg lækkun og ákveðin vará árinu 1989 reiknuð inn á álagningarseðla vegna ársins 1990. f mörgum tilvikum og sennilega flestum mun þessi lækkun reynast rétt. I öðrum tilvikum kunna elli- og örorkulífeyrisþegar að eiga rétt á meiri lækkun gjaldanna, og í örfáum tilvikum minni lækkun. Þegarframtöl hafa verið yfirfarin, sem vænta má að verði í mars- eða aprílmánuði, verður viðkomandi tilkynnt um niðurstöður, ef um breytingu verður að raeða. Borgarstjórinn i Reykjavík, 9. janúar 1990. goðsögnin er sú, að þegar konur komi inn í tiltekna starfsgrein yf- irgefi karlarnir greinina og taki með sér þá virðingu og áhrif sem tengst hafa greininnni fram til þessa. Með öðrum orðum starfs- greinin falli í gengi og áliti. Sagði hún að konur ættu alls ekki að líta á þetta sem einhvers konar nátt- úrulögmál heldur sem eitthvað sem hægt sé að berjast gegn. Drude taldi að sá meginvandi sem við væri að etja væri sá, að vinnumarkaðurinn væri tvískipt- ur. Það væri einn fyrir karla og annar fyrir konur. Konur fá að jafnaði einhæfari störf en karlar, hafa færri möguleika á stöðu- hækkunum og hafa að jafnaði lægri laun en þeir. Þessu þurfi að breyta, annars vegar með því að auka virðingu hefðbundinna kvennastarfa og fá þau meira met- in en nú er, og hins vegar með því að fá konur og karla í öll störf. Þetta vekur auðvitað þá spurn- ingu hvort vinna eigi að því með markvissum hætti að fjölga körl- um í kvennagreinum og veita þeim þar e.t.v. einhvern forgang? Þessari spurningu var ekki svarað á ráðstefnunni og svari nú hver fyrir sig. — isg. SKÝRSLA Lokaskýrsla „Bryt-verkefnis- ins“ er komin út á íslensku og er mjög fróðleg fyrir allt áhugafólk um jafnréttismál, ekki síst kennara og félags- menn í verkalýðshreyfing- unni. í skýrslunni er að finna markmið og niðurstöður verk- efnisins, ýmsar tillögur og stuttar greinar um hvert ein- stakt tilraunaverkefni. Þá er þar yfirlit yfir allar þær skýrsl- ur sem unnar hafa verið á veg- um Bryt-verkefnisins. Skýrsl- una má nálgast með því að skrifa til „Brjótum múrana“, Kaupangi v/Mýrarveg, 600 Akureyri, eða með því að hringja þangað í síma 96-26845. Skýrslunni er dreift ókeypis. 14

x

Vera

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.