Vera - 01.07.1990, Síða 18

Vera - 01.07.1990, Síða 18
starfa Stígamót, miðstöð fyrir konur og börn, sem orðið hafa fyrir kynferðislegu ofbeldi. Fjórir hópar sameinuðust um stofnun Stígamóta, þ.e. Vinnuhópur gegn sifjaspellum, Kvennaráðgjöfin, Barnahópur Kvennaathvarfsins og Ráðgjafarhópur um nauðgun- armál. í Stígamótum er opið frá 10 til 19 og þangað geta konur lei- tað eftir ráðgjöf og stuðnings- viðtölum. Námskeið í sjálfsvörn hefur verið haldið á vegum Stíga- móta, svo og sjálfseflingarnám- skeið fyrir þolendur sifjaspella. í haust er fyrirhugað fræðslunám- skeið um kynferðislegt ofbeldi fyrir fólk sem starfar í barnavernd- arnefndum o.þ.h. úti á landi. Sím- inn á Stígamótum er: 626868. Á hæðinni er auk þess Hatta- gerð Rósa til húsa og tvö önnur herbergi eru til útleigu. Hafa þau verið leigð konum tímabundið til ýmissa verkefna, t.d. hafði Sigríð- ur Dúna Kristmundsdóttir þar að- stöðu í tvö ár meðan hún vann að doktorsritgerð sinni. í risi framhússins er húsvarðar- íbúð þar sem þrír skólanemar ut- an af landi búa og sjá jafnframt um gæslu húsanna og þrif á sam- eign. Þar eru einnig tvö „sérher- bergi“ sem konur hafa fengið vinnuaðstöðu í. Hefur Elísabet Jökulsdóttir rithöfundur skrifað í öðru þeirra í tvö ár. i húsnœöi Stígamóta Að gönguferðinni lokinni tyllt- Ljósmynd: Anna Fjóla Um við Helga ogjóna okkur inn í Englakaffi. „Svona lítur draumur- inn út í dag og enn eigum við ótal drauma um hluti sem gætu átt sér stað hér í Hlaðvarpanum," sögðu þær. „Hvernig væri t.d. að koma á fót kvennaprentsmiðju? Það þarf að endurútgefa margar af þeim ófáanlegu bókum sem komið hafa út eftir konur á þessari öld.“ Ég spyr hvernig hafi tekist að virkja hluthafana og þær segja að mæting á aðalfundi sé mjög léleg. Á síðasta aðalfund mætti t.d. ein kona auk stjórnarinnar! „Það vantar skilning kvenna á því að með því að mæta geta þær haft áhrif og komið á framfæri hugmyndum um nýtingu hús- anna,“ sagði Helga. „Við megurn ekki láta þetta ævintýri fara eins og fór með Kvennaheimilið Hall- veigarstaði á sínum tíma.“ Helga segist ekki gefast upp meðan hún hafi Jónu sem fram- kvæmdastjóra, því hún sé fædd í starfið og takist á einstakan hátt að láta enda ná saman með ráð- deildarsemi sinni. Á sama hátt segist Jóna vera ánægð meðan Helga vilji vera stjórnarformaður, og svo hlæja þær báðar. „Þetta er spurning um úthald, eins og öll kvennabarátta. Kannski eru kon- ur í dag svo stressaðar að þær hafa ekki tíma til að láta sig dreyrna," segja þær. , ,Það var mikið fagnað- arefni að Hlaðvarpinn fékk í fyrsta sinn styrk úr ríkissjóði í ár. Vonandi erum við þá komnar inn á fjárlög og búið að viðurkenna að hér er rekið margvíslegt þjóð- þrifastarf. Þegar við verðum bún- ar að greiða lánin vegna húsa- kaupanna verður hægt að hefjast handa á nýjum verkum og fylla húsin af enn meira lífi. Þá verður gaman að vera til,“ sögðu þær stöllur. Og Vera spyr: Er ekki þörf á að efla Hlaðvarpann enn meir og gera hann að sannkölluðu kvennahúsi? Geta íslenskar konur kannski ekki sameinast um félags- heimili? Fjarar samstaðan út um leið og sameiginlegir sigrar hafa unnist, eins og t.d. Kvennafrídag- ur og forsetakjör? EÞ 1 i Prentvm n= itórt LLri.te’* sem iijMmt smátt Við höfum kaffið og kryddið fyrir sælkera GEVALIA PRENTBERC HF AUDBREKKU 4 200 KOPAVOCI SlMI 45333 .. en auðvitað veist þú það I 18

x

Vera

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.