Vera - 01.07.1990, Page 27

Vera - 01.07.1990, Page 27
Hildur: Við göngum út frá því sem gefnu að konur vilji annars konar fréttir og jafnvel að konur innan fjölmiðlanna meðhöndli fréttir öðruvísi. En er það svo víst? Magdalena: Ég tel engan vafa á því. Þessum svokölluðu mjúku málum er lítill gaumur gefinn því þau eru fjær reynsluheimi karla. Nærtæk dæmi núna eru tækni- frjóvgun, fæðingarorlof, dagvist- armál og önnur slík sem beinlínis varða konur. Ég held tvímæla- laust að kvenfréttamenn séu mun tilbúnari til að fara og tala við konur í fiskvinnslunni heldur en stöðugt að kippa formanni LÍÚ í viðtal. Sigrún: Ég held að margir karlar hafi ekki síður áhuga á þessum mjúku málum. Ég er reyndar mjög mikið á móti því að nota þetta samnefni — mjúk mál — því þá er eins og búið sé að ákveða að þau séu ekki alvöru- mál. Karlar þora síður að hafa frumkvæði að því að taka þau upp en liafa vissulega áhuga á þeim. Hildur: Það er ríkjandi mjög afdráttarlaus skipting í viðmæl- endahópi fjölmiðlanna. Þegar mál eins og kynferðisofbeldi er til umfjöllunar er oft eingöngu talað við konur. Það er mál sem tilheyr- ir kvennadeildinni, ef svo mætti að orði komast. Tökum við ekki þátt í að viðhalda þessari skipt- ingu, hvort sem hún er réttmæt eða ekki? Magdalcna: Sum mál snerta konur meira og beinna en karla og við eigum ekkert að fela það. Og það er jafn ljóst að vinnu- markaðurinn er næstum algerlega kynskiptur hvort sem okkur líkar það betur eða verr. Aðstöðumun- ur þegar kemur að virkri þátttöku í félagsmálum, í atvinnuiífinu eða stjórnmálum er líka mjög kyn- bundinn. Það leiðir til þess að munur er á hagsmunum og sjón- arhorni kynjanna. Engan jiarf að undra að karlar innan fjölmiðl- anna eigi erfitt með að setja sig í spor kvenna. En mestu skiptir fyrir blaða- og fréttamenn að þeir staldri við og rýni betur í inntak fréttanna í stað þess að skila þeim ómeltum frá sér. Þeir þurfa að spyrja sig hverja fréttin varði og hvaða upplýsingar þeir vilji fá fram. Það er ekkert eðlilegt að karlar svari þessu fyrir hönd kvenna og því ber að leita meira til kvennanna sjálfra. Sigrún-. Ég vil taka undir það að fjölmiðlar geti gefið skakka mynd af raunveruleikanum með því að viðhalda kynskiptingunni í viðmælendahópnum. Segjum sem svo að verið sé að fjalla um viðkvæmt mál eins og sjálfsmorð sem vekur mjög sterkar tilfinn- ingar hjá hverjum og einum. Kon- ur eru oftar en karlar í því hlut- verki að tjá tilfinningalegar hliðar á málum sem þessum. Ef við ein- vörðungu ræddum um þau við konur kæmum við þeim skilaboð- um á framfæri að karlar láti sig þau engu skipta eða hafi ekki til- finningar til jafns við konur. Það er því ekkert einhlítt í þessum efnum. Aðalatriðið er að vera meðvitaðri um hvað við erum að gera hverju sinni. Magdalena: Konur eru snið- gengnar í stórum stíl, ekki bara með því að sniðganga mjúku mál- in, heldur eru konur oft snið- gengnar þrátt fyrir að þær starfi á hefðbundnum karlavettvangi og gegni ábyrgðarstöðum. Eitt dæmi um þetta eru þær konur sem starfa sem aðstoðarmenn ráðherra. Mér finnst fjölmiðlarnir leita síður til þessara kvenna en þeir gera ef karlar skipa þessar sömu stöður. Það er eins og dragi úr mikilvægi þeirra í augum fjölmiðla við það eitt að konur gegni þeim. Sigrún: Þetta er ekki eingöngu vandi fjölmiðlanna því mér er ekki grunlaust um að þessi störf séu í raun og veru gengisfelld ef konagegnirþeim. Kona íleiðandi stöðu hjá hagsmunasamtökum lendir hugsanlega í þeirri stöðu að verða einn stór ritari fyrir for- manninn meðan karl í sömu stöðu er í hlutverki þess sem túlk- ar stefnuna. Hildur: Ég flutti utan árið 1983 og fannst mikið hafa breyst til hins betra þegar ég kom heim fimm árum seinna. Mörg umfjöll- unarefni sem áður voru feimnis- mál, talin jafnvel annarleg eða alls ekki áhugaverð eru núna daglegt brauð í mörgum fjölmiölum. Sem dæmi um þetta get ég nefnt að Jafnréttissíða Þjóðviljans var köll- uð kynlífssíðan af mörgum karl- mönnum í niðrandi merkingu og það jafnvel þótt greinar beinlínis um kynlíf væru teljandi á fingrum annarrar handar öll þau ár sem síöunni var haldið úti. Núna er ....mér finnst mikil þversögn ríkjandi í þessu landi þegar þetta fréttamat er réttlœtt með því að þjóðfélagið sé svo lítið að fjármagn skorti til að rœkta annars konar frétta- mat. Smœð þjóðfé- lagsins getur einmitt verið mikill kostur. kynlífsdálkur í hefðbundnum blöðum þótt enn séu þeir til sem hnýta í svona skrif. Tjáning í fjöl- miðlum er sömuleiðis orðin mun frjálslegri. Sigrún: Ég er sammála þessu og ég held að karlar séu bara ánægðir með þessa þróun. Svig- rúm hefur aukist á mörgum svið- um. Við höfum til dæmis nýlega séð þætti í sjónvarpi um hannyrð- ir, íslenska matargerð og barna- sjúkdóma og konur eru almennt orðnar mun virkari í því að ráða hvað fer íþætti. Ég held að mörgu fjölmiðlafólki sé líka að verða ljóst að þessi þröngi viðtalsklúbb- ur fjölmiðlanna á ekkert endilega upp á pallborðið hjá almenningi, enda er ég sannfærð um að þeir einstaklingar sem annað fólk helst vill hlusta á eru bara þetta venjulega fólk úti um allt land sem hvert býr yfir sinni sérstöku reynslu. Magdalena: Samkeppni á fjöl- miðlasviðinu hefur aukist og þar með dagskrárframboð sem er af hinu góða. Dagskrárgerð er hins vegar orðin miklu háðari auglýs- ingatekjum fjölmiðlanna, sem aftur býður þeirri hættu heim að dagskrárstefna lúti lögmálum auglýsingamarkaðarins. Þetta á auðvitað fyrst og fremst við um ,,frjálsu“ einkamiðlana og síður við ríkisútvarpið sem er sæmilega vel í stakk búið til að varðveita frelsi sitt — enn sem komið er a.m.k. Dæmigerðir kvennaþættir ,,trekkja“ ekki auglýsingar í sama mæli og dæmigerðir karlaþættir, t.d. heimsmeistarakeppni íknatt- spyrnu. Og það getur vissulega haft áhrif á dagskrárstefnuna — og á stöðu kvenna, bæði sem starfsfólks á miðlunum og ekki síður sem neytenda. Við þurfum að fylgjast náið með þessum mál- um því við megum ekki við því að sú aukna viðleitni sem við þó get- um séð votta fyrir verði látin víkja fyrir fé auglýsenda. H.J. 27

x

Vera

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.