Vera - 01.07.1990, Síða 35

Vera - 01.07.1990, Síða 35
þörf fyrir nálægð og persónulegt samband kjósandans og fulltrúa hans í lýðræðinu. Vissu- lega, en við vissum það fyrir og það var eitt af grundvallaratriðum Kvennalistans að bregða fæti fyrir þetta persónulega samband og krefj- ast þess að það væru stefnumálin sem skiptu máli en ekki þeir einstaklingar sem bæru þau upp. Það er alveg ljóst að okkur hefur ekki tek- ist að koma þessu nægjanlega til skila, fólk ekki fellt sig við það eða málefni okkar ekki náð eyr- um þeirra. Fyrir kosningar gekk mikið á í framboðsmál- um víða um land og ekki síst bér í Reykjavfk eins og flestum mun kunnugt. Þá voru menn iðnir við að benda mér á að eina von Kvenna- listans væri samframboð á nýjum vettvangi. Enginn viðmælenda minna hefur orðað þetta við mig nú að kosningum loknum. Það er vissulega vandlifað. En konur eru van- ar því að ósamrýmanlegar kröfur standi á þeim og þó það sé oft erfitt, hafa konur í gegnum tíð- ina oftast fundið útgönguleið. Ég treysti því að svo verði einnig nú. Við höfum alltaf gætt þess að vera ábyrgar í öllum okkar gerðum og sjálfum okkur sam- kvæmar. Þess vegna þurfum við ekki að kvíða dómi kjósenda. Okkar er enn þörf því konur eiga engan ann- an öruggan málsvara. Konur eru ekki markaðsvara. Kvenna- listakonur ekki heidur, en hugmyndunum þarf að koma á markað og það var að mínu mati ,,markaðssetning“ hugsjónanna og stefnumálanna sem brást. Reykjavík, 03.06. 1990, Sigríður Lillý Baldursdóttir Nánar verður fjallað um kosningar og stöðu Kvennalistans í næstu Veru. BORGIÐ VERU MEÐ GREIÐSLUKORTI! Umtalsveröur hluti af dýrmœtum tíma Verukvenna fer í aö eltast viö áskrifendur sem ekki borga blaöiö. En nú er auöveldara aö standa í skilum. Lyftiö bara tólinu og tilkynniö aö þiö viljiö greiöa áskrift Veru meö greiöslukortinu, Og konur — hvers vegna eruö þiö ekki í símaskránni? Þaö myndi auövelda okkur leitina aö horfnum og skuldugum áskrif- endum. Tvöfaldur raki ACO Fuktlotion! Með og án ilmefna. Fæst aðeins í apótekinu. RIRTAK hf. sími 91-3 20 70 ACO FUKTLOTION gefur húð þinni tvö náttúruleg rakabindiefni. Finndu sjálf hve ACO Fukt- lotion smýgur hratt inn í húð- ina án þess að klægi eða svíði undan og hve húðin verður mjúk. ACO FUKTLOTION ilmar einnig þægilega. Heldurðu að þú finnir betri húðmjólk? Hún er notaleg fyrir allan líkamann. 35

x

Vera

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.