Vera - 01.12.1991, Side 2

Vera - 01.12.1991, Side 2
VERA TÍMARIT UM KONUR OG KVENFRELSI KVENRÉTTINDAKONURNAR ■ SUSAN B. ANTHONY (1820-1906) H ELIZABETH CADY STANTON (1815-1902) I „Svo samqfln hafa líf okkar verið, markmið okkar og reynsla, að aðskildar finnst okkur við vera ófullkomnar, sameinaðar höfum við þvílíkan styrk að engar venjulegar hindranir, erfiðteikar eða hættur virðast óyfirstíganlegar. “ Elizabeth Cady Stanlon og Susan B. Anthony voru nánar vinkonur og samstarfsmenn í baráttunni fyrir kosningarétti og kjörgengi kvenna frá því þær kynntust, 1851, til æviloka. Þær voru eftirsóttir fyrirlesarar, stofnuðu kvenrétt- indafélög, skipulögðu ráðstefnur og fundi og ritstýrðu þremur bindum af Sögu baráttu kvenna fyrir kosningarétti (History of Woman Suffrage). Samband þeirra og samstarf var slíkt að eríitt er að '"VKj íjalla um aðra án hinnar, samanber lýsingu Elizabethar hér að ofan. Elizabeth var gift og eignaðist sjö börn. Hún átti því sjaldan heimangengt, en Susan, sem var ógift og barnlaus, ferðaðist um gjörvöll Bandaríkin og ílutti fýrirlestra og erindi um kvenréttindi. Þær stöllur unnu náið saman og bættu hvor aðra upp að ýmsu leyti. Elizabeth var góður penni og frábær ræðukona. Susan hafði ríka skipulags- og áróðurshæfileika. Bréfasafn þeirra vinkvennanna er varðveitt og má þar m.a. lesa bón Susan um að Elizabeth semji íýrir sig ræðu til að flytja á kennararáðstefnu árið 1856. „Það er svo margt sem þyrfti að segja og ég á svo erfitt með að skipuleggja það. Svo - vegna ástar þinnar á mér og til að bjarga heiðri kvenkynsins - bið ég þig, með eitt barn á hnjánum og annað við fótskör þína og fjóra drengi flautandi, suðandi og kallandi: „mamma, mamma“, að setja þig inn í verkið. ... Enginn karlmaður getur skrifað frá mínu sjónarhorni og engin önnur kona en þú. ..." Susan bað um svar fljótlega og Elisabeth svarar að bragði og segir m.a. „Þjónn jrinn er ekki dáinn, heldur lifandi. ímyndaðu þér mig, daginn út og inn, passandi, baðandi, klæðandi, gefandi bijóst og berandi um gólf hið dýrmæta innihald litlu vöggunnar í horninu. Ég arka fram og til baka í þessum tveimur litlu herbergjum, eins og ljónynja í búri sem Jrráir að binda endi á umönnunar- og heimilisstörf sín. ..." Barnið í vöggunni, hið sjötta í röðinni, var fimm mánaða dóttir Elizabethar. Elizabeth spurði síðan hvað Susan vildi að kæmi fram í erindinu. Susan flutti erindi Elizabethar við góðan orðstír tæpum tveimur mánuðum síðar. 2 Susan dvaldi tíðum á heimili Elizabethar og þá skrifuðu þær fjölda greina í blöð og tímarit. Elizabeth sagði áratugum síðar, að hefði það ekki veríð vegna þess hve Susan var iðin að benda henni á allt óréttlætið í heiminum, þá hefði hún eflaust gleymt sér í fjölskyldu- amstrinu eins og margar konur. Elizabeth og eiginmaður hennar voru bæði virk í bindindishreyfing- unni og í baráttunni fyrir afnámi þrælahalds, en eiginmaðurinn var lítt hrifinn af kvenréttinda- brölti konu sinnar og minnist ekki einu orði á það í ævi- minningum sínum. í minningum sínum segir Elizabeth að ein sú besta guðsgjöf sem henni hafi hlotnast á lífsleiðinni hafi verið hin trygga og trúa ráðskona sem var hjá henni í þrjátíu ár, var önnur móðir barna hennar og gekk í öll húsverk með henni og gerði henni kleift að sinna áhugamálum sínum í auknum mæli. Elizabeth leggur áherslu á að ef hún sjálf eigi heiður skilinn fyrir eitthvað sem hún afrekaði á lífsleiðinni þá eigi ráðskonan, Amelia Willard, stóran hluta af þeim heiðri. Susan var sú eina af frumherjum kvenrétt- indabaráttunnar sem giftist aldrei. Samheijar hennar giftust hver af annarri og margar urðu óvirkar í baráttunni. Susan sá mjög eftir þeim tíma - og orku - sem kvenréttindakonur eyddu í heimili sín og börn. Henni fannst að þeim tíma væri betur varið fyrir málstaðinn. í bréfi til Antoinette Brown, kvenréttindakonu sem var nýbúin að eignast annað barn sitt, segir hún: „Frú Stanton sendir kveðju sína og segir að ef þú ætlir þér að eignast stóra fjölskyldu þá ættirðu endilega að drífa í þvi, eins og hún hefur gert. Hún hefur aðeins eytt 18 árum af jarðvist sinni til þeirra hluta. En ég segi hættu núna, í eitt skipti fyrir öll. Líf þitt mun verða nógu erfitt með tvö.“ Elizabeth minnist aðeins einu sinni á giftingu í bréfi til Susan, hún hafði ekki heyrt lengi frá vinkonu sinni og spyr hana hvort hún sé dáin eða gift. Susan B. Anthony og Elizabeth Cady Stanton stóðu í fararbroddi í amerískri kvennahreyfingu áratugum saman. Þær voru „bestu vinkonur", samstarfsmenn og samheijar í baráttunni fyrir auknum réttindum kvenna. Án hvor annarrar hefðu hvorki þær né amerísk kvennahreyfing náð eins langt og raun ber vitni, samvinna þeirra og vinátta er aðdáunarverð. 6/1991 — 10. árg. VERA Laugavegi 17 101 Reykjavík Sími 22188 Útgefandi: Samtök um Kvennalista Forsíða: Áslaug Jónsdóttir Ritnefnd: Anna Ólafsdóttir Björnsson Björg Árnadóttir Drífa Hrönn Kristjánsdóttir Guölaug Gísladóttir Guðrún Ólafsdóttir Hildur Jónsdóttir Hrund Ólafsdóttir Ingibjörg Sólrún Gísladóttir Kristín Karlsdóttir Starfskonur Veru: Ragnhildur Vigfúsdóttir Vala Valdimarsdóttir Útlit: Harpa Björnsdóttir Ljósmyndir: Anna Fjóla Gísladóttir Kristín Bogadóttir Þórdís Ágústsdóttir Teikningar: Margrét Laxness Auglýsingar: Nína Helgadóttir Ábyrgð: Ragnhildur Vigfúsdóttir Setning og tölvuumbrot: Edda Harðardóttir Filmuvinna: Prentþjónustan hf. Prentun og bókband: Frjáls Fjölmiðlun Plastpökkun: Vinnuheimilið Bjarkarás Ath. Greinar 1 Veru eru birtar á ábyrgð höfunda sinna og eru ekki endilega stefna útgefenda.

x

Vera

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.