Vera - 01.12.1991, Qupperneq 10

Vera - 01.12.1991, Qupperneq 10
GOÐMENNSKAN STE N DU R GÓDMENNSKAN ÞÉR FYRIR ÞRIFUM Þaö er aliö á því aö viö eig- um aö vera góöar, gjaf- mildar, hjálpsamar, fórnfúsar og óeigingjarnar. Viö eigum aö vera góöar viö lítilmagn- ann, góöar eiginkonur, góö- ar mceöur, góöar dœtur, góöar systur, góöar vinkon- ur, góöar konur. Þegar á unga aldri gera stúlkur sér Ijóst aö þœr eru góðar ef þcer hjálpa öörum. Og þeg- ar viö erum góöar eigum viö aðdáun skilda og þaö sem meira er, viö erum ástarinnar veröar. Margar lenda síöar í þeim vítahring þegar þœr eldast aö reyna aö öölast ást og virðingu meö því aö vera sífellt aö rétta öörum hjálparhönd. Engin er al- góð, nema ef til vill Móöir Teresa, og margar konur gjalda góömennskuna dýru veröi. Sífellt fleiri gera sér grein fyrir þvi hve hættuleg góðmennska getur verið ef hún gengur út í öfgar. í Ameríku kom nýlega út sjálfshjálparbók fyrir „of gott“ fólk og sífellt fleiri konur leita sér sérfræðihjálpar til að geta sagt NEI og til að læra að biðja aðra um hjálp þegar þær þurfa sjálfar á aðstoð að halda. Hafa verður í huga að fólki hættir til að gefa jafn mikið og það þarfnast sjálft. Mörgum kon- um reynist örðugt að segja nei af því að þær óttast höfnun og eiga erfitt með að taka því ef bón þeirra er neitað. Þær sem eru ávallt boðnar og búnar til að hjálpa öðrum vonast til að fá hið sama á móti, en eiga hins vegar oft erfitt með að láta óskir sínar uppi. Þó þú haflr orð á þér íyrir að vera yndisleg og hjálpsöm kona þýðir það ekki að þú þurfir sífellt að vera að til að viðhalda ímyndinni. Þó þú hjálpir einhverjum einu sinni þýðir það ekki að þú ætlir að gera það til eilífðar. Þú ættir aðeins að hjálpa öðrum ef þig langar til þess og hefur tök á þvi, en ekki af þvi að þér flnnst þú verða að gera það. Hér á landi hefur verið lítil umræða um þetta vandamál sem allt of margar konur eiga við að glima. Þess vegna sperrti VERA eyrun þegar Anna S. Björnsdóttir gerði góð- mennsku að umtalsefni í þætti sínum um daginn og veginn í útvarpinu í sumar. Anna er fjögurra barna móðir og hefur verið grunn- skólakennari i 22 ár. Þar af var hún skólastjóri á Ströndum í tvö ár, en hefur annars kennt í Reykjavík og Kópavogi. Árið 1988 gaf hún út ljóðabókina Örugglega ég og tveimur árum síðar ljóðabókina Strendur. Þriðja ljóðabók hennar er ný- komin út og heitir Blíða myrkur. Anna kom viða við í erindi sínu, en fór svo að tala um fæðingu barna sinni. Hún sagði meðal annars: - Reyndar hafði ég sótt námskeið í slökun og leikfimi fyrir tuttugu og einu ári þegar til stóð að ég fæddi fyrsta barnið mitt og rætt var um sársaukalausa fæðingu sem sjálfsagðan hlut. Önnur varð reyndin. Og varð ég fyrir áfalli við þessar aðstæður. Því ein- hvern veginn hafði gleymst að það kynni að verða sárt. Mín kynsióð fékk ekki næga um- fjöllun um sársauka og þján- ingu og þess vegna þegar það mætti mér síðar á lífsleiðinni, varð ég skelflngu lostin. Ég man að í fæðingunni náði ég að hugsa sem svo: Hvernig geta konur um allan heim þolað þennan sársauka aftur og aftur? En svo þegar við sjáum þessi nýfæddu kríli og sár- 10

x

Vera

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.