Vera - 01.12.1991, Qupperneq 11

Vera - 01.12.1991, Qupperneq 11
GÓÐMENNSKAN sauklnn hverfur breiðist blæja gleymskunnar miskunnsam- lega yiir atburðinn. Auðvitað eru líka til konur sem finna ekki eins mikið til og geta notið fæðingar næstum eins og skemmtunar, en þetta veit nú enginn fyrirfram og ég tel betra að undirbúa ungar konur undir að taka þjáningu því án hennar kemst engin æviveg- inn. Og ekki er það heldur eftirsóknarvert að kvölin banki aldrei að dyrum, því hún er oft fæðingarhríð skilningsins og við viljum flest fá að skilja lífið, vaxa og þroskast og það gerist einfaldlega ekki án sársauka. Áður en ég skil alveg við sársaukann ætla ég að nefna orðið þunglyndi. Orðið þung- lyndi hefur alla tíð verið hálf- gert bannorð, eitthvað sem fólk forðast að nefna, viðurkennir ekki að það gangi með eða að neinn haíi í sinni fjölskyldu. Fyrir mér er þunglyndi dimmt ský sem leggst yfir hugann og hamlar huganum að vera glaður og starfsamur. Mörg stig eru á þessu fyrirbæri, skýið misþétt en ef það er kolsvart er fólk orðið óstarf- hæft og langar ekki til að lifa lengur. Hvað er til ráða? Vilji fólk hafa þetta dimma ský sem sinn helsta förunaut verður svo áfram en ég held að það hveríi ekki nema að fólk óski sér þess. Það er hægt að lenda í því að fá svona förunaut með þvi að vera of eftirlátssamur við aðra, t.d. á vinnustað eða á heimili. Vera of góður. Anna gaf hlustendum nokkur góð ráð til að koma í veg fyrir þunglyndi og það var auðsótt mál að leyfa lesendum VERU að njóta þeirra líka: - Til að losna við óæskilegt þunglyndi þarf að auka ánægjuþætti í liíi okkar. Sumir eru búnir að gleyma hvað þeim finnst skemmtilegt og verða þeir að finna út úr því fyrst og hefjast svo handa. Best er að þetta sé eitthvað sem þú gerir sjálfur fyrir þig sjálfan. Þvi þá ertu ekki háður duttiungum annarra og getur farið frjáls þína leið. Þau ráð sem dugðu mér þegar ég fékk svarta skýið voru þessi: Fara oft í kvik- myndahús og sjá góðar kvik- myndir, lesa mannræktar- bækur, sitja á kaffihúsum, fá mér falleg föt, fara til útianda og sitja á kaffihúsum þar eða á strönd með hvitum sandi og bláma hafs í baksýn. Sleppa öllum erfiðum sárum sam- skiptum, og þá meina ég sleppa. Hætta að stjórna öðrum og hætta alveg að leyfa öðrum að stjórna þér og þá meina ég alveg. Hætta að skúra og þrífa og skipta um gardínur og húsgögn. Hætta að fara í ferðir sem þig iangar ekki að fara í. Hætta að vinna verk sem þig langar ekki að vinna. Hætta að beita sjálfan þig þvingunum. Þegar svo birtir í huga þínum aftur, þessir hlutir gerast ofurhægt, og þegar ský- ið er horfið geturðu endur- skoðað hlutina og þá fáum við kraft til að takast á við það sem fylgir þessu jarðneska lífi. Og ekki er hægt að hlaupast undan allri ábyrgð. Við viljum það ekki heldur, en á meðan hættuástand ríkir, sem ég tel þunglyndi vera, er fyrir mestu að blása, blása af öllum krafti skýinu á brott svo að það nái ekki að varna þér gleði og gæfu. „Láttu sannleikann eftir þér og ástina“, stendur ein- hvers staðar i litlu ljóði og það finnst mér að við ættum líka að gera. Sérstaklega sannleikann þótt breytilegur sé því að við lifum ekki nema eina stund í einu. En ástin er enn ílóknari því þar kemur til samspil tveggja eða fleiri og þó er það mitt álit að öil ást og kærleikur sem undir því nafni stendur er af hinu góða og gefur mikið líf og kraft þeim sem til ástar finnur. Þetta með endurgjaldið er svo á annarra valdi og ætti ekki að skipta eins miklu máli og það að fá að ganga með ást í hjarta. Þetta eru bara tvær hliðar á einu máli, önnur er á okkar valdi en hin ekki, svo einfalt er það. Byggt á erindi Önnu S. Björnsson RV EITTSINN Ég vœngstýföi sjálfa mig. Klippti litlu fallegu vœngina burt. Núna sér enginn aö ég var eitt sinn engill í konumynd. VINSLIT Reiöi mín er heit án eftirsjár grimmd mín váleg og köld. Góðleiki ekki lengur helsimitt ' og fjötur. Úr Ijóðabóldnni: Blíða myrkur 1 vinn. á kr 25.000.000. 4 vinn. á kr. 5.000.000, 6 vinn. á kr. 10.000.000, 24 vinn. á kr.2.000.000. 17 vinn. á kr. 5.000.000, 68 vinn. á kr. 1 000 000, 56 vinn. á kr Skynsamleg geturskapað VINNINGASKRÁ FYRIR ARIÐ 1992: 1 vinn. á kr. 25.000.000, 4 vinn. á kr. 5.000.000, 6 vinn. á kr. 10.000.000, 24 vinn. á kr. |2.000.000, 17 vinn. á kr. 5.000.000, 68 vinn. á kr. 1.000.000, 56 vinn. á kr. 1.250.000, 224 vinn. á kr. 250.000, 266 vinn. á kr. 375.000, 1.064 vinn. á kr. 75.000, 2.506 vinn. á kr. 125.000, 10.024 vinn. á kr. 25.000, 12.100 vinn. á kr. 70.000, 48.400 vinn. á kr. 14.000, 48 aukavinn. á kr. 250.000, 192 aukavinn. á kr. 50.000. Samtals 75.000 vinn. á kr. 2.721.600.000. HAPPDRÆTTI HASKÓLA ÍSLANDS vænlegast til vinnings vinn. á kr.2 000 000, 17 vinn. á kr. 5.000.000, 68 vinn. á kr. 1.000.000, 56 vinn. á kr. 1.250,000, 224 vinn. á kr. 250.000, 266 vinn. á kr. 375.000, 1.064 vinn. á kr. 1 1 kr 250.000, 266 vinn á kr. 375.000. 1.064 vinn

x

Vera

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.