Vera - 01.12.1991, Page 16

Vera - 01.12.1991, Page 16
 Kvennalístinn á aö- eins einn borgar- fulltrúa, en fulltrúar listans sitja í níu nefndum og ráöum á vegum borgarinnar. Borgarmálahópur Kvennalistans hittist á þriðjudögum klukkan 16.30 á Laugavegi 17. Fundirnir eru opnir öllum Kvenna- listakonum og VERA leit inn til aö forvitnast um störf hópsins. Hvað getur ein kona gert í borgarstjórn? Elín: Við eigum í raun miklu meira en einn fulltrúa inni í borgarkerfinu þvi að við erum með fulltrúa í níu nefndum og ráðum á vegum borgarinnar, bæði aðal- og varafulltrúa. Þessar konur eru mjög virkar í kerflnu á okkar vegum. Hins vegar erum við ekki með nema einn fulltrúa í borgarstjórn og það er allt of lítið, það er mála sannast. Mér flnnst afar erfitt að vera ein í borgar- stjórn. Borgarstjórn er flókið íyrirbæri. Það þarf að setja sig inn í öll mál og störf allra nefnda. Á fundinum í borgarráði í dag voru 70 mál á dagskrá, þar af 13 fundargerðir. Ég þarf að setja mig inn í allar þessar fundargerðir og iylgjast vel með hvað er að gerast í hverri nefnd fyrir sig auk þess sem ýmislegt annað kemur uppá á þessum fundum. Það má ekki taka nema þrisvar til máls undir hveijum lið í borgarstjórn og maður þarf að vera ansi snöggur að taka við sér og vera mjög vel vakandi til þess að geta tjáð sig um öll málin og svara síðan, bóka og jafnvel koma með tillögur á stundinni. Það væri mikill munur að hafa annan fulltrúa til að skipta ábyrgð og vinnu. Guðrún: Málin gerast alveg ótrúlega hratt í borgarstjórn. Ég hef farið í tvigang inn til vara, Elín ég dáist að þér að vera að berjast inni í þessari borgarstjórn. Ég missi bara móðinn, ég missi mat- arlyst, ég missi andagift, nei í alvöru þetta er svo óþolandi. Mað- ur þarf í rauninni áfallameðferð eftir að hafa verið þar inni. Ég upplifði geysilega sterkt þessar blokkir minnihluti-meirihluti, en þær eru ekki eins áberandi í borgarráði. Þegar í borgarstjórn er komið er svo mikið form á öllu og maður skynjar það að þó svo að minnihlutinn sé oft með mjög góð mál þá er búið að taka afstöðu gegn þeim. Þetta eru mjög sér- kennileg og ólýðræðisleg vinnu- brögð. Ég var svo mikið barn að ég gerði mér enga grein íyrir því hvernig þetta var í raun og veru. Það eru fordæmi fýrir þverpóli- tiskri samstöðu um hin og þessi mál á Alþingi, en það er óþekkt í borgarstjóm. Eina málið er Aust- urstræti, þá riðlaðist allt - enda var gaman að fylgjast með því máli! Ég vil þó taka það fram að það hefur gengið á margan hátt mjög vel að starfa með Sjálfstæðis- flokknum og öðmm flokkum í nefndum, það hefur ekki verið neitt vandamál. Margrét: Reynsla okkar er misjöfn eftir nefndum. Ég er í umferðarnefnd og nýlega bað t.d. foreldrafélag um að slysagildru yrði mtt úr vegi. Ég bar fram þá tillögu að settar yrðu grindur þannig að ekki væri hægt að aka upp á gangstéttina. Þetta var fellt með þeim orðum að það væm aðrir staðir í bænum jafn hættu- legir! Þetta er einkennandi fyrir forgangsröðun mála. Sjónarmið gangandi vegfarenda er ekki ofar- lega á óskalistanum. Ég er ósátt við þennan hugsunarhátt. Elín Vigdís: Ég sit í barnavernd- arnefnd og ég dáist að starfsfólki félagsmálastofnunar. Þetta fólk vinnur svo gott starf, en álagið er gríðarlegt því að það vantar svo fleira fólk. Við i barnaverndar- nefnd fengum það í gegn að stöðugildum hefur verið fjölgað. En það er ekki hægt að ráða í þau vegna þess hve launin em lág. Auk þess vantar dagheimilispláss fyrir þá félagsráðgjafa sem gætu komið í þessa vinnu. Af þessu leiðir að málin þurfa að vera orðin mjög alvarleg til að hægt sé að taka á þeim - því að þau em svo mörg en starfsfólkið svo fátt. Það vantar t.d. heimili fyrir unglinga sem eiga ekki í nein hús að venda. Hér er töluverður hópur af unglingum sem kallast í dag- legu tali óalandi og ófeijandi. Það er ekki hægt að hafa þessa krakka í þerapískri vinnslu í unglinga- heimilisbatteríinu, þar sem þau geta farið ef þau em ekki tilbúin til samvinnu. Þetta heimili þyrfti því að vera lokað. Mér flnnst þetta vera eitt af brýnustu málunum. Guðrún: Mér flnnst það hræðileg tilfinning að geta setið uppi með það að hafa eyðilagt mál með þvi að bera það upp. Segjum svo að minnihlutahópur úti i bæ biðji okkur um að leggja ákveðið mál iýrir, þá liggur við að maður verði að vera heiðarlegur og segja við- komandi að tala við einhvern í Sjálfstæðisflokknum og svo skul- um við styðja málið. Elín: Borgarráðið hefur skánað mikið síðan Davíð hætti, þar sem nú ríkja þar lýðræðislegri vinnu- brögð en áður. Nú var fundinum að ljúka klukkan hálf fimm, það segir mér fyrst og fremst það að nýi borgarstjórinn gefur fólki meira svigrúm til að tjá sig. Nú er meiri almenn umræða um ýmis- legt sem var nánast óþekkt fyrir- bæri áður. Á síðasta fundi borgar- stjórnar kom Framsóknarflokk- urinn t.d. með tillögu varðandi Sorpu og í dag mætti fram- kvæmdastjóri Sorpu á fund í 16

x

Vera

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.