Vera - 01.12.1991, Page 24
Ert þú ein af þeim sem býrð til
allar jólagjafirnar? Þrífur húsið
hátt og lágt, setur upp heima-
saumaðar jólagardínur, býrð til
aðventukrans og jólaskraut?
Sendir þú heimatilbúin jólakort,
saumar jólaföt á alla fjölskylduna,
gerir jólasælgæti, skerð út
laufabrauð og bakar sextán sortir
af smákökum? Sameinast fjöl-
skyldan í jólaundirbúningnum,
hlustar á jólatónlist og nýtur
samverunnar og tilstandsins?
Ferðu í þrjú jólaglögg og börnin á
sex jólaböll? Býður þú allri
Qölskyldunni í jólaboð og sérð um
allan undirbúning ein?
Þrátt fyrir fögur íýrirheit um
að heija jólaundirbúninginn fyrr
og gera allt sjálfar falla eilaust
margar á tíma. Enda er jólaundir-
búningurinn kominn út í öfgar.
íslendingar hafa tileinkað sér svo
marga nýja jólasiði undanfarin ár
að það hálfa væri nóg. Jólaglögg
er svo að segja daglegt brauð í
desember, veitingahús bjóða upp
á danskan jule-frokost, fólk gerir
sænska síldarrétti, enskar jóla-
kökur, þýsk jólabrauð, dönsku
jólasmákökurnar eru orðnar
alíslenskar og sífelit íleiri skera út
laufabrauð. Loksins þegar jólin
ganga í garð eru flestir dauð-
þreyttir. Hvernig væri að stilla
jólaundirbúningnum í hóf og
njóta lífsins fram að jólum, um
jólin og eftir jól? Jólin geta veríð
einfalt mál!
Teikningar: Margrét E. Laxness
Hér koma nokkur einföld ráð, en
lesendur eru beðnir að minnast
þess að jólin eru ekki aðeins
„hátíð húsmóðurinnar" heldur
allrar íjölskyldunnar. Hjálpist að
og njótið lífsins saman.
■ Frestaðu jólahreingerning-
unni fram á vor og stilltu
tiltektinni í hóf.
I Notaðu jólaskrautið frá þvi í
fýrra. Sem dæmi um einfalt
jólaskraut má nefna þurrkuð
reyniber en einnig er fallegt að
binda rauðar slaufur á grein-
arnar.
■ Endurskoðaðu jólakorta-
listann og strikaðu þá út sem
þú hefur ekki haft samskipti
við á árinu. Hafðu mannúðar-
og líknarfélög í huga þegar þú
velur jólakortin. Það sakar
ekki að styðja gott málefni.
I Ef þú hefur tileinkað þér
þann sænska sið að hafa jóla-
glögg kauptu þá blönduna til-
búna og gerðu eins og Sví-
arnir: Sparaðu sterku vínin og
drekktu i hófi. Áfengislaus
jólaglögg er mjög góð.
■ Kauptu laufabrauðsdeigið
tilbúið og skerðu það út.
■ Fækkaðu kökusortunum og
haltu þig við einfaldar upp-
skriftir. Hér eru nokkrar mjög
góðar:
24