Vera - 01.12.1991, Side 26
JÓLIN • EINFALT MÁL
JÓLAMATUR
Er ekki lími til kominn að breyta
fyrirkomulagi jólaboðanna?
Bjóddu fjölskyldunni eða vinun-
um endilega heim, en láttu þá
koma með matinn með sér. Ein-
hveijir geta þá komið með forrétt,
aðrir með eftirrétt, þriðji hópur-
inn sér um salatið og brauðið, sá
fjórði um drykkjarföng en þú
getur t.d. boðið upp á heitan
aðalrétt.
EINFALDIR FORRÉTTIR
Síldarréttir (þessir keyptu eru
mjög góðir!) og rúgbrauð.
Frönsk lifrarkæfa hituð í ofni.
Grailax og ristað brauð.
Flatkökur með hangikjöti.
Tartalettur
með cambenbertosti
Camenbert er skorinn í sex
hluta, einn hlutur settur í hveija
tartalettu, hitað inn í ofni. Borið
fram með ribsbeijamauki eða
annarri góðri sultu og nýjum per-
um.
EINFALDIR AÐALRÉTTIR
Rauðrófusúpa fyrir 6-8.
6-7 rauðrófur
2 kartöílur
2 laukar
1 epli (gult eða grænt)
2 msk ólifuolía
vatn eftir þörfum
2 msk tómatkraftur
1 hvitlauksrif
safi úr 1 /2 sítrónu
(eða eftir smekk)
grænmetiskraftur eftir þörfum
(1 teningur á að nægja)
Persilja
rjómi/ferskur eða sýrður
Grænmetið er rifið smátt. Matar-
olían hituð í potti og grænmetinu
bætt út í og það steikt í smá
stund. Vatni bætt út í og látið
sjóða í u.þ.b. 1/2 klst. eða þar til
grænmetið er soðið í mauk.
Tómatkrafti, hvítlauk og sítrónu-
safa bætt út í súpuna ásamt
grænmetiskrafti eftir smekk.
Þegar súpan er borin fram er
fallegt að ausa henni upp, setja
rjómatopp á hvern disk og strá
persilju þar yfir.
Hreindýrasteik, bógur krydd-
aður með salti og pipar, settur í
steikarpoka með smá smjörklípu
í 200 gráðu heitan ofn í rúma
klukkustund. Borið fram með
bökuðum kartöílum, rauðrófum,
asíum og rauðkáli.
Pasta með gráðostasósu:
Pastað soðið.
Grænmeti (brokkoli, laukur, gul-
rætur, perur, epli, hnetur) skorið
niður og sett á pönnu, smá vatn
sett út á, gráðostabitar settir út í
og látnir bráðna. Má krydda með
rósmarín. Ef þú vilt meiri sósu
skelltu þá sýrðum ijóma út í.
Veislusalat fyrir átta:
Þetta salat er veisla fyrir augað,
auk þess sem það er gott, holt og
einfalt. Sósurnar má búa til
mörgum dögum fyrir jól því þær
verða bragðmeiri við geymslu.
Grænmetið og laxinn má skera
niður daginn áður en salatið er
borið fram og geyma hverja
tegund í séríláti. En grænmetið er
auðvitað alltaf hollast ef það er
niðursneitt rétt áður en þess er
neytt.
Valhnetusósa:
100 g valhnetukjarnar
5 dl sýrður rjómi
1 /2 tsk salt
Malið hneturnar smátt og
blandið í sýrða rjómann.
Sinnepssósa:
Blandið vel saman:
3 msk edik
2 msk vatn
2 msk sterkt sinnep
2 1 /2 dl olía
1 1 /2 dl niðursneitt dill
1 tsk salt
pipar á hnífsoddi
1 /2 pressað hvitlauksrif (ef vill)
Salat
1 kg rækjur
800 g reyktur eða grafinn lax
stórt kálhöfuð (icebergsalat)
200 g nýir
eða niðursoðnir sveppir
150 g radísur
2 sítrónur
1 stór gúrka
4 avokado
Skerið grænmetið í hæfilega
munnbita. Sneiðið laxinn og
rúllið honum upp í rósir. Raðið
síðan hveiju fýrir sig á stóran
bakka, þannig að litirnir njóti sín
sem best. Berið fram með
sósunum og brauði.
EINFALDIR EFTIRRÉTTIR
Ávaxtasalat með sýrðum rjóma.
Smákökur og jólasælgæti.
Sáraeinfaldur jólaís:
6 eggjarauður
1 bolli púðursykur
1/2 lítri rjómi
1 tsk vanilludropar
Egg og sykur stífþeytt, rjómi
þeyttur og blandað út í,
vanilludropum og 100 gr.
af smátt skornu Toblerone bætt
út í. Fryst.
EINFALDAR JÓLAGJAFIR
Einfaldast er að gefa öllum
gjafaáskrift að VERU! Þú hringir
og við sendum blaðið ásamt
fallegu gjafakorti. Ef allir í
kringum þig eru áskrifendur nú
þegar, þá er upplagt að kíkja á
jólabasara, fornbókasölur, Kola-
portið, markaðinn hjá Dýravernd-
unarfélaginu, listmunamarkað
Hlaðvarpans, að ógleymdum
gjafavörumarkaði Kvennalistans
að Laugavegi 17. Úrvalið er
ótrúlega gott og verðinu er stillt í
hóf.
Gleðileg jól.
Ritnefnd
26