Vera - 01.04.1993, Síða 10

Vera - 01.04.1993, Síða 10
tuginn á undan. Nú fundu konur hamingjuna með hring á fingri og barn í fangi, þær sem voru enn að streðast við að verða „eitthvað" höfðu flestar verra af. Tískan breyttist einnig, frá því að vera einföld og þægileg í að vera íyrirferðameiri og „barna- leg“. Einfaldar línur viku fyrir tjulli og blúndum. Dragtir og annar fatnaður sem kenndur er við konur á framabraut hvarf af snögum margra verslana, þrátt íyrir að mikil eftirspurn væri eftir þeim. Margar konur sem fögnuðu frelsi sínu upp úr 1970 með þvi að henda magabeltum og brjósta- höldurum fengu sér nú sokka- belti og önnur „kynþokkafuH" undirföt til að tolla í tískunni. Og lýtalæknar létu sífellt meira til sín taka. Tískuheimurinn notaði tungumál feminismans og reyndi að höfða til „meðvitaðra" kvenna sem höfðu fullkomna stjórn á lífi sínu og líkama. Að láta stækka á sér brjóstin var ein varðan á leið til fullkomins kvenfrelsis, það sýndi að konur áttu sig sjálfar og gátu gert hvað sem var til að verða sáttari við sjálfar sig. HUGMYNDA- FRÆÐINGARNIR Þriðji hlutinn fjallar um hug- myndafræðinga afturkippsins, baráttu „nýja hægri vængsins“ gegn konum og öfugstreymi í stjórnmálum. Öll afturhaldsöfl þurfa á blóraböggli að halda, hjá þeim sem vildu takmarka innflytjenda- straum til Bandaríkjanna voru það kaþólikkar, hjá Ku Klux Klan voru það blökkumenn og hjá nýja hægri vængnum er það kvenna- hreyfingin. Að þeirra sögn ráðast kvenréttindakonur að hornstein- um samfélagsins því þær vilja breyta hinni hefðbundnu Qöl- skyldu. Aðalhættan er fólgin í hugmyndum þeirra um breyting- ar á eiginmanns- og föðurhlut- verkum. Þegar þessir íhalds- menn, sem voru flestir prestar í árdaga hreyfingarinnar, hösluðu sér völl í pólitík héldu þeir norna- veiðum sínum áfram. Þeir kom- ust fljótlega að því að það var fátt áhrifameira en að láta konur flytja fagnaðarerindið. Þegar úti- vinnandi konur, sem voru lík- legar til að taka undir kröfur kvennahreyfingarinnar áttu í baráttu við sjálfsásakanir og efa um lífsstíl sinn sem afturkippur- inn kom inn hjá þeim, blómstr- uðu kynsystur þeirra sem voru málsvarar afturhaldsins. Því um leið og þær boðuðu kvcnljandsamleg viðhorf tileinkuðu þær sér kenningar kvenna- hreyfingarinnar um sjálfsákvörðunarrétt, jafnrétti og valfrelsi í eigin lífi og lifnaðarháttum. Það var í lagi að þær yfirgæfu eiginmann, heimili og börn í þeim heilaga tilgangi að koma öllum öðrum konum inn á heimilin. Konur hurfu úr pólitík, bæði af þingi og úr ráðuneytum. Harkalegum aðferðum var beitt gegn konum sem höfðu á sér feminískan stimpil. Skorið var niður til allra félagsmála, sérstaklega þeirra sem gögnuðust konum. Hinir öfgafullu afturhaldsmenn hefðu aldrei getað markaðssett afturkippinn einir. Það urðu margir til að leggja þeim lið af ráðnum hug eða án þess að það hafi verið ætlunin. Margir fyrrum boðberar kvenréttinda snéru við blaðinu og hlutu óskipta athygli afturhaldsaflanna. Þeirra á meðal er Robert Bly sem vill breyta mjúka manninum í villimann (sjá júní Veru 1992). Faludi segir að bók Betty Friedan, The Second Stage, beri merki af bakslaginu og ómögulegt sé að vita hverju upphafsmaður kvennahreyfing- arinnar trúir í dag. Fáar kenningar um „öðru- vísileika" kvenna hafa verið eins rangtúlkaðar og misnotaðar í þágu andspyrnunnar eins og kenningar Carol Gilligan um „hina röddina". í bókinni In a Different Voice sem kom út 1982 leitast hún við að sýna fram á hvernig siðferðis- þroski kvenna hefur verið rangtúlkaður og vanmetinn af því að skalinn sem sálfræðingar notuðu væri miðaður við karla og því kæmu konur illa út úr mælingum. Gilligan hélt þvi fram að konur færu aðra leið til að komast að niðurstöðu, en það þýddi ekki að siðferðisþroski þeirra væri minni. Hugmyndir hennar um mis- munandi nálgun kynjanna voru rangtúlkaðar og mikið gert úr því hve kynin væru ólík og því mishæf til ólíkra verka. Þessi rangtúlkun var vatn á myllu andspyrnunnar sem hélt því fram að konur væru frá náttúrunnar hendi hæfari til heimilisstarfa og barnauppeldis, þrátt íýrir að Gilligan hefði tekið skýrt fram að munurinn væri að mestu uppeldislegur. ÁHRIF Á LÍKAMA OG SÁL Fjórði og síðasti hluti bókarinnar rekur áhrif andspyrnuhreyfingarinnar á konur, á atvinnu þeirra og andlega og líkamlega líðan. Höfundar metsölubókanna Klárar konur/uit- laust val og Konur sem karlmenn elska/Konur sem karlmenn yjirgefa eru sannfærðir um að kvennahreyfingin hafi afvegaleitt konur. Það sé kvennahreyfingunni að kenna að konur hafi lagt alla áherslu á starfsframa í stað þess að leggja rækt við samband sitt við hitt kynið. Sjálfstæði kvenna hafði þær afleiðingar að þær töldu sig of klárar fyrir hvaða mann sem var og gerðu því þau regin mistök að fresta giftingu og láta þess í stað aðra drauma rætast - og urðu svo taugaveiklun og annarri vanlíðan að bráð. Þegar leið á áratuginn skiptu höfundarnir um skoðun og héldu því nú fram að sálræn vandamál kvenna stöíúðu af því að konur hugsuðu ekki of litið um sambönd heldur of mikið. Það eina sem kæmist að hjá konum væri að ná sér í mann. Fyrst skutu þeir á konur og æddu svo af stað til að setja plástur á sárin. Konur skyldu í meðferð og þar var þeim sagt að þær yrðu að breyta sér, láta af óraunhæfum kröfum o.s.frv., en ekki að karlmenn gætu og ættu að lireytast líka. í kjölfarið komu bækur eins og Konur sem elska of mikið: Þegar þú heldur í vonina og óskina um að hann muni breytast með viðeigandi námskeiðum og með- ferðum. Andspyrnan gegn konum á vinnumarkaði jókst en varð jafn- framt duldari. Launamunurinn varð meiri þrátt íýrir að hinu gagnstæða væri haldið fram í fjölmiðlum. Síl'ellt fleiri konur 10

x

Vera

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.