Vera - 01.04.1993, Blaðsíða 23

Vera - 01.04.1993, Blaðsíða 23
GETNAÐARVARNIR „INN MEÐ SMOKKINN STELPUR" Konur reka yflrleitt upp skelli- hlátur þegar þær sjá hann í fyrsta sinn. Hann minnir sumar á dúkku-ryksugupoka. Karlmenn segja að þetta sé eins og að elskast í plastpoka. Uppflnn- ingamenn og fólk í heilbrigðis- geiranum láta viðbrögðin ekki á sig fá. Það segir að nú sé rétti tím- inn fyrir kvensmokkinn, bylt- ingarkenndustu getnaðarvörn sem hægt er að fá án lyfseðils, síðan getnaðarvarnasvampurinn kom á markað árið 1983. Nú er verið að prófa a.m.k. þrjár út- gáfur af lcvensmokknum í Ameriku og sala á danskri útgáfu er hafln í Sviss. Allar smokkagerðirnar eiga það sameiginlegt að vera auð- veldar í notkun, úr plasti eða gúmmii og settar inn í leggöngin. Vísindamenn lofa og prísa hinn nýja smokk þar sem hann er eina pottþétta vörn kvenna gegn vissum kynsjúkdómum auk þess að vera nokkuð örugg getnaðar- vörn. Þeir telja það einnig kost að hægt er að setja smokkinn inn hvenær sem er dagsins og hann veitir því vörn frá upphafi sam- fara til enda. Vændiskonur hafa tekið kvensmokknum fagnandi enda veitir þeim ekki af góðum vörnum gegn öllum kynsjúk- dómunum sem herja á mann- kynið þessa dagana. Nú er bara að bíða og sjá hver viðbrögð almennings verða. □ NÝ GETNAÐARVÖRN Um fimm ára skeið hefur ný getnaðarvörn, Norplant, verið á markaðinum í Svíþjóð. Norplant samanstendur af sex hormóna- fylltum pílum sem komið er íyrir undir húð í upphandlegg (sjá mynd). Frá silikon pílunum berast hormón smám saman út í blóðrásina en það eru samskonar hormón og í minipillunni og p- pillunni. Þessi getnaðarvörn endist í fimm ár í senn og verður að koma pílunum fyrir undir húðinni í síðasta lagi sjö dögum eftir að blæðingar hefjast. Mögulegar aukaverkanir eru þær sömu og pillunnar en viss hætta er á óreglulegum blæðing- um. Ein af hverjum tíu konum þolir ekki Norplant en það er svipað hlutfall og þolir ekki pilluna. Pílurnar má fjarlægja hvenær sem er. Norplant pílurnar eru ekki enn kornnar á markað hérlendis. Konur sem hafa áhuga á pílunum geta beðið heimilislækni sinn að senda undanþágubeiðni til Lyfja- nefndar. Þess má geta að Nor- plant er mun ódýrara en pillan og í Sviþjóð kostar þessi flmm ára getnaðarvörn álíka mikið og þriggja mánaða skammtur af pillunni. □ Eyrún Ingadóttir 23

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.