Vera - 01.04.1993, Blaðsíða 31

Vera - 01.04.1993, Blaðsíða 31
ÚR SÍÐU ADAMS NIÐURSKORINN NAUTNABELGUR Kæra Vera Þeir sem hafa fylgst með íslensku efnahagslífi, hafa ekki komist hjá því að gera sér grein fyrir því, að stefna Kvennalistans í efnahagsmál- um, er stefna hinnar hagsýnu húsmóður. Þrátt fyrir að margt í áður- nefndri stefnu sé vel ígrundað og fjarska skynsamlegt, hefur hún ekki fengið hljómgrunn hjá öðrum stjórnmálaflokkum og forystumönnum efnahags- og stjórnmálalífs. Lengi vel fannst mér þctta furðu sæta, en eftir að hafa þurft að aðlaga líf mitt háttum hinnar hag- sýnu húsmóður, er ég ekki jafn undrandi yfir skeytingaleys- inu. Þegar ég lít til baka verður mér ljóst, að ég hef að flestu leyti verið holdtekja íslensks efnahagslífs. Samdrætti í tekj- um mætti ég með neyslu- lánum og þegar slíkt stefndi í óefni varð að grípa til niður- skurðar. Til niðurskurðarins var auðvitað ekki gripið fyrr en engir peningar voru eftir. Þá tók ég upp símann og afpant- aði timann hjá tannlækninum, hætti við að fara í klippingu, bauð mér í mat hjá vinum og mttingjum og lifði þess á milli á kreppufæði. Tók mér síðan frí frá námi og fór að vinna. Svo rann upp útborgunardagur hjartur og fagur og ég tók til við hýrar lífsnautnir í svo sem eins °g viku tíma og þá hófst sultariífið aftur. Þetta voru dýrðlegir dagar. En allt tekur enda. Ég kynntist fyrir nokkru annál- aðri kosta konu og jirátt fyrir að ég sakni gamalia daga má enginn skilja orð mín svo að ég sjái eftir þeim skrefum sem stigin voru. En miklar breyt- ingar hef ég mátt umbera. Það er orðið langt um liðið síðan ég hef þurft að leggja mér til munns ólystugt kreppufæði og tannheilsa mín er með besta móti, en fyrsta vika hvers mánaðar er vart skugginn af sjálfri sér. Nú lifi ég í því sem mér finnst stundum vera lang- dregið meðalhóf, undir ströngu fjárhagseftirliti. Allur sparnaður og niðurskurður snýst um það eitt að skera niður lúxus - oj bara. Nú má ekki setja pela af rjóma í spaghettiréttinn og Medoc rauðvínið og koníaksflaskan er sett aftur í hilluna í Ríkinu með þeim orðum að maður borgi ekki mörg þúsund krónur fyrir bókstafina x og o þegar hægt sé að fá v og s í svipaðri ílösku fyrir margfalt minna. Svona hafa íleiri gamlir vinir eins og paté, nautalundir, árgangspúrtvín, eðalostar o.s.frv. horfið að mestu úr lífi mínu. í stað þeirra er komið ódýrt hollustufæði á tilboðs- verði. Ég viðurkenni fúslega að ég er við góða heilsu og líf mitt er að flestu leyti í farsælli skorð- um, en ég get vart fengið það af mér að óska kynbræðrum minum sem stýra samfélaginu þeirra örlagaríku umskipta sem ég hef mátt þola, jafnvel þótt það leiði, ef á heildina er litið, til farsælla lífs. Eina von min er sú að ráðdeild og sparnaður skili mér á endan- um til þess sæluríkis þar sem ávaxtanna og afurða jjeirra er ótæpilega neytt. □ Niðurskorinn nautnabelgur Teikning Anna Guðjónsdóttir FJÁRMÁLANÁMSKEIÐ VÍB Síðasta námskeib vetrorins verbur 27. og 29. apríl SigþrúMr Guðmundsdóttir, fmMufulltrúi hjá Vátryggingafélagi Islands, er ein þeirra mörgu sem hefursótt námskeiö um fjánnál einstaklinga hjá VIH. „Eg held að sá tími og þeir peningar sem maður ver í svona námskeið skili sér ótrúlega fljótt í heimilisrekstri/4 „Hvort sent fólk fer að skipuleggja fjármálin sín vegna þess að það fer á svona námskeið eða eitthvað annað sem verður þess valdandi, þá held ég að það sé ai' hinu góða. Það er mjög margt sent situr eftir af námskeiðinu og það er ýmislegt sem ég hef þegar gert til að korna reglu á mín fjármál síðan ég var á námskeiðinu. Það sem mér finnst sýna hvað þetta hefur verið gott námskeið er að sífellt eru að koma upp í kollinn á mér einhver atriði úr námskeiðinu.“ Ráðgjafar VIB veita frekari upplýsingar um Fjárntálanámskeið VIB og einnig er hægt að fá sendar upplýsingar í pósti. VÍB VERÐBRÉFAMARKAÐUR ÍSLANDSBANKA HF. Ármúla 13a, 155 Reykjavík. Sími 68 15 30. Myndsendir 68 15 26. Simsvari 68 16 25. 31

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.