Vera - 01.04.1993, Qupperneq 15

Vera - 01.04.1993, Qupperneq 15
AFTURKIPPUR Hvað er maðurinn að segja? Jú, börn útvinnandi mæðra verða morðóð og atvinnuleysið sem blasir við í dag er konum að kenna. Ef þær hefðu drullast til að halda sig heima væri ekkert vandamál. Sem betur fer er von til þess að þessi skoðun sé ekki útbreidd. í Lífskjarakönnuninni frá 1990 var fólk m.a. spurt hvort það teldi að þegar atvinna væri af skornum skammti ættu karlmenn frekar rétt á vinnu en konur. Um þriðjungur íbúa suður - og vestur-Evrópu og um íjórðungur Bandarikjamanna töldu að svo ætti að vera en einungis 6% íslendinga. En svona skrif beinast gegn einu þvf mikilvægasta sem áunnist hefur i kvennabaráttu á íslandi og hinum vestræna heimi. Þessi maður er í raun að ráðast gegn þvi sem er nú- tímakonum heilagast — frelsi þeirra tQ að velja. Og ekki nóg með það heldur gerir hann sér lítið fyrir og kennir konum um það alvarlega atvinnuleysi sem hér ríkir. Það hættulega við þetta er að þegar svona skoðanir birtast á prenti eru alltaf einhverjir sem trúa þeim. ímyndum okkur að þrjár svipaðar greinar birtust á degi hveijum í Ijölmiðlum í heilan mánuð. Hvað ætli margir væru farnir að trúa þessu þegar mánuðurinn væri á enda? Teikningar: Áslaug Jónsdóttir Fjölmiðlar eru vettvangur skoðanaskipta. Sumir ganga svo langt að kalla þá varðhunda samfélags- ins, aðrir telja þá einhverja mestu áhrifavalda samtímans. Hvort sem við trúum þvi að þeir endurspegli samtimann eða móti hann þá er ljóst að á hverjum tíma birta þeir ákveðna mynd af samfélaginu, körlum, börnum og konum. Hver er sú mynd sem þeir birta af konum og um leið sú ímynd sem birtist konum? Jú, það er afskaplega mikið gert úr hinum borgaralegu frúm sem svifa um fina sali á armi eiginmanna. Ekki satt? Eða sætum stelpum á Casablanca? Og svo eru það allar fyrirmyndarkonurnar. Konan sem sparar stórfé með að gera allt sjálf, hún bakar brauð og frystir alla afgangana til að nota í brauðsúpu, býr til kæfu , súrsar, saltar, piprar ... og svo straujar hún ALLT, vasaklúta, nærbuxur, sokka, viskustykki og að sjálfsögðu allar bleyj- urnar! Allar þessar „kvenlegu" dyggðir! Heilu síðurnar um sultugerð, slát- urgerð, taubleyjuþvott, brauð- bakstur, stofublóm, slæðuhnýt- ingar, litasamsetningar og fléttulist (þið vitið, ýmsar aðferðir við að flétta síða fallega hárið). Og svo er það allt sem þekktu konurnar eru að gera. Viðtöl við þær um græðlingana sem þær eru að rækta á svölunum, hvernig þær raða í fataskápinn, hvaða ilmvatn þær nota, hvort þær sofa í silki og guð má vita hvað. Er þetta það sem konur eru að pæla og sú ímynd sem þær sjálfar sækjast eftir? Ef ekki, þá er kominn tími til þess að konur hisji upp um sig buxurnar og pilsin og snúi vörn í sókn gegn boðberum bakslagsins. Fjölmiðlar breyta hvorki um stíl né stefnu á meðan konur taka þátt í leiknum og leyfa þeim að nota sig sem tæki i andspyrnunni gegn kvenfrelsi og jafnrétti. Það er á valdi kvenna sjálfra að stöðva þessa þróun og það verður að gerast. Þvi þó að eitt lítið ilm- vatnsviðtal virðist saklaust þá er það þráður í vef sem við í and- varaleysi okkar leyfum andspyrnu- öílunum að spinna; - vefur sem við munum að lokum festast í, verði ekkert að gert. Ása Richardsdóttir Nýtt í svitalyktarvörnum: Kristalsteinn Heilsuval, Barónsstíg 20, hefur hafið innflutning á fullkominni svitalyktarvörn. Um er að raeða alnáttúrulegan kristalstein, Le Crystal Naturel Honum er strokið eftir blautum handakrika eða il á fæti og kemur þá algjörlega í veg fyrirað lyktarbakteríur kvikni. Engin aukalykt, engin kemísk efni. Fæst i verslunum sem selja Græðandi Banana Boat linuna. í Heilsuvali, Barónsstíg 20, fást nú yfir 20 sjampó- og hárnæringar. Þ.á.m. er Banana Boat hárnæring sem lýsir háriðá náttúrulegan háttá nokkrum minútum, Naturade djúphreinsandi 80% Aloe Vera sjampó fyrir venjulegt og feitt hár, mýkjandi Faith In Nature sjampó úr Jojoba-oliu, Royal Collecfion lúxussjampó fyrir þu rra hárenda og skaðað hár vegna permanetts og hárlita, Joe Soap Hair Care hárlýsandi kamillusjampó fyrir Ijóshærða, Banana Boat flækjubaninn Hair Guard, nærandi Naturica sjampó, hágæða GNC Aloe Vera sjampó með lesitini, B-vítamíni, kamillu og PABA. Fást í verslunum sem selja Græðandi Banana Boat linuna Hrukkubaninn Sænski húðsérfræóingunnn Birgitta Klemohefursettá markað öfluga hrukkuvörn, Naturica hrukkubanann GLA+, 24. tíma krem úr glandínsýru (hraðar frumuendurnýjun), Aloe Vera (inniheldur50steinefniogvitamín),PCA(rakaefni),A-vitamini (eflirsúrefnisflæði um vefi og verhúðina gegn öldrun) og E- vitamini (hraðar endurnýjun fruma i ysta húðlaginu og vinnur gegn exemi og sporiasis). i Naturica húðverndarlínunni er lika græðandi rakakremið Hud+kram sem hentar einnig viðkvæmnri húð, þurri, bólóttri og exemhúð. Naturica húðverndarlínan fæst í Heilsuvali, Barónsstíg 20, og öllum verslunum sem selja Græðandi Banana Boat linuna. NÝTT - NÝTT! í Heilsuvali, Barónsstíg 20, er stöðugt verið að kynna nýjar vörur. Nú er farið að selja þar gullfallega islenska módeleymalokka úr brenndum leir og gómsæta granóla- barinn Sweet Bar með eplum, hnetum og súkkulaðibitum. í Heilsuvali er líka boðið upp á hárrækt, megrun o.fl. með leyser, rafmagnsnuddi og orkupunktum. Nýtt frá Banana Boat Nýjungarnar streyma á markað frá Græðandi Banana Boat línunni. Nú er komið á markað húðnærandi Banana Boat Dökksólbrunkugel (unnið úr gulrótum) fyrir Ijósaböð, Banana Boat hreint A-vitamin Retinoi & Beta Karotin. sem hjálpar húöinni að vinna upp eigin næringarefni, styrkir frumuhimnumar, mýkir húðina og stillir rakastig hennar, Banana Boat hreint kollagen & Elastin, sem mýkir og stinnir húðina og vinna þannig gegn hrukkumyndun, Banana Boat E-gel fyrir exem og sporiasis, Banana Boat Bað- & sturtugel án skaðlegra sápuefna, græðandi Banana Boataugngel, Banana Boat sólbrunkufestir fyrir Ijósaböðo.m.fl. Nú fæst Banana Boat hreinasta Aloe Vera gelið á markaðnum (99,7%) i 4 túpu- og brúsastærðum. Verð frákr.295,- xftjNdNá HvarfæstGRÆÐANDI LÍNAN? Reykjavik HEILSUVAL Barónsstig 20, ÁRBÆJAR-APÓTEK, BORGARAPÓTEK, BREIÐHOLTSAPÓTEK Borgar- fjöróur BAULAN ísafjöróur STÚDÍÓ DAN Bolungar- víkiSNYRTISTOFAN ARENA HvammstangLFLOTT FORM - María Sigurðardóttir Blönduós: APÓTEKIÐ Sauóárkrókur KÚNST Ólafsfjörður: SIGGA & VALA Dalvík:SUNNA AkureyrLHEILSUHORNIÐ Húsavik HILMA Þórshöfn ÞÓRDÍS KRISTJÁNSDÓTTIR Egils- staðir S M.Á Noskaupstaóur SIGURRÓS RÍKHARÐS- DÓTTIR Reyðarfjörður HEILSURÆKTIN Eskif|örður SÓLBAÐSST. INGUNNAR Fáskrúésf)öróur ÍSBLÓM Höfn APÓTEKIÐ Vestmannaeyjar SÓLSKIN Selfoss HEILSUHORNIÐ Hveragerói VERSLUN NLFÍ Grindavík BLÁA LÓNIÐ VogarSÓLARLAMPI Margrétar Helgadóttur Hafnarfjöróur HEILSUBÚÐIN Kópavogur BERGVAL 15

x

Vera

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.