Vera - 01.04.1993, Page 17
HVAÐ FINNST FÓLKI UM
KVENNABARÁTTUNA?
Hefur almenningur sömu
skoðun á jafnréttismálum og
þeir sem taka virkan þátt í
baráttunni? Er verið að
bcrjast fyrir réttu málunum?
Það iysti mig að vita og fór
þvi að hitta fólk og hlusta
eftir viðhorfum þess. Fyrst
fór ég í framhaldsskóla og
hitti Qórar ungar stelpur og
eina svolítið eldri. Þær voru
varkárar tii að byrja með
enda þvi vanar að vera
kveðnar í kútinn þegar þessi
mál ber á góma.
- Ef við stöndum okkur
vel þykjum við frekar. Það er
aldrei sagt að við séum dug-
legar. Strákarnir eru dauð-
hræddir við að við tökum
stjórnina. Stelpur þykja ekki
klárar. Ef okkur vegnar vel
hljótum við að hafa blikkað
einhvern. Meira að segja kennararnir gera
stundum lítið úr okkur og tala um að verkefnin
séu ekki kvenmannsverk, segja þær. Ég spyr
hvert sé viðhorf þeirra til kvennabaráttunnar.
Þær segjast lítið þekkja til en hafa á
tilfinningunni að það sé mikil reiði og kergja í
þessunr málum. Ein segist þó alltaf taka upp
hanskann fyrir konur og kvenfrelsi, en sé spurð,
jafnt af stelpum og strákum, hvort hún sé í
einhverju kerlingakjaftæði. Sú elsta í hópnum,
sem er 15 árum eldri en hinar, segist vera stolt
af þeim konum sem berjast fyrir jafnrétti vegna
þess að misréttið sé enn rnikið.
- En þessi barátta hefur fengið á sig nei-
kvæðan stimpil, enda er hún oft á neikvæðum
nótum, segir hún. Konur gefast upp ef þær eru
alltaf í mótvindi. Ég er viss um að við gætum
staðið saman og breytt fjölmörgu ef baráttan
fengi jákvætt nafn og jákvæða umfjöllun.
- Það eru líka til mörg ljót orð um konur, segir
önnur. Ef ég heyri karla nota svona orð sný ég
þeim alltaf upp á þá og þeir tiyllast. En þessi orð
eru svo algeng að jafnvel konur nota þau.
Talið berst að heimilis-
störfum og verkaskiptingu.
- Bróðir minn gerir aldrei
neitt heima. Þeir eru svo
verndaðir þessir karlmenn.
Við verðum að ala okkar syni
öðruvisi upp.
- Ég held að mömmur
okkar hafi reynt, en gefist
upp. Við stelpurnar gerum
þetta ósjálfrátt, en það þarf
alltaf að jagast í strákunum.
- En við vantreystum
þeim líka. Við verðum að
sýna þeim traust.
- Foreldrar mínir hafa
alltaf unnið bæði úti og skipt
með sér heimilisstörfunum.
Það tala allir um hvað pabbi
sé duglegur, en það er eins
og enginn sjái mömmu.
- Mínir foreldrar eru
bændur og vinna saman
17