Vera - 01.04.1993, Page 20
HILDUR HELGA SIGURÐARDÓTTIR
skrifar frá London
„Og þú lítur meira að segja
út fyrir að vera ósköp eðlileg
kona, ekki ein af þessum
herskáu feministum...”,
sagði stjórnandi sjónvarps-
þáttarins brosandi við ungu
konuna sem sat á sófanum
hjá honum með barn í
fanginu og brosti vandræða-
lega við athugasemdina.
Og mikið rétt, þetta var
ósköp eðlileg kona að sjá.
Ástæðan fyrir veru hennar í
vinsælum morgunþætti í
sjónvarpssal var sú að hún
hafði leitað réttar síns fyrir
dómstólum eftir að vinnu-
veitandi hennar sagði henni
upp daginn sem hún til-
kynnti honum að hún væri
barnshafandi. Konunni voru
dæmdar bætur og hefði varla verið boðið í
útsendinguna þætti stjórnandanum það ekki
harla góð málalok og fréttnæmt hér í landi. Hann
sá hins vegar ástæðu til að taka sérstaklega
fram í föðurlegum viðurkenningartón, að konan
virtist alveg „eðlileg” þótt hún hefði reynst svona
„herská”.
Nú.jákvæða túlkunin á orðum stjórnandans er
auðvitað sú að maðurinn hafi verið að benda
áhorfendum á að það væri eðlilegt að konur
leituðu réttar síns þegar á þeim væri brotið. Ég
kaus hins vegar að leggja þetta út á versta veg,
enda í miklu meira samræmi við ríkjandi hugs-
unarhátt hér í þessu landi yfirborðsfrjálslyndis
og afturhaldssemi, sem er bara skemmtileg í
ferðamannabæklingum. Eftir margra ára dvöl
hér í Bretlandi er maður farinn að þekkja sitt
heimafólk.
Fyrir norrænar konur af kynslóðinni sem ólst
upp við að feminismi þýddi einfaldlega viðleitni
til að stuðla að jafnrétti kynjanna, eru viðhorf til
þessara mála hér oft með ólíkindum. Hluta má
skrifa á reikning bakslagsins gegn kvenna-
baráttu, sem teygir anga sína víða um þessar
mundir. En auðvitað eru
þarna á ferðinni fordómar
sem aldrei fóru langt. Það
var bara ekki vinsælt að
viðra þá um tíma. En nú er
það allt í lagi, ekki síst þegar
konur eru að verða fyrir
körlum á vinnumarkaðinum
í ört vaxandi atvinnuleysi.
Nærtækasta dæmið er
heimsmynd íjölmiðlanna.
Þeir eru uppfullir af kven-
hatri karlfauska á öllum
aldri, sem virðast ýmist af
ásetningi eða ómeðvitaðri
hræðslu við konur hafa
ákveðið að feminismi felist í
því að konur vilji allar gera
það sama við alla karlmenn
allsstaðar og herskáir Mú-
hameðstrúarmenn vilja gera
við rithöfundinn Salman
Rushdie. Einstaka konur
dansa með og kenna „fem-
20