Vera - 01.04.1993, Qupperneq 22

Vera - 01.04.1993, Qupperneq 22
EKKERT EKKERT GUMMI GAMAN Ég horfi á piltinn og hjarta mitt slær með örlitlum sting. Skyldi hann vera með smokkinn, það þarfaþing? (HB) Aður áttu karlar - einkum hommar - frekar en konur á hættu að smitast af eyðni. En nú smitast sífellt fleirí konur. Hingað til hefur áróðrinum aðallega verið beint að körlum en nýlega fóru alþjóðasamtök gegn eyðni að snúa sér að konum. Ekkert gúmmí - ekkert gaman, stendur á stóru auglýsingaskilti með mynd af fallegri konu sem situr við borð á flottu veitingahúsi með smokk í annarri hendi. Svona auglýsingar má nú sjá víða í Evrópu. Eins og flestir vita berst eyðni- veiran meðal annars með sæði. Til að koma í veg fýrir smit verða konur að sjá til þess að sæðið komist ekki í snertingu við líkama þeirra. Öruggasta aðferð- in er að nota smokk. En eru allir smokkar jafn- öruggir? Neytendasamtök erlend- is hafa prófað þá smokka sem seldir eru og birt niðurstöðurnar í dagblöðum. í kjölfar einnar slíkr- ar neytendakönnunar bönnuðu Frakkar sölu á nokkrum teg- undum af smokkum. Hér á landi hafa ekki verið gerðar neinar slíkar kannanir og fólk kaupir smokka í þeirri trú að þeir standi fyrir sínu, þó eflaust séu þeir misjafnir að gæðum. Garðar Guðjónsson, upplýs- ingafulltrúi Neytendasamtak- anna, segir það ekki að vera á döfinni hjá þeim að gera neytendakönnun á smokkum hér á landi. En ekki er útilokað að samtökin geri slíka könnun sjái þau ástæðu til. Matthías Halldórsson aðstoð- arlandlæknir er þeirrar skoðunar að fólk þurfi ekki að efast um gæði þeirra smokka sem seldir eru hér á landi. Hann segir að all- ir innflytjendur smokka á íslandi leggi nú inn vottorð frá heilbrigð- isyfirvöldum viðkomandi fram- leiðslulands. En til þess að koma í veg fýrir að í framtíðinni verði seldir lélegir smokkar hyggst hann kanna hvort landlæknis- embættið geti veitt smokkum sem eru með vottorð sérstakan gæða- stimpil. Ef þessi hugmynd Matthíasar verður að veruleika ættu konur að geta verið öruggar velji þær smokka með gæða- stimpli landlæknisembættisins. Smokkar duga ekki endalaust og konur verða að athuga dagsetningar á umbúðum smokkanna áður en þeir eru not- aðir. Minna notað af smokkum hérlendis Kannanir á notkun smokka hafa verið gerðar hér á landi en sam- kvæmt tölum landlæknisembætt- isins seljast um 450 þúsund smokkar á ári. „Þetta er eitthvað minni smokkasala en á hinum Norðurlöndunum,“ segir Matt- hías og bætir við að hvetja þurfi fólk til að nota smokka í meira mæli. Aðgangur að smokkum Margir sem tekið hafa þátt í umræðunni undanfarin ár segja að til þess að auka notkun smokksins þurfi að vera auðvelt að nálgast hann. Enn sem komið er eru þeir aðallega seldir í apó- tekum og á bensínstöðvum. í ílestum apótekum þarf fólk að orða kaupin upphátt við af- greiðslustúlkurnar og þó svo að þessar konur séu hinar almenni- legustu finnst mörgum það erfitt. Margir hafa líka velt því fýrir sér hvers vegna ekki er sjálfsaf- greiðsla á smokkum eins og á annarri smávöru s.s. dömubind- um og vitamínum. Einnig hafa komið fram þær hugmyndir að selja ætti smokka í leigubílum og jafnvel hafa þá á boðstólum á ballstöðum og börum endur- gjaldslaust. Það er konum lífsnauðsynlegt að vera ávallt með smokk við höndina og krefjast þess að rekkjunauturinn brúki hann. □ Þórunn Bjarnadóttir 22

x

Vera

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.