Vera - 01.06.1993, Side 34

Vera - 01.06.1993, Side 34
MATUR JÓRUNN SÖRENSEN SKRIFAR GRASÆTAN GERIR SÉR GLAÐAN DAG OG FER Á VEITINGAHÚS Síðastliðlð haust ákvað hópur sem ég vinn með að fara út að borða og á ball á eftir. Flestar fysti að borða í Grillinu, þaðan er svo stutt í Súlnasalinn. Pegar ég pantaði borðið sagði ég að það væri eitt vandamál — ein okkar væri græn- metisæta, það væri reyndar ég sjálf. Ég skýrði elskulegri af- greiðslustúlkunni frá því að þegar þessi sami hópur hefði borðað í Grillinu fyrir þremur árum hefði ég fengið hræðileg- an mat. Það hefði verið kallað „gratínerað grænmeti”. Ofsoð- ið, en samt seigt, mest brokkóli minnir mig, drekkt í ijóma og feitum osti svo að mér var flökurt allt kvöldið. Stúlkan var ósköp leið að heyra þetta, en sagði að ég þyrfti ekkert að óttast. Nú væru margir nýir grænmetis- réttir á boðstólum. Ég varð hin glaðasta og sagði að ég vildi auðvitað fá eitthvað ljúf- fengt þegar ég færi út að borða og hafa eitthvert val. GRILLIÐ Við mættum i okkar finasta pússi með glampa gleðinnar í augum. Á matseðl- um kvöldsins, sem ekki voru færri en tveir, var enginn grænmetisréttur. Ég sagði þjóninum, in- dælis ungmenni, frá samtalinu við stúlkuna. Hann varð undarlegur á svipinn og sagðist ætla að tala við sína menn. Fór og kom aftur og spurði hvort ég vildi gratínerað grænmeti! Nei, það vildi ég ekki. Þjónninn varð ráðvilltur og ætlaði aftur að tala við sína menn. Kom aftur og sagði glaður að þeir ætluðu að búa til eitthvað sérstakt fyrir mig. Ég sagðist hlakka til að fá þennan spenn- andi, dularfulla rétt. Þegar diskurinn var borinn fyrir mig var eftir- farandi á honum: Ein bökuð kartafla, einn soð- inn tómatur, örfáar, soðnar, örsmáar gulrætur, eitthvað lítið og gult sem líka var notað til skreyt- inga og pínulítil brokkólígrein. Þessu var skellt fyrir framan mig og þjónninn þaut í burtu. Við skellihlógum allar. Engin þóttist sjá þarna spennandi rétt. Þetta var einungis samsafn af meðlæti raðað á disk. Hinar höfðu fengið sinn mat og fóru að borða. Ég ákvað að snerta ekki diskinn minn með skreytingunum en bíða. Þjónninn vomaði í kringum mig. Loks gat hann ekki á sér setið, kom og spurði hvort eitthvað væri að. Ég sagðist vera að bíða eftir matnum — ég væri bara búin að fá meðlætið. Hann kyngdi og spurði hvort ég hefði ekki pantað grænmetisrétt. Jú, einmitt, svaraði ég og brosti mínu blíðasta. Þjónninn fór. Yfirþjónninn kom. Hafði ég ekki pantað græn- metisrétt? Jú, einmitt, svaraði ég og brosti enn meira. Yfirþjónninn stóð eins og þvara. Þá nennti ég ekki meiru og útskýrði fyrir honum að það vantaði sjálfan matinn — eins og allir sæju væri að- eins meðlæti og skreytingar á disknum. Þjónninn spurði hvort ég vildi pasta með græn- meti í ijómasósu. Ég sagðist frábiðja mér ijómasósuna þeirra, en bað þá að skera grænmeti fint, léttsteikja það í örlítilli olíu, krydda með grænmetiskiyddi og bera fram með pastanu. Manninum létti og hann fór. Það sem ég fékk var örlítil grænmetistutla, brimsölt og gegnsósa í olíu plús pastað. ÝMSIR STAÐIR í REYKJAVÍK Fýrir skömmu ákváðum við tvær samstarfskonur að halda veglega upp á árangur í starfl okkar með því að fara út að borða. Minnug ofan- greindra hörmunga hringdi ég á nokkra staði og spurði hvort þeir hefðu grænmetisrétti á matseðli sínum. Flestum brá og varð fátt um svör. Þeir heið- arlegustu sögðu hreinlega „ekkert”. Sumir sögðust geta útbúið eitthvað t.d. „skorið niður grænmeti og appelsín- ur!" Ég skaut því inn að það væri meðlæti — ég vildi mat. Einn sagðist myndi leggja sig fram — hann hefði flett bók- inni „Grænt og gómsætt”. Á öðrum stað var boðið upp á tvær tegundir af salati og heitt grænmeti. Þegar ég spurði hvað það væri var svarið „eitt- hvað í einhverri sósu”. Einn staðurinn hafði grænmetisfor- rétt sem virtist vera lystugur og geta orðið fullkomin máltíð ef hann yrði margfaldaður. Á einum staðnum var mér tekið með kostum og kynjum og ég fékk að vita að hjá þeim væri sko ekki farið í eldhúsið og bölvað yflr „þessu fólki”. Nei, kokkurinn legði sig í líma við að gera „þessu fólki” til hæfls og um dagínn hefði hún útbú- ið rétt úr rófum í haframjöls- hjúp. Það hljómaði vel og má vera að ég prófi það einhvern daginn. HÓTEL HOLT Við ákváðum samt, vinkon- urnar, að flotta okkur virki- lega og fara á Holtið. Það var ár og dagur síðan við höfðum farið þangað og þar sem það

x

Vera

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.