Vera - 01.06.1993, Síða 38

Vera - 01.06.1993, Síða 38
HVERS VEGNA ÓTTAST KARLMENN KVENNAHREYFINGUNA? SPYR METSÖLUHÖFUNDURINN SUSAN FALUDI í NÆSTU BÓK SINNI I bókinni Backlash sýnir Susan Faludi með ótal dæmum hvernig unnið var gegn konum og kvennahreyfingunni í Bandaríkj- unum á síðasta áratug. En hvers vegna flnnst karlmönnum kvennabaráttan svona hættuleg? Þeirri spurningu ætlar Faludi að reyna að svara í næstu bók, segir í viðtali við hana sem birtist ný- lega í sænska blaðinu Dagens Nyheter. — Það er mikið ritað og rætt um „karlmannsímynd í kreppu” og hversu erfiðlega karlmönnum gangi að fóta sig í karlmanns- hlutverkinu. Kannski er þessi kreppa karlmennskunnar goðsaga líkt og margt það sem fjölmiðlar skrifa um konur, segir Susan Faludi. I næstu bók ætlar hún að rannsaka þetta til þess að reyna að skilja viðbrögð karla við kvennahreyfingunni. í bókinni Backlash skráði hún staðreyndir, en nú leitar hún svara. Hún seg- ir að sífellt fleiri spurningar vakni eftir því sem hún kafi dýpra í við- fangsefnið og nú sé hún farin að efast um að hún hafi orðað spurningar sínar rétt. Kannski er alls ekki rétt að velta þvi fýrir sér hvers vegna karlmönnum standi ógn af kvennahreyfingunni? Hún segir frá fýrirtæki sem í 20 ár hefur gert skoðanakannanir um hvað karlmennska sé í aug- um beggja kynja. I öll þessi ár hefur algengasta skilgreiningin verið sú sama: Karlmenni er góð fýrirvinna sem á fjárhagslega ósjálfstæða konu. Þetta er ímynd karlmennskunnar jafnvel þó að einungis 7% bandarískra heimila hafi eina fýrirvinnu. Hvernig túlkar Faludi það? — Ég held að þetta sé ómeðvit- uð hugmyndafræði sem orðið hefur til í kapítalísku þjóðfélagi til þess að karlmaðurinn geti af- borið að vinna ógeðfellda verk- smiðjuvinnu. íklæddur fýrir- vinnuhlutverkinu verður hann góður starfskraftur sem alltaf er tilbúinn að vinna aukavinnu þeg- ar fýrirtækið þarf á að halda, seg- ir Susan Faludi og nefnir svo aðra rannsókn sem gerð hafi verið á útivinnandi konum og körlum. 38

x

Vera

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.