Vera - 01.07.1994, Qupperneq 3
<2
E
AÐ EIGA SYSTUR
Systir, sem þú eignaðist aldrei,
er ekki neitt. Sem þú átt og er
þér nátengd. Einhver sem þú
valdir ekki eins og aðra félaga en
fylgir þér samt, kannski alveg á
leiðarenda. Hún er einhver sem þú
hefðir ef til vill getað orðið, því í
henni búa sömu gen. Einhver sem
þekkir þig betur en nokkur annar og
veit hvernig þú bregst við þegar á
reynir.
Hún er eins, og þó, þær eru líkar
útlits, enda alltaf verið að rugla
þeim saman. Og fólk dregur
ályktanir, því margt er líkt með
skyldum. En þær eru fimm ólíkar
persónur. Þegar þær voru litlar voru
þær næstum alltaf sarnan og í sínum
kvenlega meirihluta drottnuðu þær á
heimilinu. Það sagði að minnsta
kosti eldri bróðirinn og pabbinn
vonaðisl eftir syni í annað hvert
skipti sem ný dóttir leit dagsins ljós.
Eins klæddar, þær yngri í fötunum
af þeim eldri, sem pössuðu og fóru
snemma að bera ábyrgð. Voru
ávarpaðar sem hópur, pakki sem ég
tilheyrði, besti félagsskapur í heimi
þegar maður var ekki of lítill til að
fá að vera með. Þær sem þekktu
mömmu og pabba jafn vel og ég,
ekki bara góðu hliðarnar. Mamma
glöð og best allra í heimi, mamma
þreytt og illa upplögð. Minning-
arnar, gömlu draugarnir og mynd-
irnar í fjölskyldualbúminu, svart
hvítar og snjáðar. Þær eigum við
saman.
Afbrýðisemi, en ekki mikil. Það
var aldrei talað um það. Er pabbi
betri við hana en mig? Fær hún að
vera oftar ein með mömmu en ég
eða gistir hún oftar hjá ömmu?
Félagi sem deildi flestu með mér en
gaf á móti af sjálfri sér og stóð með
mér gegn foreldrunum ef á þurfti að
halda.
A unglingsárunum urðu þær
skotnar í sömu strákunum og sömu
strákarnir urðu skotnir í þeim, þó
sjaldnast væri það gagnkvæmt. Ég
varð líka gelgjuleg eins og þær og
fékk góð ráð, innrætingu. Sumt var
sko smart og annað var alls ekki
smart.
Umhyggjusemin breytist ekkert
með tímanum. Ég verð alltaf litla
systir þó svo við fáum allar pláss á
elliheimili. Eða dveljum saman á
sólarströndu og fáum ellistyrkinn
sendan inn á bankareikning úti.
Hvaða leið sem ég vel á ég vináttu
þeirra vísa. Stuðningur og samhjálp.
A stórum stundum þegar áfanga er
náð, við fæðingar, giftingar, afmæli.
A erfiðum stundum, við veikindi,
dauðsföll og hjónaskilnaði. Og líka
þegar ekkert gerist get ég blandað
geði mínu við þeirra. Sagan,
reynslan, tengir órjúfanlegum
böndum. Tilvist allra er grein af
sama meiði, sama ástin kom okkur í
heiminn.
Systirin er eins og spegilmynd.
Þegar ég var barn horfði ég á stóru
systur breytast í konu og sá sjálfa
mig í hillingum. í þeirri stuttklipptu
sé ég sjálfa mig með nýtt útlit.
Börnin mín eru lík þeirra börnum.
Nú er ég farin að sjá sjálfa mig
eldast og hrörna í þeim eldri. I
augum systra minna er rnargt sem
líka má sjá í mínum. Ber er hver að
baki nema sér systur eigi. n
Vala S. Valdimarsdóttir
Skrifstofustýra Veru
BLS.
1— Hið íslenska kvenfélag 6
Sveitarstjórnarkosningar 9
ö} Mikill sigur fyrir Kvennalistann 16
Lýóveldió frá sjónarhóli kvenna 24
w—m Kvennakrimmar 27
IL Skammarleg og öryggislaus tilvera 30
>- Tengslanetiö Köngullóin 32
Aö skrifa meö myndavélinni 33
Veganesti í íslenskri náttúru 37
z X til frelsis 40
Kjara- og velferöarmál 42
u. Mæöur og dætur 45
Ul Plús og mínus 47