Vera - 01.07.1994, Qupperneq 28
komu fram á sjónarsviðið a.m.k. tuttugu kvenuppljóstrarar
og hugtakið „lady detective" varð til. Margar þeirra voru
drifnar áfram af áhuga á að hreinsa nafn eiginmanns eða
elskhuga. Sú gerð sem við þekkjum best eru gamlar pip-
arjómfrúr, sem forvitnin rekur áfram og þær reynast oft
skjóta háttsettum lögreglumönnum ref fyrir rass við að upp-
lýsa flókin og erfið sakamál. Þessar konur voru engin ógnun
við karlímynd þessara sagna. Nægir þar að minnast hinnar
ógleymanlegu Miss Marple. Einnig er rétt að riija upp að
höfundurinn Agatha Christie var barn síns tíma og skil-
greindi sjálfa sig íyrst og fremst sem eiginkonu og síðan
sem rithöfund þrátt fyrir að höfundarlaun hennar næmu yfír
milljón punda á ári við andlát hennar.
Hin staðlaða kvenímynd sakamálasagnanna
Það eru nú um 60 ár síðan Dorothy Sayers töfraði Harriet
Vane fram úr penna sínum og síðan hafa sífellt nýjar per-
sónur af hennar tagi komið fram á sjónarsviðið. En hvernig
er hinn dæmigerði kvenuppljóstrari? Sumar þeirra eru
menntaðar sem lögfræðingar, aðrar eru fyrrverandi löggur
eða hafa starfað sem öryggisverðir en starfa nú sem einka-
spæjarar. Enn aðrar eru blaðamenn, háskólakennarar eða
jafnvel læknar sem einhverra hluta vegna blandast inn í
sakamál. Þessar konur vinna yfírleitt sjálfstætt, þær eiga oft
blaðamenn eða lögreglumenn að vinum og þannig komast
þær yfír gagnlegar upplýsingar. Þær eru duglegar aó nýta
sér alls konar gögn sem þær beita oft brögðum til að komast
yfír, liggi þau ekki á lausu.
Þessar konur halda fast í sjálfstæði sitt, þær eru yfirleitt
ógiftar eða fráskildar, barnlausar og án skuldbindinga við
annað fólk. Ekki verður mikið vart við ættingja, stundum
bregður þó fyrir gömlum vinum en oft er eins og gamall
granni sé sá sem stendur þeim næst. Þær eiga þó e.t.v. móð-
ur og systkini, en þau eru þó yfirleitt í mörg þúsund kíló-
metra ljarlægð. Einstöku sinnum eiga þær hund, en þá jafn-
vel í félagi við aðra, því ekki er á að stóla að þær geti gefíð
hundi að éta eða viðrað hann þegar annimar kalla. Þá eru
þær horfnar á brott og sinna engu öðru en kreijandi verkefni
sínu. Ein þeirra, Kinsey Millhone, gengur meira að segja
HÖFUNDARNIR
OG HETJURNAR
Linda Barnes - Carlotta Carlyle
Carlotta er fyrrverandi lögga, nú einkaspæjari í Boston, en ekur
leigubíl í hjáverkum og notar það starf sem yfirskin við snuðrið.
Hún hefur aðgang að lögreglunni i gegnum fyrrum yfirmann sinn
og vin. Hún á gamalt hús sem hún erfði eftir frænku sína og syngur
„blues“ þegar hún er einmana.
Meg O'Brian - Jessica James
Jessica James er rannsóknarblaðakona í Rochester í New York
fylki. Hún er um þrítugt, einhleyp, peningalaus, á gamlan bíl og er
alveg sama um húsverkin. Hún á vin sem er lögga. Hún er ekki
mjög vinsæl í vinnunni, hringir oft og meldar sig „hressa“ og mæt-
ir þess vegna ekki þann daginn. Hún er þrjósk og vill gera alla hluti
sjálf, drekkur allt of mikið, en i seinni bókum hefur hún farið í á-
fengismeðferð og er að berjast við að halda sér þurri. Elskhugi
Jessicu er mafíuboss sem vill endilega fá hana í vinnu fyrir sig, en
hún vill ekki missa sjálfstæði sitt og afþakkar. Hún á líka aðra vini
úr undirheimunum, en þrír strákar í hverfinu hafa tekið að sér að
vernda hana og hjálpa henni í málum sem hún flækist inn í.
Patricia Cornwell - Kay Scarpetta
Dr. Kay Scarpetta las læknisfræði og síðan lögfræði og starfar nú
sem réttaryfírlæknir í Richmond, Virginia. I starfí sínu tekur hún
beinan þátt í rannsókn morðmála og fer oft að ystu mörkum starfs-
sviðs síns til að leysa gátuna. Kay er fráskilin og býr ein en hefur
ráðskonu. Hún hefur lítið samband við ijölskyldu sína að systur-
dóttur sinni undanskilinni og er vinafá. Gamall kærasti ífá skólaár-
unum skýtur þó upp kollinum öðru hverju og Ijóslega lifír enn í
gömlum glæðum.
Amanda Cross - Kate Fansler
Kate er prófessor í bókmenntum við háskóla í New York borg. Hún
leiðist út í spæjarastörfín þegar samstarfskona hennar er ásökuð um
morð og eftir það er eins og þau elti hana uppi. Inn í sögumar flétt-
ast barátta hennar og annarra kvenkennara við karlveldið í háskól-
anum, og morðin eru iðulega framin í því umhverfí. í bókunum er
mikið um bókmenntafræðilegar skírskotanir, eins og titill einnar
þeirra The James Joyce murder gefur til kynna. Kate er ógift í
fyrstu bókunum en í einni sögunni fellst hún á að giftast Reed lög-
fræðingi, en þó ekki fyrr en eftir töluverðar vangaveltur og samn-
ing um að fá að halda sjálfstæði sínu í hjónabandinu.
Sue Grafton - Kinsey Millhone
Kinsey er fyrrverandi lögga, nú löggiltur einkaspæjari í Santa Ter-
esa, 95 mílur fyrir norðan Los Angeles. Hún vinnur sjálfstætt og er
með skrifstofu hjá tryggingafélagi sem veitir henni töluvert af
verkcfnum sem snúast um tryggingasvik. Kinsey er skemmtileg
týpa, auðvitað einfari, með óendanlcga sjálfstæðisþörf en síblönk
og alltaf í vandræðum með að borga reikninga. Frásagnarstíll höf-
undar er óvenju beinskeyttur og hlutlægur, fullur af dagsetningum
og tölulegum lýsingum.
Karen Kijewski - Kat Colorado
Kat er fyrrverandi barþjónn, nú einkaspæjari í Sacramento í Kali-
forníu. Einhleyp en á að vini löggu frá Las Vegas. Hún á lítið ein-
býlishús og býr þar með áströlskum íjárhundi og ketti. Hún hefur
drepið mann í sjálfsvörn og það veldur henni erfíðlcikum sem hún
neitar að leita hjálpar við. Utan kærastans virðist hún ekki vina-
mörg, það er helst að fyrir bregði vinkonunni Charity.