Vera - 01.09.1995, Page 3
Umhugsunarefni höfundar pistils aö þessu sinni er launamisréttiö sem ervið lýöi ílslensku þjóö-
félagi. Launamisrétti milli karla og kvenna. Misrétti vegna þess aö karlar fá hærri laun en kon-
urfyrir sömu störf. Um þessa óheillaþróun er mikiö rætt en lítið aö gert. Vissulega reiöast sum-
ir og á kaffistofum og viö eldhúsboröin hneykslast einhverjir, svona upþ og ofan. Sumir hafa á
oröi að þetta sé íslensku þjóöinni til vansæmdar. Að slíkt skuli viögangast I þjóöfélagi sem hef-
ur orö á sér fyrir sterkar og sjálfstæðar konur sem halda eigin nafni alla ævi. Hvers vegna I
ósköpunum?
Könnun Félagsvlsindastofnunar Háskóla tslands frá því I febrúar á þessu ári staöfesti launa-
misréttiö. Þar tala staöreyndirnar sínu máli: konur fá yfir 30% lægri laun en karlar fyrir sömu
vinnu. Þaö sem vekur kannski einna helst athygli I þessari könnun er aö körlunum finnst ástand-
iö bara allt I lagi. Konurnar séu jú aö sækja I sig veörið, þetta sé semsé allt aö koma. Karlar I
stjórnunarstööum hjá hinu opinbera voru til dæmis spurðir hvort þeim fyndist að stofna ætti ein-
hverskonar jafnréttisnefnd á vinnustööum sem stæöi vörö um stöðu kvenna, tlmabundiö aö
sjálfsögöu. Þeir töldu sllka nefnd meö öllu óþarfa, konurnar spjöruöu sig eins og karlarnir. Þess
væri áreiöanlega ekki langt aö blða aö þær stæöu þeim jafnfætis I launum og heföu sama aö-
gang og þeir aö hærri stööum! Þetta viðhorf karlanna stangast hins vegar á viö niðurstöður
könnunarinnar. Þar kemur fram aö staöa kvenna, einmitt hjá hinu opinbera og þá sérstaklega I
stjórnunarstööum, er einna verst. Þær standa I staö.
Ég er hrædd um aö frumkvöðlar íslenskrar kvennabaráttu væru ekki ánægöar meö þessa
þróun. Varla þarf aö minna á aö einungis um 25% þingmanna eru konur, ein kona ráöherra og
ein kona hæstaréttardómari. Samt hafa íslenskar konur haft kosningaréttl áttatíu ár, fleiri kon-
ur en karlar stunda nám viö Háskóla íslands og lang flestar íslenskar mæöur eru útivinnandi.
Og gleymum ekki aö I meir en fjóra áratugi hafa íslendingar staðfest hvern sáttmála Alþjóöa-
vinnumálastofnunarinnar (ILO) á fætur öörum um launajafnrétti kynjanna og tslensk stjómvöld
því skuldbundiö sig aö viðhafa launajafnrétti I landinu fyrir lifandis löngu. Þess vegna er mér ger-
samlega hulin ráögáta hvað það er sem réttlætir þaö aö kona fái lægri laun en karl fyrir sömu
vinnu. Þaö er beinlínis mannréttindabrot.
Aö jafnaði gerist lltiö I jafnréttismálum fýrirtækja og stofnana nema þar sé kona við stjórn-
völinn. Til marks um þaö er aö hjá Hans Petersen hf. er kona forstjóri og fékk fyrirtækið viður-
kenningu Jafnréttisráös á síðasta ári. Viöurkenninguna fékk fyrirtækiö fyrir þaö hve mikinn frama
konur höföu hlotið innan þess, fyrir hvatningu til kvenna og hve margt var gert til aö auðvelda
þeim atvinnuþátttöku. Og eins og nærri má geta þekktist þar ekki launamisrétti. Nýjasta dæm-
ið hjá því fyrirtæki er aðgerðir þess I kennaraverkfallinu síðastliðinn vetur. Þá var þegar I staö
sett upp dagskrá fyrir skólabörn starfsmanna I húsnæöi fyrirtækisins og var hún I einu og öllu
skipulögö innan fyrirtækisins og rekin á kostnaö þess. Kona forstjóri!
Annaö dæmi, einnig mjög ánægulegt, er hjá Reykjavíkurborg, enda kona borgarstjóri. Þeg-
ar auglýst er eftir starfsfólki I stjórnunar- eöa ábyrgöarstöður á vegum borgarinnar þá er
smáklausa neðst I auglýsingunni. Þar er umsækjendum bent á aö þaö sé stefna borgaryfirvalda
aö auka hlut kvenna í stjórnunar- og ábyrgöarstööum á vegum borgarinnar, stofnana hennar og
fyrirtækja. Höfundur pistils varvitni aö því um daginn þegar þrlr karlmenn lásu þessa auglýsingu
I fyrsta skipti. Þeir urðu orölausir. Átti nú bara aö ráða konu af því aö hún er kona! Þeir sáu fyr-
ir sér innrás kvenna I stjórnunarstööur þar sem þeim - körlunum - væri ýtt til hliöar. Og þá kem-
ur aö ööru: Þeir snúa bökum saman, samtryggingin tekur við og þeir hleypa stelpunum ekki aö.
Baráttan fyrir jafnrétti kynjanna tekur engan enda. Við þurfum stööugt að minna hvert annað á
mikilvægi þess að ala syni okkar og dætur upp meö sömu markmið I huga. Viö verðum aö veita
þeim kærleik og hlýju og umfram allt hvatningu og efla með þeim sjálfstraust. Og síöast en ekki
síst verðum viö aö segja þeim aö sitja aldrei þegjandi hjá ef þau veröa fyrir launamisrétti. Þaö
er I okkar höndum hvort úr rætist.
Jóhanna Vigdís Hjaitadóttir
Höfiindur erfréttamaöur hjá Sjónvarpinu.
■I- 1- Hvað gerist í Peking 33
fastir liöír
Leiðari 2
Pistill 3
Athafnakonan 4
Frumkvöðullinn 13
Matur 39
Amnesty international 42
Plús og mínus 43
Úr síðu Adams 46
viðtöl O
Valgerður H. Bjarnadóttir 20
Ásdís Jenna Ástráðsdóttir 24
Margrét Edda Stefánsdóttir 25
greinar
Konur við völd 9
Þvottalaugarnar 14
Þöggun kvenraddarinnar 16
Meðlagsraunir skattgreiðenda 28
Hver á að gæta systur minnar? 30
Það er gott að vera í kvennapólitík 40
bækur
Didda 44 o
Þóra Jónsdóttir 45
annað
Ritstýra kvödd 7
Húsráð 17
Konur og kínverskar dyr 47
fnisyfirlit