Vera - 01.09.1995, Page 9
Það sem Reykjavíkurlistinn lagöi megin-
áherslu á í baráttunni um völdin í borginni
var það að bæta stöðu kvenna, barna og
fjölskyldna og hafa málefni þeirra sjaldan
eða aldrei fengið annað eins mikilvægi. Nú
er liðið nokkuð á annað ár frá því að
Reykjavíkurlistinn komst til valda í Reykja-
víkurborg og því forvitnilegt að grennslast
fyrir um það hverju talsmenn hans telja sig
hafa komið til leiðar, eða vera að vinna að,
konum til hagsbóta. Og því spyr VERA nú:
Hvernig birtist femínisminn í störfum borg-
arstjórnar Reykjavíkur?
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri:
vilium rétta
hlutKvenna
„Þegar svona er spurt þarf náttúrlega fyrst aö
skilgreina hugtakiö femfnisma. Ef litiö er á
femínisma sem heildstætt hugmyndakerfi
sem þurfi aö komast f framkvæmd þá er nátt-
úrlega ekki veriö aö vinna aö því í borgarstjórn
Reykjavfkur á sama hátt ogt.d. þeim tilraunum sem
gerðar hafa veriö f ýmsum löndum til aö koma á sósíal-
isma. Það væri enda dæmt til aö mistakast. Ég Ift á fem-
ínismann sem hugarfar og sýn til samfélagsins og meö þá
skilgreiningu aö leiðarljósi er unnt aö sjá aö femínisminn
er vfða aö verki f borgarstjórn og aö ýmislegt af því sem við
erum aö reyna aö gera mótast af femínískum hugmyndum.
Félagsmálastofnun Reykjavfkur hefur t.d. veriö aö breyta
fjárhagsaðstoö sinni meö það aö markmiði að rétta hlut
kvenna og þá ekki sfst einstæðra mæðra sem leita til
stofnunarinnar. Þeim er nú reiknaður ákveðinn Iffeyrir sem
barnabætur og barnalífeyrir er ekki dreginn frá. Nú er litiö
svo á aö þessar bætur séu ætlaöar til þess aö sjá fyrir
r ykjavík, ó reykjavík...