Vera - 01.09.1995, Blaðsíða 17
gpttráð
við erfiðrifœðingu
Oléttar konur heyra oft ýmsar sögur um fæðingar og verða
þær oft svæsnari eftir því sem nær dregur fæðingunni. Þessi
hafði þó alveg farið framhjá mér þar til ég leit í Öldina okkar
fyrir skömmu og hefði hún þó eflaust getað komiö einhverri
fæðandi konunni að góðu gagni. Fréttin er frá árinu 1759
segir sitthvað um aldarfarið og stöðu kvenna,
vinnukvenna:
„Fágætur atburðurgerðistí brúðkaupsveizlu að Þingeyrum, er
Halldór Vídalín, sonur Bjarna sýslumanns Halldórssonar,
gekk að eiga Ragnheiði Einarsdóttur frá Söndum T Miðfirði.
Skömmu áður en veizlan hófst, kenndi vinnukona þar á
staðnum, Málfriður Sighvatsdóttir að nafni, léttasóttar. Gekk
henni fæðingin mjög erfiðlega, svo að ekki var annaö sýnna en
hún myndi deyja, og vildi hagur hennar ekki greiðast, hverra úr-
ræða sem leitað var.
Nú er það gömul trú, að úr rakni fyrir konum í barnsnauð, ef þær eru færöar í volga flík af manni þeim, er gert hefur þeim barnið. Mái-
friður eignaði Halldóri brúðguma krógann, og varð það því þrautaráðið að kalla hann af brúðarbekknum, þegar veizlan stóð sem hæst,
og láta hann fara úr skyrtu sinni. Þegar Málfriður hafði verið færð í skyrtu Halldórs, brá líka svo við, að hún varð léttari."
sbj
thtpöint 1200 SNÚNINGA ÞVOTTAVÉL. llUlfJUÍnt MJRRKARI, TEKUR 5 KG. ® GENERAL ELECTRIC ÞVOTTAVÉL, TEKUR 9 KG. ©GENERAL ELECTRIC ÞURRKARI, TEKUR 7 KG.
GENERAL ELECTRIC ÉknnM* E1
HEKLA
og söluaðilar um land allt
dotturtyrirtæki General Electric