Ritmennt - 01.01.1999, Síða 45

Ritmennt - 01.01.1999, Síða 45
RITMENNT ÞORGEIR í LUNDINUM GÓÐA Reykjavíkurdeildar yfirleitt á bandi Finns og Rafns svo að samskipti deildanna urðu stirð. Magnús Stephensen gerði sér enga tæpitungu þegar hann greindi Finni frá af- stöðu sinni til hinna nýju valdhafa í Hafnar- deild í bréfi 26. ágúst 1831: Að íslands vísindum, heiðri eða heill þó lítið þar- við framfari finna allir vel og ærlega sinnaðir. Og nú situr hjassinn og kálfsheilinn Þorgeir í forsæti Bókmenntafélagsins, undir leiðsögu Fúsa Eiríks- sonar [Vigfúsar Erichsens] og unglingsins Bald- vins, og gleðst eg yfir elclci lengur að hafa þá van- virðu, sem hver ærlegur íslendingur má finna, að teljast félagi svo lagaðs og stýrðs félags, en hafa í tírna sagt mig úr því, áður en ykkar Rasks heið- urlega 15 ára stjórn varð við þvílíkt val svo skammarlega óvirt.30 í bréfi frá Finni til Bjarna Þorsteinssonar 31. mars 1832 kemur skýrt fram að honum þótti Þorgeir eltki fræðimannlega vaxinn, enda hafði stjórn Fornfræðafélagsins tekið þá ákvörðun vorið áður að hætta við útgáf- una á Islendinga sögum sem Þorgeir og Þor- steinn voru byrjaðir á og snúa sér í þess stað að útgáfu á Grönlands historiske Mindes- mærker sem Finnur og Rafn höfðu ráðgert að gefa út. í bréfinu komst Finnur svo að orði: Nú í vetur er eg algjörlega sannfærður orðinn um fullkominn óduganlegleika G[uðmundsen]s til að leysa kritiskar útgáfur af hendi, með að gegn- umlesa nokkra staði Landnámu, sem mest við komu í einhvern máta Grænlendingasögum.31 Þess ber að gæta að þegar Finnur skrifaði þetta var Raskdeilan að fjara út. Utgáfur Þorgeirs og Þorsteins hafa jafnan verið dæmdar lakastar af því sem Fornfræðafélag- ið gaf út eins og áður getur og í þeim flokki var Landnámuútgáfan sem Finnur víkur hér að. Útgáfur á eigin vegum Þorgeir hafði fleiri en eitt járn í eldi á stúd- entsárum sínum þegar litið er til bókaút- gáfu. Árið 1820 kom út Vejledning til and- ægtig og forstandig Læsning af det Nye Testamente eftir Rasrnus Moller. Gunn- laugur Oddsen, sem þá var orðinn cand. theol., og guðfræðinemarnir Þorgeir og Þor- steinn E. Hjalmarsen tóku sér fyrir hendur að snúa ritinu á íslensku. í bréfi til Bjarna Þorsteinssonar síðasta apríl 1822 getur Þor- geir þess að þeir hafi í sameiningu íslenskað ritið.32 Jens Moller ritaði formála og verkið kom út í tvennu lagi 1822-23 og hét þá Leidarvísir til ad lesa hid Nýa Testament med gudrækni og greind, einkum handa ólærdum lesurum. I bréfi til Bjarna Þorsteinssonar 28. sept- ernber 1823 vék Þorgeir aftur að Leidarvís- inum og sagði að honum hafi verið allvel tekið á íslandi, en best á Austurlandi. Nær öll eintök hafi selst sem þangað fóru og menn biðji um meira.33 Gunnlaugur Oddsen og Þorgeir létu ekki staðar numið með því að gefa Leidarvísinn út. Næsta viðfangsefni var undirbúningur að nýrri útgáfu á Vídalínspostillu. Enn sem fyrr veita bréf Þorgeirs til Bjarna Þorsteins- sonar nokkra vitneskju unr þann vanda er þeir áttu við að etja. Þorgeir greindi Bjarna Þorsteinssyni frá hinni fyrirhuguðu útgáfu og sendi áskrifendalista með bréfi 19. maí 30 Magnús Stephensen. Brjef til Finns Magnússonar, bls. 99. 31 Hafnarstúdentar skrifa heim, bls. 64-65. 32 Lbs 339 b fol. 33 Sama handrit. 41
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152
Síða 153
Síða 154
Síða 155
Síða 156
Síða 157
Síða 158
Síða 159
Síða 160
Síða 161
Síða 162
Síða 163
Síða 164
Síða 165
Síða 166
Síða 167
Síða 168
Síða 169
Síða 170

x

Ritmennt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ritmennt
https://timarit.is/publication/859

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.