Vera


Vera - 01.06.1996, Blaðsíða 2

Vera - 01.06.1996, Blaðsíða 2
I£iðari FORSETAKOSNINGARNAR Þegar þetta er ritað er lokasprettur kosningabaráttunnar að heljast og fyrsti þáttur ríkis-sjónvarpsins með forsetaframbjóðendum nýskriðinn af skjánum. Eitthvað minnti nú uppstillingin á rannsóknarréttinn á Spáni forðum daga - blaða- og fréttamenn eins og dómarar andspænis fórnarlömbum sínum, pund- andi á þau sínum misgáfulegu spurningum og mikið hamastí aukaatriðunum. Og þarna sátu þeir glæsilegu einstaklingar sem bjóða sig fram til forseta og máttu nudda sér upp úr smáatriðunum f stað þess að hefja sig á það heim- spekilega flug sem þeir hafa alla burði til veröi þeir einhvern tíma í kosninga- baráttunni spuröir áhugaverðra spurninga. Blaðamennirnir gerðu mikið mál úr skoðanakönnunum og fannst greinilega kominn tími til að leggja niður kosningar og láta Gallup bara afgreiða málið, ef marka má hvernig þeir þjösnuðust á því aö konurnar drægju framboö sfn til baka. Túlkun þeirra á skoðanakönnunum var ekki sú að tæpur helmingur þjóð- arinnar vilji Ólaf Ragnar í embætti forseta og u.þ.b. fjórðungur Pétur Hafstein heldur túlkuðu þeir kannanirnar þannig að 80% þjóðarinnar vilji karlmann á Bessastaði. Þar með eru menn, sem fæstir hafa mátt heyra á það minnst að kjósa beri konur af því að þær eru konur og það er gott fyrir aörar konur og eyk- ur líkur á að einhvern tíma náist jafnrétti kynjanna, nú farnir að púkka undir þá stefnu aö kjósa þeri eftir kynferði: nú á sem sagt að kjósa karla af því að þeir eru karlar. Heldur eru þetta nú undarleg skilaþoð þegar fráfarandi forseti er kona sem á að baki sextán ára glæsilegan feril. Hlutverk forsetamaka bar einnig á góma I þessum makalausa sjónvarpsþætti og er nú engu líkara en að það sé oröið eitthvert stórmál þótt fráfarandi forseti hafi gegnt starfi sínu með sóma og ekki þurft á slíku viðhengi að halda. Heldur finnst mér nú raunalegt að þurfa að horfa upp á frambjóðendur og fjölskyldur þeirra í sjónvarpsaugiýsingum eins og hver annar ameríkani en eins og Guðrún Pétursdóttir benti réttilega á njóta „sumir" frambjóöendanna þeirra forréttinda að hafa verið skjám landsmanna um árabil á meðan aðrir eru nær óþekktir. Sjónvarp allra landsmanna hefði getað dregið úr þessari áþján ef það hefði lát- ið gera kynningarþætti um hvern og einn frambjóðanda eða a.m.k. léð hverjum og einum ákveðið pláss í dagskránni, þeim að kostnaðarlausu rétt eins og stjórnmála- flokkunum í öðrum kosningum. Þá hefði líka mátt draga eitthvað úr kostnaðinum sem fór greinilega mikið fyrir brjóstið á þeim blaða- og fréttamönnum sem önnuðust ofan- greinda yfirheyrslu. í þessari VERU fá forsetaframbjóðendurtækifæri til aö tjá sig um hvað þeir muni gera til að styðja baráttu kvenna fyrir afnámi kynjamisréttis og Guðný Guðbjörnsdóttir þing- kona veltir fyrir sér hvort það skipti máli fyrir kvennabaráttuna aö forseti lýð- veldisins sé kona. Aöalviötal blaðsins er viö fráfarandi forseta íslands, Vigdísi Finnbogadóttur. Hún hefur, í forsetatíð sinni, verið íslenskum konum mikil hvatning og ungu kynslóöinni jákvæð og sterk fyrirmynd. Hafi hún þökk fyrir það! Sonja B. Jónsdóttir vCra blað kvennabaráttu 3/96 -15. árg. Pósthólf 1685 121 Reykjavík Símar 552 2188 og 552 6310 Fax 552 7560 útgefandi Samtök um kvennalista forsíða bára • Fíton ritnefnd Agla Sigríður Björnsdóttir Auður Styrkársdóttir Drífa Hrönn Kristjánsdóttir Nína Helgadóttir Ragnhildur Helgadóttir Sigurbjörg Ásgeirsdóttir Sólveig Jónasdóttir Vala S. Valdimarsdóttir Þorgerður Einarsdóttir ritstýra og ábyrgöarkona Sonja B. Jónsdóttir skrifstofustýra Vala S. Valdimarsdóttir útlit og tölvuumbrot Rton - Halla Helgadóttir Ijósmyndir bára o.fl. auglýsingar Áslaug Nielsen Sími: 564 1816 Fax: 564 1526 filmuvinna Offsetþjónustan hf. prentun G.Ben • Edda prentstofa hf. bókband Flatey plastpökkun Vinnuheimilið Bjarkarás © VERA ISSN 1021-8793 ath. Greinarí VERU eru birtar á ábyrgð höfunda sinna og eru ekki endilega stefna útgefenda.

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.