Vera


Vera - 01.06.1996, Blaðsíða 23

Vera - 01.06.1996, Blaðsíða 23
OPIÐ BRÉF FRÁ ERLU SIGURÐARDOTTUR RITSTJORA í KAUPMANNAHÖFN hýsi í Reykjavík. Söguefniö er ýmist sótt til íslands eöa umhverfisins sem þær hrærast í. Og þær eru enn fleiri konurnar sem skrifa. Á sama tíma og æ fleiri leggjast í feröalög breytist ekki staöreynd- in sú aö færri konur snúa aftur heim en karlar. Hér má segja aö kom- in sé fimmta herdeild íslensku þjóðarinnar. Þessar konur eru ekki aö- eins andlit þjóöarinnar út á viö (hvort sem þær vilja eða ekki) heldur eru þær líka fréttaritarar úti í heimi, ef þið sem heima sitjið viljið leggja hlustir við. Hún situr enn I beinum mínum viðtalsbókin viö Ástu Sigurbrands- dóttur sem út kom fyrir síöustu jól. íslensk kona fædd í Flatey á Breiðafirði sem hefur átt heima djúpt inni f skógum Finnlands í hálfa öld. Hún reyndi aö snúa aftur til íslands eftir hörmungar heimsstyrj- aldarinnar, en þá vildi enginn trúa sögu hennar. Ævisagan er átaka- mikil en Ásta æðrulaus. Sem betur fer ber bókin vott næmi og virð- ingu Sigurbjargar Árnadóttur fýrir lífsreynslu viðmælanda sfns. Þær eru víöa íslensku konurnar sem skriðu undan pilsfaldi fjall- konunnar og byggöu sér bú fjarri fjaröar ströndum. í skógardjúpi eða brakandi þurri vföáttu Ástralfu eru íslenskar konur vitnisburöur upp- runa síns. Bók- menntir geta þrosk- aö okkur og eflt skilning okkar á Iíf- inu f heiminum. Sög- ur þessara kvenna gera íslenskar bók- menntir auðugri. Ragnhildur Ólafs- dóttir heima í Sö- borg. Hvers vegna fór hún að skrifa sögulegar skáld- sögur og þær á dönsku? Hvers vegna valdi hún aö skrifa um Melkorku og kallaði hana „den stumme"? Um miöjan mars dó íslensk skáldkona í Kaupmannahöfn. Ég frétti það því miður ekki fyrr en ég sté fæti mínum inn í ións- hús í öðrum erindagjörðum, en þá var erfisdrykkjunni að Ijúka. Ég þekkti ekki Ragnhildi Ólafsdóttur mikið en hafði hitt hana oft í Jónshúsi á undanförnum tuttugu árum. Hún var fjörutíu árum eldri en ég svo ekki er hægt að segja að við værum af sömu kynslóð. Hún tók virkan þátt í sóknarstarfinu og konu- kvöldunum islensku í húsi Jóns Sigurðssonar. Ég man eftir þvf að við töluðum af vanvirðingu eða kannski öllu held- ur uppgjöf um konukvöldin svokölluðu. Við ungu konurnarí grunnhóp- um kvennabaráttunnar héldum aftur á móti kvennakvöld, þar sem við ræddum um kúgun kvenna í S-Afríku og veltum vöngum yfir því hvor væri réttmætari sú kynferðislega fullnæging kvenna sem kennd er við snípinn eða hin sem myndast I skeiðinni. (Svona eftir á að hyggja er eins og mig minni að við höfum lesið okkur til um þetta frek- ar en talað af sannfæringu þeirrar sem reynsluna hefur). Konukvöldin fylltu okkur hrolli, hávaðinn fannst okkur vera eins og í fuglabjargi. Þarna stauluðust íslensku aldamótabörnin upp stigana í sjúkrasokkum og mynstruðum kjólum, með veski dinglandi á hand- leggnum og hétu ýmist frú Jensen eða Sprensen eftir körlum sínum sáluðum. Fátt gat fyllt okkur ungu konurnar eins mikilli skelfingu. Við vorum sumar að festa ráð okkar í Borginni við Sundið en gátum eng- an veginn séð fram á að hér værum við að taka ákvarðanir um líf okk- artuttugu, þrjátíu, fjörutíu ogjafnvel fimmtíu ár inn í framtíðina. Nú eru kvennakvöldin löngu hætt, Mandela orðinn forseti í S-Afr- íku og sessunautarnir sumir sestir í stóla borgarstjóra og þing- manna. Konukvöldin eru hins vegar ennþá við lýði. Ég er ekki bara farin að leggja leið mína þar um heldur er ég líka farin að greina orða- skil í því sem áður hljómaði sem fuglagarg. Andlát Ragnhildar fékk mig til að staldra við. Ég hef aldrei lesið skáldsögur hennar þótt ég hafi alltaf ætlað að nálgast þær. Hvað olli því aö vestfirsk alþýðustúlka fimmta yngst 116 barna hópi sigldi til Kaupmannahafnar? Hvers vegna fór hún að skrifa sögulegar skáld- sögur og þær á dönsku? Hvers vegna valdi hún að skrifa um Mel- korku og kallaði hana „den stumme"? Ragnhildi hefur efiaust fundist ritstörfin einmanaleg, en var þó langtfrá því eina íslenska konan sem skrifarí útlöndum. í fyrra lágu tvö handrit á náttboröinu mínu til yfirlestrar og athugasemda. Þau höfðu borist mér úr tveimur heimsálfum, frá vinkonum mínum sem þekkjast ekki þótt þær hafi einu sinni átt heima á sömu hæð í há- Undan pilsfaldinum ndar suðrið

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.