Vera


Vera - 01.06.1996, Blaðsíða 18

Vera - 01.06.1996, Blaðsíða 18
forsetakosningarnar FORSETAFRAMBJÓÐENDUR OG AFNÁM KYNJAMISRÉTTIS Flestum ber saman um að forseti eigi að vera málsvari mannréttinda. Þjóð- félagsþegnar sem beittir eru misrétti vegna litarháttar, trúarbragða, upp- runa eða þess háttar njóta ekki fullra mannréttinda. Sama gildir um mismun- un á grundvelli kynferðis, enda var samþykkt á kvennaráðstefnu Samein- uðu þjóðanna í Kína sl. haust að kven- réttindi væru mannréttindi. Hvernig munt þú styðja baráttu ís- lenskra kvenna fyrir afnámi kynjamis- réttis, náir þú kjöri? Mannréttindi eru metnaöarmál Það er metnaöarmál að okkar fámenna lýö- ræðisþjóðfélag sé fyrirmynd í mannréttind- um. Það gefur okkur stöðu til þess að tala máli mannréttinda á alþjóðavettvangi þannig að eftir sé tekið. í allri umræðu um mannréttindi má það ekki gleymast að kven- réttindi eru hluti almennra mannréttinda. Ég tek eftir því að stúlkur eru nú í fyrsta sinn með hærri meðaleinkunn úr samræmd- um prófum heldur en piltar. Þetta hlýtur að vera vegna þess að þær fá nú svipaða örv- un til náms og piltar og gera sér ef til vill grein fyrir því að námsbrautin er vænlegasta leiðin til þess að ná jafnrétti á við strákana. Þessa jákvæðu þróun þarf að styðja með ráðum og dáð og halda vakandi umræðu í samfélaginu um jafnan rétt kvenna og karla um leið og við höfum hagsmuni barna að leiðarljósi. Einstaklingarnir þurfa að eiga sér landfestar í heilbrigðu samfélagi og þar skipta fjölskyldan og félagasamtök almenn- ings mestu máli við mótun viðhorfa. Forseti getur beitt áhrifavaldi sínu í orði og athöfn- um til þess að hvetja og örva og hafa áhrif á rikjandi viðhorf þannig að þau ýti undir að jafnrétti komist á í reynd. Mér finnst það heillandi og spennandi til- hugsun að landnám kvenna á hefðbundnum sviðum karla í þjóðlífinu haldi áfram uns fullu jafnrétti er náð. En það segir sig sjálft að til þess að svo megi verða þarf að koma mörgu haganlegar fyrir í þjóðfélaginu en nú er gert. Þar á ég meðal annars við vinnu- tíma, orlof vegna fæð- inga og uppeldis, og aðstoð við barnafjöl- skylduna. Það er svo eitt af brýnustu úr- lausnar- og umræðu- efnum samtímans, sem ekki hefur verið gefinn nægur gaumur hér á landi, að stytta vinnutímann þannig aö fjölskyldunni gefist meiri tími til samveru og tómstunda. Þetta er einnig mikilvægt til þess að foreldrar geti sinnt hvoru tveggja af kostgæfni, starfi sínu og barnauppeldi. Þegar hugsað er til stöðu mannréttinda- mála í heiminum, þá er athyglisvert að ná- grannaþjóðir okkar hafa einbeitt sér að viss- um þáttum þeirra og hugsað sem svo, að með slíkri „sérhæfingu" sé hægt að koma meiru til leiðar. Þannig hafa Svíar beitt sér mjög í réttindamálum barna, en Norðmenn látið aö sér kveða í umræðum á alþjóðavett- vangi um afnám dauöarefsingar. Það væri ómaksins vert að íslendingar ræddu það hvort ekki væri vænlegt til árangurs að við tækjum tiltekin svið mannréttinda „ífóstur”. Ég nefni þar sem dæmi að hamla gegn pynt- ingum á konum og börnum, en Amnesty International hefur vakið sérstaka athygli á því nýverið að pyntingar af margvíslegu tagi séu vaxandi böl í heiminum. Innan samtakanna Parliamentarians for Global Action hef ég unnið með nokkrum þingmönnum sem hafa verið áhrifamiklir þátttakendur í umræðum um réttindi kvenna á alþjóðavettvangi. Hlutur kvenna hefur farið vaxandi í þeim samtökum á síð- ustu árum. Sá ánægjulegi atburður gerðist í byrjun júní að kona, Shazia Rafi, var í fyrsta sinn ráðin framkvæmdastjóri þessara þing- mannasamtaka sem f eru þingmenn frá 89 þjóðþingum. Ég er sannfærður um að það er mjög mikilvægt að fleiri konur úr okkar heimshluta fái tækifæri til þess að beita áhrifum sínum til þess að rétta hlut kvenna og barna í heiminum almennt og ekki síst í striðshrjáðum löndum þar sem hlutskipti þeirra er hvað verst. Við verðum öll að taka þáttí þeirri viöleitni.

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.