Vera


Vera - 01.06.1996, Blaðsíða 35

Vera - 01.06.1996, Blaðsíða 35
Önnur hugmynd var það réttlætismál að krefjast kvótakerfis innan verkalýðshreyfing- arinnar, þannig að konum yrðu tryggðir full- trúar í stjórnum, ráðum og nefndum í sam- ræmi við fjölda í viðkomandi félagi, þetta gengi yfir allar stjórnir. A6 hverju var unnið Starf samtakanna beindist einkum að kjara- málum. Þar lögðum við megináherslu á krónutöluhækkun á laun. Við lögðum áherslu á ákveðin lágmarkslaun, sem tækju mið af framfærsluþörf og síðar bættist við krafan um að engin laun yrðu undir skatt- leysismörkum. Við lögðum einnig áherslu á almennarfé- lagslegar kröfur. Ásamt öðrum beittu sam- tökin sér gegn sjúklingaskatti haustið 1984, mótmæltu niðurskuröi í rekstri grunn- skóla, kröfðust lengingar á fæðingarorlofi sem þá var þrir mánuðir og ódýrra og góðra barnaheimila fyrir öll börn um leið og öllum hugmyndum um einkarekin dagheimili og einkalausnir var alfarið hafnaö. Alla tíð var áherslan lögð á samfélagslegar lausnir á öll- um þeim málum er varða okkur sem þegna í samfélagi manna. Samtökin létu einnig í sér heyra þegar námslán voru skorin niður um 30% 1986, enda bitnaði það harðast á börnum láglaunafólks. Strax árið 1984 efndu Samtök kvenna á vinnumarkaði til sérstaks útifundar á 1. maí og því var haldið allar götur til 1992. Útifund- ir okkar á Hallærisþlaninu náðu því oft að veröa fjölmennari en fundir heildarsamtak- anna, þar sem við lögðum áherslu á and- stöðu við samkrull verkalýðsforystu og ríkis- valds og héldum á lofti grundvallarkröfum um mannsæmandi lífsskilyrði og laun. Við höföum yfirleitt tekið alla kjarasamn- inga er okkur vörðuðu til umræðu löngu áður en farið var að fjalla um þá annars staðar. Þess vegna skilaði ýmislegt sér frá okkur inn í verkalýðsfélögin. Einnig skilaði sér víða á hvaða hátt við settum hlutina fram. Við einfölduðum málin. Þegar sérfræðingarnir ræddu um prósentur og meðaltöl og fengu allgóða lífsafkomu að meðaltali, þá reiknuð- um við hve marga mjólkurlítra við fengjum fyrir hækkunina, eða hvort fátækrabætur sem verið væri að sletta í mann dygðu fyrir hálfri eða heilli krabbaskoðun. Það eru nefnilega alltaf einstaklingar af holdi og blóði sem standa að baki talnarununum þótt svo virðist ekki vera. Við komum hlutun- um niður á jörðina. Hagkvæmar hagfræði- lausnir hafa ekki endilega neitt með hag- kvæmni heimilishaldsins að gera, og þá hljótum við að hafna slíkum ólausnum. Samtökin fjara út Þegar komið var fram á árið 1989 var farið að fjara undan samtökunum. Mestu varöaði venjubundin hnignun grasrótarinnar, sem ekki er hægt að ætlast til að hafi úthald árum saman til hliðar við fasta vinnu utan og innan heimilis. Það gengur einfaldlega ekki að halda uppi sjálfsprottnum samtökum af stofnanalegri þörf, það er andstætt gleðinni sem einkenndi allar aðgerðir okkar og var inntakið í sjálfstjáningunni að takast á við það að skapa eigin tilverugrundvöll. Hins vegar höfðu konur úr okkar röðum náð fót- festu innan hinnar skipulögðu verkalýðs- hreyfingar, og svo undarlega sem það kann að hljóma þá varð það okkur ákveðin heft- ing, vegna þess að við sveifluðumst á milli nauðsynlegrar gagnrýni og félagslegrar tryggöar. Síðustu árin tókum við eingöngu þátt í aðgerðum á 1. maí og 8. mars, en Samtök kvenna á vinnumarkaði hafa hins vegar aldrei verið lögð formlega niður, þannig að þau eru enn til fyrir þær sem eru tilbúnar að grípa geirinn og reisa fánann. Hitt er þaulseta einstaklinga i stjórnum og ráðum sem veldur því að menn líta á hreyfinguna sem privateign. Þegar stjórnar- seta í verkalýðsfélagi er orðin spurning um tekjur og stöðutákn, þá er voðinn vís. Þá fara hagsmunirnir að verða sameiginlegir hagsmunum forstjóradrengjanna í Vinnuveit- endasambandinu. Eitthvert mikilvægasta hagsmunamálið er því að koma á endurnýj- unarreglu í stjórnum félaganna. Það gengur ekki að forysta launafólks sé svo raunveru- leikafirrt að þau sem þar sitja hafi ekki hug- mynd um lífsafkomu þorra umbjóðenda sinna. Starfið í Samtökum kvenna á vinnumark- aði kenndi mér að mestu varðar að við ger- um hlutina sjálfar - en saman. Þess vegna þurfum við svo mjög konur sem þora að standa upp og ganga fram fyrir skjöldu. Við þurfum konur sem þora að segja nei inní samninganefndum. Við þurfum óþægar kon- ur sem segja hingað og ekki lengra og í óþægum konum liggur vonarneistinn. Verum því sem baldnastar, en um leið sókndjarfastar og dugmestar, þá verður framtíðin okkar-verði verkalýðshreyfingunni á annað borð við bjargað. Lærdómar Það er tvennt sem stendur lifandi verkalýðs- hreyfingu lyrir þrifum í dag og þegar ég segi lifandi þá á ég við hreyfingu sem fólk finnur sig í, hreyfingu sem veitir gleði og sköpunarþörf útrás. Ann- ars vegar er sérfræðingsveldið sem komið hefur verið upp, samtök hinna snjöllu samn- ingamanna, sem virðast halda að verkalýösbar- átta verði best háð með því að samninga- menn okkar verði svo snjallir að þeir geti platað atvinnu- rekendur til að samþykkja eitt- hvað - alveg óvart. En talnasþekingar ráða ekki úrslitum í verkalýðsbaráttu, heldur virk þátttaka hins almenna fé- laga. Birna Þórðardóttir: Við þurfum óþægar konur sem segja hing- aö og ekki lengra og óþægum konum liggur vonarneistinn. í vinn nni

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.