Vera


Vera - 01.06.1996, Blaðsíða 12

Vera - 01.06.1996, Blaðsíða 12
forstakosningamar GUÐNÝ GUÐBJÖRNSDÓTTIR ÞINGKONA skiptir það máli fyrir kvennabaráttuna aö forseti lýöveldisins sé kona? Þaö er oft sagt að framfarir í kvennabarátt- unni komi í bylgjum sem rísi og hjaöni á víxl. Ein slík bylgja hófst á sjöunda áratugnum og spyrja má hvort sú bylgja sé aö hjaðna. Á þessum tíma hefur atvinnuþátttaka giftra kvenna aukist úr 16% áriö 1960 í 80% áriö 1994. Á þessu tímabili hefur orðiö bylting í menntun kvenna, Kvenréttindafélagið gekkí endurnýjun lífdaga, Rauðsokkahreyfingin varö til, jafnréttislög hafa verið lögfest og sérstök ákvæöi um jafnrétti kynjanna hafa verið stjórnarskrárbundin. Áriö 1980 gerðist sá sögulegi viðburöur að kona var í fyrsta sinn kjörin forseti lýöveldisins og áriö 1983 voru Samtök um Kvennalista stofnuð. Tveir síðastnefndu atburöirnir hafa vakið heims- athygli á íslenskum konum og stöðu þeirra. Frá árinu 1983 hefur þingkonum á íslandi fjölgað úr 3 í 16. Engin fjölgun varð á þing- konum í síðustu kosningum og enn státar ríkisstjórnin aöeins af einum kvenráðherra. Allir þrír handhafar forsetavalds eru karlar, þó að tveir þeirra hafi til skamms tíma verið konur. Enn er gífurlegur launamunur á milli kynja og of hægt gengur á öðrum sviöum jafnréttisbaráttunnar. Ein jákvæðasta undantekningin er Reykjavíkurborg. Þar virðast konur nú metnar að verðleikum. Nú þegar forsetakjör er framundan heyrast raddir um að kominn sé tími á karl í forseta- embættið, af þvf að sitjandi forseti er kona. Hvers vegna heyrast þessar raddir þrátt fyr- ir þá staðreynd að aðeins ein af fjórum for- setum lýðveldisins hefur verið kona? Hvers vegna heyrist ekki sú krafa að nú sé kominn tími á konur í öll valdaembættin sem karlar hafa einir gegnt til þessa? Erum við aö kom- ast upp í glerþakið? Er þessi bylgja kvenna- baráttunnar að hjaðna? Frá sjónarmiði kvennabaráttunnar Ef sþurt er almennt hvort kynferði forsetans skipti máli er eðlilegt að svarað sé að mestu skipti að fá hæfasta einstaklinginn í emb- ættið, óháð kynferði. En ekki er síður mikil- vægt að gera sér grein fýrir hvort þaö skiptir máli fyrir kvennabaráttuna að forseti lýðveld- ins sé kona eða karl. Einnig má spyrja hvort það er kynferði forsetans sem skiptir máli eða það að hann sé hlynntur jafnréttisbar- áttu kynjanna óháð kynferði hans sjálfs. Með öðrum orðum: skiptir kynferði forset- ans máli, það að forsetinn sé jafnréttissinn- aður, bæði atriöin eða hvorugt, frá sjónar- miði kvennabaráttunnar? Fyrst langar mig að hugleiða þessar spurningar í Ijósi hugmyndafræðilegrar þró- unar kvennabaráttunnar. Frá 1960-1980 lagöi kvennahreyfingin áherslu á það sem er líkt með konum og körl- um frekar en það sem greindi kynin að. Frjálslyndur femínismi var ráðandi og áhersla á að réttur og hæfileikar einstaklinga væru óháðir kynferði þeirra. Konur keppa við karla sem einstaklingar, það er þeirra lýðræðislegi réttur. Samkvæmt þessu sjónarmiði skiptir kynferöi forsetans ekki miklu máli, heldur hæfileikar hans, hugmyndir, gildi og athafnir yfirleitt. Það ætti því að skipta máli hvort við- komandi einstaklingur er hlynntur jafnréttis- baráttu kynjanna eða ekki. Eftir 1980 lifði frjálslyndi femínisminn áfram ásamt sósíalískum femínisma, sem tengir saman kvennabaráttu og stéttabar- 4 áttu. Sjónarmið menningarfemínista urðu þó víöa ráöandi. Þeir leggja áherslu á aö reynsla og menning kvenna sé önnur en karla, og þessi sameiginlega reynsla kvenna gefi þeim önnur gildi eða aðra lífs- sýn en körlum. Samkvæmt þessu sjónar- miði ætti kynferöi forseta lýðveldisins að | skipta máli. Kvenforseti er líklegur til að leggja aörar áherslur í starfi en karlforseti vegna kynbundinnar reynslu í misréttisþjóö- félagi. Undir 1990 fór aö bera á andófi kvenna gegn því að vera flokkaðar saman á grund- velli kynferðis. Slík flokkun gerði suma hópa kvenna sýnilegri en aðra og hætta var talin á að haldið væri í staðalmyndir sem ætlun- in var að vinna gegn. Sameiginlega reynslu var farið að túlka sem sameiginleg eðlisein- kenni, sem alls ekki var hugmyndin í upp- hafi. í stað þess að leggja áherslu á sameig- inlega reynslu kvenna er það margbreytileiki kvenna sem athyglin beinist að. Um leið ^ tryggir kynferðið eitt og sér ekki ákveðin gildi eða einkenni. Konur eru margbreytilegar sem einstaklingar og mótast af erfðum,

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.