Vera


Vera - 01.06.1996, Blaðsíða 43

Vera - 01.06.1996, Blaðsíða 43
V „Aðalatriðið er að skemmta Eitt af atriðum listahátíðar nú í sumar er uppfærsla á Jötninum eftir gríska leikrita- skáldið Evrípídes, en Jötuninn er eini púka- leikurinn sem varðveist hefur frá þessum tíma. Efni leiksins er fengið úr Ódysseifs- kviðu Hómers. Ódysseifur og menn hans eru á heimleið frá Tróju en þá ber af leið og taka land á Sikiley þar sem jötnar ráða ríkj- um. Leikurinn er ádeila á stríð og hetjuskap og Ódysseifur í allri sinni karlmennsku er gerður afkáralegur. Evrípídes deilir hart á karlasamfélagið og gerir striðsrekstur þess hlægilegan en heldur á lofti rétti þeirra sem minna mega sín í samfélaginu; þræla og kvenna. Honum hefur af þeim sökum verið gefið sæmdarheitið „fyrsti femínistinn". Leikrit Evrípldesar eru skrifuð af brenn- andi hugsjón og ætluð til að breyta þeim heimi sem hann þekkti. Erindi þeirra við samtlmann er þó engu minna brýnt en það var fyrir 2500 árum. Púkaleikurinn er að þessu sinni settur upp I ærsla-óperustíl. Tónlistina samdi Leif- ur Þórarinsson en hugmyndin að óperunni er upphaflega hans, að sögn leikstjórans Ingu Bjarnason og er uppfærslan fyrst og fremst hugsuð út frá tónlistinni. Varla er þó hægt að tala um klassíska óperu þar sem tónlistin er sögð vera allt I senn; rokk, rapp, leikhústónlist og klasslk. Að sjálfsögðu er notast við snilldarlega þýðingu Helga Hálf- danarsonar. Alls taka um 50 manns þátt I sýningunni, þar af standa 37 þeirra á sviðinu; 32 konur en aðeins fimm karlar. Þetta er fyrsta óperan sem Inga leikstýr- ir en hún er þó vel kunnug forngrískum leik- verkum. Margir muna eflaust eftir uppfærsl- unni á Trójudætrum Evrípídesar I haust en hópurinn sem stóð að þeirri sýningu er að stórum hluta sá sami og nú. Áður hafði hún sett upp Medeu eftir sama höfund. „Það eru forréttindi að vinna upp úr þess- ari gullnámu sem grisku leikritin eru, þau eru svo miklu stærri en við. Þetta er tilraunasýning hjá okkur eins og Trójudætur voru en slíkt væri ekki hægt að leyfa sérí stofnanaleikhúsi, þvl það eru auð- fólkiw vitað ekki miklir peningarí þessu dæmi. Það er ótrúlegt hvað stelpurnar okkar hafa gert góða hluti. Ég er ekki viss um að ég gæti fengið eins stóran hóp af körlum til að gera sömu hluti fyrir eins lítið! Þó vil ég taka það fram að karlarnir okkar eru yndis- legir. Listin er okkar eina skuldbinding hér,“ segir Inga Bjarnason I stuttu spjalli við VERU. Sýningarnar á Jötninum I sumar eru að- eins þrjár en á hausti komanda verður verk- ið tekið aftur til sýningar og þá ásamt Tróju- dætrum. Sýningunum verður steypt saman að hætti forngrikkja. Fyrst verður harmleik- urinn sýndur og áhorfendum er gefinn kost- ur á tilfinningalegri útrás. Ærslaleikurinn fylgir I kjölfarið og er ætlað að lyfta brúninni á leikhúsgestum til þess að þeir geti yfirgef- ið leikhúsið glaðir og reifir. Að vísu innihéldu sýningarnar I Grikklandi hinu forna þrjá harmleiki á undan einum púkaleik, en llk- lega nægir einn harmleikur okkur kaldlynd- um Frónbúum. Sólveig Jónasdóttir Vichy á íslenskan markað * Vichy er nafn á þekktum frönskum snyrtivörum sem eru mest seldu snyrtivörur I apótekum I Evrópu. Nafnið er kennt við borgina Vichy I Frakklandi, en þar hafa verið vinsælar heilsulindir frá fornu fari. Fram- leiðsla á Vichy snyrtivörum hófstfyrir um 60 árum, þegar læknar vildu hjálþa gestum heilsubaðanna aö viðhalda meðferð heima fyrir. Vatn- ið sem notað er I vörurnar kallast Lucas vatn og var það sérstaklega valið I vörurnar vegna þess hversu ríkt það er af steinefnum og snefil- efnum. Vatniö hefur bæði örvandi áhrif á frumuskiptingu og varnar- kerfi húðarinnar. Vatnið hefur róandi áhrif á húðina, er ekki ertandi og vinnur gegn alls kyns ofnæmum. Síðast en ekki síst styrkir það þol húðarinnar. Kjörorð Vichy: „góð heilsa - heilbrigö húð“, endurspeglar þá áherslu er framleiðendur leggja á heilbrigði húðarinnar. Húösjúk- dómalæknar vinna við framleiðsluna ásamt snyrtisérfræðingum. Þeir leggja áherslu á að húðin sé ekki eingöngu sú ytri umgjörð líkamans sem við sjáum, heldur fyrst og fremst mikilvægt líffæri. Vichy vörurn- ar eru betur ofnæmisprófaðar en aðrar snyrtivörur og þykja því mjög öruggar. Við gerð húðvaranna ertekið mið af umhverfisáhrifum, meng- un, útfjólubláum geislum sólarog öðru áreiti. Vichyframleiðir vörurfýr- ir bæði kynin og fyrir allar húðgerðir og er innihaldslýsing á umbúðun- um. Þessar vörur eru eingöngu seldar I apótekum og sýna allar pakkningar síðasta söludag. Verðið er mjög gott, miðað við þá gæða- vöru sem hér er á ferðinni. Það er fagnaöarefni að Vichy kemur á ís- lenskan markað I júlímánuði. Rolf Johansen flytur inn. vsv Iviklist

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.