Vera


Vera - 01.06.1996, Blaðsíða 30

Vera - 01.06.1996, Blaðsíða 30
Er nokkuð pláss fyrir nýja kynslóð kvenna með nýjar hugmyndir? eftir Kristjönu Björgu G u ð b r a n d s d ó 11 u r Kæru lesendur Það ermikill sannleikurí orðatiltækinu þögn er sama og samþykki. Það er alltof mikið um að ungum konum sem verða fyrir mis- rétti á vinnumarkaðnum finnist þær eiga hlut að máli, þær hafi kallað yfir sigeitthvert hlutskipti af því að þær hafi valið það yfir sig eða að þær séu einfaldlega ekki nógu sterk- ar og góðar að gáfum til að fá eitthvað betra. Á íslandi ríkir óásættanlegt kynjamis- rétti. Það er falið og réttlætt með alls kyns útúrsnúningum, jafnvel af konum sjálfum. Það minnir mig á Rússland og hvernig þeir kjósa sífellt yfir sig harðræði og eymd og einnig á orðatiltækið: Það er vont en það venst. Unglingsstúlkur í þrælahaldi Kvennabaráttan í dagfinnst mér vera stöðn- uð, það sést best á því að vanþekking ungra kvenna á rétti sínum er mikil og útbreidd. Unglingsstúlkur byrja snemma að fara út á vinnumarkaðinn á íslandi. Um sextán ára aldur og til tvítugs eru þær þyrjaðar að leita sér að aukavinnu með skólanum. Á þessum aldri er ekki um mikið að velja sökum aldurs og reynsluleysis. Það er aðallega vinnu að fá í söluturnum og skyndiþitastöðum. Þetta eru staðir sem reiknað er meö að starfs- kraftur stoppi stutt á og þess vegna er ekki verið aö hlúa neitt sérstaklega að honum. Langur vinnutími, kannski tíu tímar sam- fleytt með fimmtán mínútna matarhléi, smá- smuguleg laun sem jaðra viö að vera mann- réttindabrot, ekkert greitt í lífeyrissjóð eða félög, greidd jafnaðarlaun í vinnu sem að- eins er unnin á næturnar, engar kauphækk- anir í samhengi við afköst, gífurieg mismun- un milli starfsmanna, kynferðisleg áreitni og margt fleira. Á þessum stöðum grasserar misréttið vegna þess að það er auðvelt að komast upp með slíkt. Starfsfólkið eru ungt og óreynt, hefur enga kunnáttu á kerfinu og hvernig það virkar, og fyrst og fremst er framtíð þess óstöðug og óráðin vegna reynslu- og menntunarleysis. Því finnst það vera háð vinnuveitandanum og það gerir það að engu nema þrælum. Mér verður hugsað til skólakerfisins í þessu samhengi og finnst vanta almenna fræðslu um kerfið sem þetta þjóðfélag funkerar eftir. Þetta er bara ekkert almenn meðfædd vitneskja. Og það er ansi hart að þurfa að læra af reynsl- unni hvað á að varast. Ef ungt fólk væri betur upplýst um rétt sinn og möguleika á vinnumarkaðnum væri hægt að draga meira úr þessu gegndar- lausa „þrælahaldi" eins og ég vil kalla þetta. ...I’m a mega pussy“. „I’m a babe“, „Take me“, „Fuck me“, ég ætla rétt að vona að áletranirnar merki andstæðu sína og séu í raun hárbeitt kaldhæðni en ekki að stúlk- urnar sem ganga í þessum bolum séu hálf- meðvitundarlausar af einfeldni og viti ekki hvaða yfirlýsingar þær eru að gefa frá sér með nýjasta „trendinu"... Það er nauðsynlegt að hlúa að ungu fólki og fræðsla er það besta sem hægt er að gefa því. „X“ kynslóðin og nýjustu „trendin" „X“ kynslóðin, eins og hún er kölluð, virðist hafa lítinn áhuga á stjórnmálum. Hún er samt ekki alslæm því hún hefur beitt sér fyr- ir víösýni og opnum huga gagnvart hlutum sem hafa verið hálfgert tabú í þjóðfélaginu til lengri tíma, eins og til dæmis samkyn- hneigð. í rauninni er ekkert hægt að alhæfa um þessa kynslóð því hún hefur sankað að sér allskyns stefnum þannig að úr kemur skemmtilegur hrærigrautur af ungu fólki með allskonar skoðanir. Tískan er skrautleg. Ég tók eftir því sein- asta sumar að önnur hver stelpa gekk í bol meö yfirgengilegum áletrunum „l’m a mega pussy”. „I’m a babe“, „Take me“, „Fuck me“, ég ætla rétt að vona að áletranirnar merki andstæðu sína og séu í raun hárbeitt kaldhæðni en ekki að stúlkurnar sem ganga í þessum bolum séu hálf-meðvitundarlaus- ar af einfeldni og viti ekki hvaða yfirlýsingar þær eru að gefa frá sér með nýjasta „trend- inu“, sem kannski gengur bara út á að ganga fram af fólki. Með jarmandi kvenmönnum Ungar konur láta ekki eins mikið til sín taka í jafnréttismálum og þörf er á. Kvenmenn í Á næstu síðum heldur VERA áfram þeirri umræöu um kjaramál sem hófst í síðustu VERU. Að þessu sinni skrifar ung stúlka úr Reykjavík, Kristjana Björg Guðbrandsdóttir um aðbúnað ungra stúlkna á vinnu- markaðnum og viðhorf þeirra; Birna Þórðardóttir fjallar um Samtök kvenna á vinnumarkaði, upphaf þeirra, afrek og endi og mögulegt framhaldslíf; og Svanur Kristjánsson skrifar um launamun og verkalýðshreyfingu og ber ástandið saman við vinnumarkaðinn á öðrum Norðurlöndum.

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.