Vera


Vera - 01.06.1996, Blaðsíða 33

Vera - 01.06.1996, Blaðsíða 33
Skammarblettur á íslenskum karlmönnum eftir Svan Kristjánsson Við fyrstu sýn er íslenskt þjóðfélag sömu gerðar og Norðurlöndin. Þegar nánar er að gáð kemur hins vegar í Ijós að sérstaða ís- lands er mikil. Þar ber hæst hvað staða launafólks er verri hér á landi en í Danmörku, Noregi og Svíþjóð. íslenskt launafólk vinnur almennt miklu lengri vinnudag, kaupmátturer lægri, sveiflur í afkomu meiri, skuldir heimil- anna þungbærari oggjaldþrottíðari. Við höfum einnig skapað þjóðfélag þar sem konur hafa mikið lægri laun en karlar og launabilið er mest hér á landi af öllum Norð- urlöndum. Svo dæmi sé tekið af árinu 1991 þá höfðu íslenskar konur á aldrinum 35-49 ára aðeins um 60% af launum karlmanna á sama aldri. í Finnlandi var þetta hlutfall hins vegar yfir 90%, í Danmörku yfir 80%, sömu- leiðis í Noregi og Svíþjóð (um þetta má lesa í ritinu Karlar og Konur á Norðurlöndum sem Hagstofur Norðurlandanna gefa út í samein- ingu og nálgast má á Hagstofu íslands). Það sem verra er: staða íslenskra kvenna á vinnu- markaði skánar ekkert. í stað raunhæfra að- geröa kemur innihaldslaust glamur um „við- horfsbreytingu". Það hefur hins vegar aldrei verið sýnt fram á, að viðhorf almennings á ís- landi í jafnréttismálum séu eitthvað frábrugð- in því sem gerist á Norðurlöndunum. Nær- tækara væri að benda á samfélagsgerð og skipulag íslensks samfélags sem orsök kynjamisréttis: - Stjórnun fyrirtækja og stofnana þar sem yfirborganir, yfirvinna og hlunnindi renna svo að segja óskipt til karlmanna. Hér er við stjórnendur fyrirtækjanna að eiga, en hvorki launafólk né almenning. - Skortur á faglegum og skilvirkum vinnu- brögðum í opinberri stjórnsýslu. Jafnréttis- áætlanir eru til á pappírum en þeim er ekki » hrintíframkvæmd. - Stjórnmálaflokkarnir hafa ekki burði til aö móta langtímastefnu, þar á meðal hvern- ig á að ná launajafnrétti. - Verkalýðsfélögin hafa ekki veitt launa- jafnrétti neinn forgang í kröfugerð I kjara- samningum. í stuttu máli sagt erum við íslendingar stödd í vítahring sérhagsmuna, þar sem und- irstaðan er þéttriðið net persónulegra tengsla og fyrirgreiðslu. Einkunnarorðin eru: Konum bannaður aðgangur. Hvaö er til ráða? Einhvers staðar verður að rjúfa vítahringinn. Misréttið gagnvart konum er skammarblettur á íslenskum karlmönnum og lýsir djúpstæð- um svikum okkar við málstað réttlætis og jöfnuðar. Nokkra von verður að binda við verkalýös- félögin, ogtil þeirra hljótum við einnig að gera kröfur. Samtök launafólks á íslandi eiga í miklum vanda. Verkalýðsstofnanir eru öflugri en nokkru sinni áður og lífeyrissjóðirnir ávaxta eignir sínar duglega, en siðferðis- grunnur verkalýðsfélaganna er veikur. Launa- fólk skynjar ekki nein sterk tengsl milli eigin hags og starfa verkalýðsfélaga. Þaðan af síð- ur er litið á verkalýðsfélögin sem málsvara jöfnuðar og réttlætis. Stjórnvöld og atvinnu- rekendur sjá að verkalýðsforystan hefur ekki þá tiltrú sem nauðsynleg er til að fylkja liði. í fyrsta sinn í sögu lýðveldisins er vinnulöggjöf- inni breytt í grundvallaratriðum þvert ofan í mótmæli verkalýðsforystunnar. Á sama tíma mælist forystuflokkur rikisstjórnarinnar einn með talsvert meira fylgi (40%) en allir fjórir flokkar stjórnarandstöðunnar samanlagt (36%). Forysta verkalýðsfélaganna á um tvennt að velja: frekari hrörnun eða endurnýjun. Al- þýðusamband íslands verður aö senda konum landsins önnur skilaboð en þau Svanur Kristjánsson: Jafnréttismálin þurfa að vera hinn gildi þráöur sem öll önnur mál vefjast um, en ekki eins og hver annar aukaþráður sem settur er aft- ast af því að það þykir ófært annað en minnast eitthvað á þau mál. sem felast í að leysa valdabaráttu karlmanna með því að færa einu konuna í toppi ASÍ-for- ystunnar úr sæti 1. varaforseta (sæti 2. vara- forseta! Skilaboðin verða einnig að vera önn- ur en þau sem felast í stefnuyfirlýsingu sem lögð var fyrir nýafstaðið þing sambandsins. í henni er nokkuð langur kafli sem ber heitið „Launamaðurinn, fjölskyldan og vinnumark- aðurinn." Eins og heitið ber með sér fjallar kaflinn nær allur um stöðu launamannsins, þ.e. hugur höfundanna er bundinn við karl- menn. Jafnréttismál fá dálitla umfjöllun - en ekki fyrr en í lok kaflans. Markviss barátta fyrir launajafnrétti getur glætt baráttu íslensks launafólks nýju lífi og eflt samtök þeirra. í kröfugerð fyrir næstu samninga verður að tengja saman kröfur um hærri laun og hugsjónir um jöfnuð og réttlæti, eins og gert var á hinum Norðurlöndunum: að konur njóti jafnréttis við karla. Til þess þurfa jafnréttismálin að koma fremst í kaflann um „launamanninn". Jafnréttismálin þurfa að vera hinn gildi þráður sem öll önnur mál vefj- ast um, en ekki eins og hver annar aukaþráð- ur sem settur er aftast af því að það þykir ófært annað en minnast eitthvað á þau mál.

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.