Vera


Vera - 01.06.1996, Blaðsíða 10

Vera - 01.06.1996, Blaðsíða 10
álit mál Bak viö þessar dyr er þaö eina sem raunverulega getur staöið í vegi fyrir þér. Þessi áletrun var á sýningu Sjáifstæðra kvenna um jafnréttismál í Kringlunni fyrir skömmu, en sýningin nefndist „Þér standa allar dyr opnar.“ Þaö sem blasti við þeim sem opnuðu dyrnar var spegilmynd þeirra sjálfra. Það sem stendur raunverulega í vegi fyrir þér er semsagt þú sjálf. VERA fékk þær Jóhönnu Vilhjálmsdóttur Sjálfstæða konu, flugfreyju og sjón- varpsþulu og Katrínu Fjeldsted lækni, varaþingmann og fyrrum borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins til að ræða þetta mál. Málið snýst einfaldlega um það að við verð- um að hjálpa okkur sjálfar. Það gerir það enginn fyrir okkur. Nú stendur baráttan um viðhorf í þjóðfélaginu. Sú barátta fer fram á heimilum, fyrirtækjum og alls staðar í þjóðfé- laginu. Konur verða að vera óhræddar við að axla ábyrgö. Hvort sem að það erí atvinnulífinu eða félagsmálum. Á sama hátt þurfum við að breyta viöhorfum inn á heimilum. Það segir sig sjálft að sú verka- skipting sem viðgengist hefur í gegnum árin og áratugina er úr sér gengin. Uppeldi barna og ábyrgð á heimils- haldi er á ábyrgð beggja aöila og það er okkar að vekja athygli á því og breyta. Það má ekki túlka orð mín þannig að ég líti svo á að karlmenn séu okkar andstæðing- ar og sameinast þurfi gegn þeim, svo er ekki. Það er tvímælalaust einnig þeirra hagur að viðhorf breytist í þjóðfé- laginu. Við það mun núningspúnktum í sam- skiptum kynjanna fækka og frelsa þá und- an löngu úreltum viö- horfum um hinn sterka þögla karlmann. Al- veg á sama hátt og karlmenn hafa ekki tap- að á því að konur hafa fengið aukin réttindi á stðustu áratugum, þá tapa þeir heldur ekki á því að síðustu hindrununum í vegi raun- verulegs jafnréttis verði rutt úr vegi. íslendingar heföu aldrei öðlast sjálfstæði ef að þeir hefðu ekki sjálfir barist fyrir því. Það voru hugrakkir einstaklingar sem vöktu þjóðina af þeim doða sem að hún hafði ver- ið í árhundruð og hófu sjálfstæðisbaráttuna sem lauk með fullnaðarsigri okkar íslend- inga. Þannig er það með öll réttlætismál að þeir sem órétti eru beittir verða að vera spor- göngumenn til að réttlætið sigri. Nú er það ekki svo að íslenskar konur hafi verið haldn- ar doða í jafnréttismálum. Þvert á móti hef- ur margt áunnist í þeirri baráttu. Það eru hinsvegar ekki ný sannindi að karlmenn hafa verið duglegri við að sýna frumkvæði og taka á sig ábyrgð í atvinnulífi, sem og í fé- lags- og stjórnmálum. Því verðum við að breyta. Við getum ekki beðið eftir því aö næstu kynslóðir kvenna nýti tækifærin, það er okkar hlutverk. Það er grundvallarfor- senda fyrir því að árangur náist. Markmiðið er að ekki verði talað um að það séu of margar konur í framboði (því þær taka atkvæöi hver frá annarri) heldur verði talaö um frambjóðendur sem einstaklinga, en ekki konur og karla. Sömuleiðis á það ekki að vera frétt að kona sé í forsvari í fyr- irtæki eða félagasamtökum. Þegar talað verður um konur og karla sem einstaklinga í þessu samhengi þá hefur íslenska þjóðin unnið sigurí réttlætisbaráttunni. Miðvikudagar í sumar eru KVENNADAGAR á Klöpp afsláttur fyrir konur á miðvikudögum 15% Alhliða smurþjónusta Umfelgun: 2800kr. AMERISK HÁGÆDADEKK á tilboðs- verði VIÐ VEGMULA S.5530440 4 í k í

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.