Vera


Vera - 01.06.1996, Blaðsíða 31

Vera - 01.06.1996, Blaðsíða 31
Langur vinnutími, kannski tíu tímar sam- fleytt meö fimmtán mínútna matarhléi, smásmuguleg laun sem jaðra við aö vera mannréttindabrot, ekkert greitt í lífeyris- sjóð eða félög, greidd jafnaðarlaun i vinnu sem aðeins er unnin á næturnar, engar kauphækkanir í samhengi við afköst, gífur- leg mismunun milli starfsmanna, kynferðis- leg áreitni og margt fleira. kvennabaráttu hafa ávallt litið á sig sem minnihlutahóp sem brotið er á. Sumir kven- menn líta einfaldlega ekki á sig sem hluta af þessum minnihlutahópi. Þær hafa kannski álitlegan frama og vilja umfram allt telja sig vera manneskju og jafnoka karlmannsins, fremur en að hólfa sig af í rétt með jarmandi kvenmönnum. Þærtrúa því að þær hafi ein- faldlega yfirhöndina á vissum sviðum með- an karlmaðurinn hafi yfirhöndina á öðrum sviðum. Þá skapist einhvers konar jafnvægi í samfélaginu sem er ásættanlegt og óþarfi að jarma yfir. Ásættanlegt vegna þess að enginn hafi neitað konu um að velja sér hvaða vettvang sem er í lífinu. Með því að velja kalli hún sjálf yfir sig það sem því fylg- ir. Þetta viðhorf á alveg rétt á sér því hugs- anlega gæti það hvatt konur til að velja sér störf sem áður hafa einungis verið í höndum karlmanna. En hins vegar gerir það þeim konum erfitt fyrir að berjast, sem velja sér af heilum hug vettvang sem kerfið setur niður fyrir aðra í launaflokkum. Þess vegna er ég ósammála þessari skoðun, mér finnst ég ekki geta rifið mig úr heildinni, horft einung- is T minn barm og ótakmarkaða möguleika mína á aö komast áfram í þjóðfélaginu. Hvað sjáum við nefnilega þegar við lítum yfir heildina? Konurfá aðeins 70% af iaununum sem þær eiga skilið. Þetta finnst mér vera stærsti og alvarlegasti punkturinn og mér finnst slæmt hvaö margar ungar konur í dag eru dofnar fyrir þessum hræðilegu stað- reyndum. Og hverjir eru það síöan sem taka þátt í kvennabaráttunni? Er nokkuð pláss fyrir nýja kynslóö kvenna með nýjar hugmynd- ir? Eru það konur á þrítugsaldri og yfir, komnar með gráðu úr hákólanum, mussu- klæddar, bitrar, illa útlítandi, skrækar grænmetisætur og piþarjúnkur sem sletta frösum „pá svenska" og lykta alltaf af reyk- elsi eða túr. Útbrunnar nöldurkerlingar sem Kristjana Björg Guðbrandsdóttir: A islandi ríkir óásættanlegt kynjamisrétti. Þaó er faliö og réttlætt með alls kyns útúrsnúningum, jafnvel af konum sjálfum. einoka kvennabaráttuna og koma illu orði á hana? Eru þær hættulegar, kúga karlmenn undir sig með heimtufrekju og nýta sér eymdina sér í hag til að koma sér áfram? Þetta er sú mynd sem margir hafa af kvennalistakerlingum, eins og þær eru kall- aðar. Ekki aðlaðandi, eða hvað? Meö sokk í naríunum Þrátt fyrir að staðan sé slæm og útlit sé fyr- ir nokkuð svipaða stöðu í nánustu framtíð sé ég nokkra góða punkta í tíðaranda dags- ins í dag. Kona með frama er ekki lengur einhvers- konar karlgervingur út úr konunni. Við erum hættar að ganga í jakkafötum með sokk T naríunum og tala um að fá okk- ur á snípinn. Við erum hættar að fjargviðrast eins og óðar yfir barbiedúkkum og fegurðar- samkeppnum. Sem betur fer, hver tekur konu alvarlega sem sér helsta vanda og spillingu heimsins í saklausum leikföngum? Hvað gerir það til þó dúkkurnar séu Tmynd fegurðar, eigum við frekar að upphefja eitt- hvað annað? Ættu dúkkurnar kannski að vera flatbrjósta, hjólbeinóttar, stórnefjaðar, eyrnastórar og með skegghýjung. Fjar- stæða. Það er undir öðru komið hvort ungar stúlkur blóti Venus gyðju fegurðar. Skrýtið að karl- menn séu ekki búnir að æsa sig yfir því að Ken gefi ranga og blekkjandi mynd af karlmennskuímyndinni. Já skrýtið líka að þeir hafi ekki farið í mót- mælagöngu yfir yfirvöðslusemi og ráðriki Piggy yfir mannleysunni Kermit. Nei.sem betur fer hafa konur tekið Barbie undan smásjánni og tekið ásamt kollegum sínum, karlmönnum, þarfari málefni til skoðunar. Eins og launamisrétti, dagvistarmál, fæðing- arorlof og fleira og fleira. Það er ekki lengur hægt að koma mér á óvart, ég las í blaði um daginn að 9% ís- lenskra karlmanna vilja vera kvenmenn. Það er ekki lengur einungis kvennabarátta. Karl- menn eru nefnilega búnir að átta sig á því að það er verið að brjóta jafnt á þeim sem kon- um og að tími sé til kominn að brjótast und- an ofriki og rembu kvenna sem hafa eignað sér vansældina öldum saman. Ég fer nú að Ijúka þessum víðfeðmu hugleiðingum mín- um um kvennabaráttuna og ungt fólk. Ég er tiltölulega sátt við að vera með þessa þest pervertisma eða yfirvöðslusemi sem fólk með ásættanlegan skerf mannlegrar skyn- semi kallar réttlætiskennd. Og er mikið í mun að ímynd kvennabaráttu í dag verði endurskoðuð þvT hún fer hamförum af Ijót- leika í samfélaginu. vinn}nni og víðar

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.