Vera


Vera - 01.06.1996, Blaðsíða 26

Vera - 01.06.1996, Blaðsíða 26
dr. þóra árn dóttir Júlíana Rún Indriðadóttir ræðir við dr. Þóru Árnadóttur sérfræðing við jarðeðlisfræðideildina í Princeton-háskóla Vísindakona í karlaheimi Þóra Árnadóttir lauk BS prófi í jarðeðl- isfræði frá Háskóla íslands árið 1986. Síðan hélt hún til Bandaríkjanna, lauk MA prófi frá Princeton háskóla 1988 og Ph.D. prófi frá Stanford háskóla árið 1993. Að því loknu fékk hún sér- fræöingsstöðu (postdoc) á Nýja Sjá- landi og vann þar við rannsóknir í eitt og hálft ár. Þóra er nú sérfræðingur viö Princeton háskóla, þar sem hún býr ásamt eiginmanni sínum Dr. Lárusi Thorlacius. VERA náði tali af Þóru þeg- ar hún dvaldi hér á landi í stuttu fríi. „í doktorsverkefninu vann ég að því að skoöa aflögun á yfirborði jarðar eftir Loma Prieta jarðskjálftann í Kaliforníu 1989," segir Þóra. „Það ergert með þvf að mæla mjög nákvæm- lega staðsetningar á punktum á tilteknu svæði fyrir og eftir jarðskjálfta. Niðurstöður mælinganna eru svo notaðartil að gera líkan af jarðskjálftanum, og skoða hvar misgengið er, hve stórt þaö er og hvernig hreyfing varð á misgenginu sem olli jarðskjálftanum." Hvað er jarðeðlisfræöi? „Jarðeðlisfræðin byggir á aðferðum stærð- fræði, eðlisfræði og jarðfræði til að lýsa jörðinni, lofthjúpnum eða plánetum og þeim ferlum sem þar eiga sér stað. Flestir jarðeðl- isfræðingar fást við einhvers konar mæling- ar á yfirborði jarðartil að fá vitneskju um ferli djúþt í jörðu. Jarðeðlisfræðin skiptist í ótal fög, t.d. jarðskjálftafræði, jöklafræði, veður- fræði og haffræði. Mælingar á jarðskorpuhreyfingum á eld- fjallasvæði gefa upplýsingar um hvernig kvika safnast fyrir f kvikuhólfi undir yfirborði jarðar. Þannig vartil að mynda hægt að spá fyrir um gos í Kröflu á meðan eldvirknin þar var hvað mest. ísland liggur á úthafshrygg, Atlantshafs- hryggnum, og af þeim sökum gliðnar landið um u.þ.b. tvo sm á ári. Þessar hreyfingar virðast hins vegar ekki gerast jafnt og þétt, heldur í hrinum eins og urðu í Kröflu, þar sem land gliðnaði um 10 metra á 10 árum." Er hægt að spá fyrir um jarðskjálfta? „Það hefur ekki enn tekist að spá fyrir um jarðskjálfta en fólk er að vona að með aukn- um og betri mælingum verði það hægt, þ.e.a.s. að á undan jarðskjálfta sjáist ein- hver breyting þegar spenna hleðst upp f jarð- skorpunni. Það er kannski I og með þess vegna sem ég fór í jarðeðlisfræði. Ég hafði áhuga á jarðskjálftafræði og þeim hluta sem snýr að jarðskjálftaspám. Framfarir f mælitækni undanfarin ár hafa aukið þekkingu á ferlinu mikið, en það vant- ar ennþá upplýsingar til að skilja betur t.d. hvernig jarðskjálfti byrjar og hvað ákvarðar stærð hans. Tæknin sem ég hef notað 1 mælingum á jarðskorpuhreyfingum kallast GPS (Global Positioning System) og hefur verið þróuð af Bandaríkjamönnum á sl. 10 árum. GPS byggist á að mæla merki frá gervitunglum sem ganga í kringum jörðina. Flægt er að mæla fjarlægð milli punkta á yf- irborði jarðar, sem geta verið allt frá nokkrum metrum upp í þúsundir kílómetra hver frá öðrum, með 1-2 sm nákvæmni, sem er mun meiri nákvæmni en fæst með hefðbundnum landmælingaaðferðum. Hins vegar þarf ennþá meiri nákvæmni og sam- felldar mælingar áður en hægt er að gera sér vonir um að nota þessar mælingartil að spá fýrir um jarðskjálfta. GPS tækni er mik- ið notuð um allan heim, m.a. í Kaliforníu og Japan þar sem jarðskjálftar eru tíðir. Á Suðurlandi er komiö net af mjög full- komnum jarðskjálftamælum og mikið af landmælingu og öðrum athugunum eru framkvæmdar þar. Spurningin er hvort við verðum svo heppin að sjá eitthvað áður en Suðurlandsskjálftinn verður." Hvað varstu að gera á Nýja Sjálandi? „Ég fékk sérfræðingsstöðu við Victoria há- skóla í Wellington við mælingar á jarð- skorpuhreyfingum. Meöal annars mældi ég net með GPS tækni og svo „heppilega" vildi til að það varð jarðskjálfti á svæðinu nokkrum mánuðum síðar. Þessi jarðskjálfti varð á Suðureyju á Nýja Sjálandi í júní 1994 og mældist 6.7 stig. Þetta er stærsti skjálfti þarna síðan 1929 og færslan sem mældist á yfirborði var allt að hálfur metri. Eitt af verkefnunum sem ég vinn að núna er að nota GPS gögnin til aö fá mynd af upptökum þessa jarðskjálfta. Hann varð mjög nálægt stóru misgengi sem liggur suður eftir allri eyjunni, svo nefnt Alpa misgengi. Þar hafa greinilega orðið stórir jarðskjálftar á forsögu- legum tíma. Þetta misgengi er sambærilegt við San Andreas misgengið í Kaliforníu og stórir jarðskjálftar því mikið áhyggjuefni. Hugsanlegt er að jarðskjálftinn í júní hafi flýtt fýrir næsta skjálfta á Alpa misgenginu, og því mikilvægt að fá sem nákvæmasta mynd af því hvað gerðist í skjálftanum. Nýja Sjáland er algjör paradís fýrir jarðvís- indamenn. Þar er mikið að gerast, þeir hafa verið duglegir að ráða ungt vlsindafólk, bæði karla og konur, til starfa. Fyrir mig var þetta frábært tækifæri, sem ég gat ekki sleþþt þó að Lárus væri með rannsóknar- stöðu í Santa Barbara í Kaliforníu, og kæmi ekki með til Nýja Sjálands." Hvað ertu að fást við núna? „Ég fékk sérfræðingsstöðu við jarðeðlis- fræðideildina T Princeton. Eitt af verkefnun- um sem ég vinn við núna er kallaö PEPP (Princeton Earth Physics Project). í þvT erum við að setja upp net af ódýrum skjálftamæl- um T gagnfræðaskólum í Bandaríkjunum. Hugmyndin er að krakkarnir kynnist vfsinda- starfi með því að safna alvöru gögnum og vinna einföld verkefni sem tengjast jarö-

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.