Vera


Vera - 01.06.1996, Blaðsíða 6

Vera - 01.06.1996, Blaðsíða 6
athfnakonan selja kortin okkar hér heima voru farnir að flytja inn handunnin kort frá öðrum löndum ákváðum við að ekki væri um annað að ræða en að fara sjálf í útflutning og selja okkar kort á erlendum markaði. Og það virð- ist ætla að ganga svona glimrandi vel. í mars mánuði síðastliðnum tók Sólarfilma að sér dreifingu á gjafakortum Oktavíu og hefur það verulega vinnuhagræðingu í för með sér. Viö fundum fyrir því á sýningunni í Frankfurt að fólki er ekki sama um það hvað- an handunna varan er, fólk sem velur um- hverfisvænar vörur vill ekki kaupa það sem það veit að er framleitt í þrælabúðum og jafnvel búið til af börnum. Hjá þessum neyt- endum fer saman virðing fyrir umhverfinu og mannréttindum." Sem fyrr segir gengur framleiðsla Oktavíu út á að endurvinna pappír. Þær segja að nú sé mjög I ttsku að fara út í náttúruna og rtfa þar og tæta en í þeirra framleiðslu sé endur- nýtingarsjónarmiðið hins vegar ráðandi. Halldóra vitnar t skýrslu frá Umhverfisráöu- neytinu þar sem talað er um mikilvægi þess að endurnýta það sem til er og Jóhanna bætir við að þær taki laufið t.d. ekki fyrr en það fellur af trjánum á haustin. Oktavía not- ar alls konar gamlan pappír í kortin stn, t.d bankapappír sem hún fær tættan frá Gagna- eyðingu, gamla papptrsborðdúka og allan annan pappír sem til fellur. Bankapapptrinn gefur ákveðinn bláan lit en þær nota einnig krækiberjahrat, soðið laukhýði, rabarbara, silkipapptrsafganga, afskorin þurrkuð blóm, sem þær fá í ruslatunnum blómasala, o.fl. þess háttar til að lita pappírinn og grípa að- eins t battkliti ef þær vilja ná fram einhverj- um sérstökum blæbrigðum. Hildur og Gígja sýna mér það sem þær nota til að skreyta með: hrosshár; leðurafgangar; Lion-king-lím- miðarnir sem börnin hafa safnað, þegar þau eru orðin leið á þeim; rúsínur; myndir af gömlum kortum ogýmislegtfleira, auk þess sem þær nota texta úr Biblíunni og Spá- manninum svo og íslensk Ijóð. Gamalt ís- lenskt galdratákn sem boðar velgengni t við- Öskjurnar frá Oktavíu eru í öllum stærðum og gerðum, allt frá litlum skartgripaöskjum til stærri askja fyrir skjöl eöa myndir eöa hvað sem er! skiptum er sérlega vinsælt hjá Þjóðverjun- um og við vonum að það færi Oktavíu gæfu og gengi, heima jafnt sem heiman. Sonja B. Jónsdóttir vera flytur - eldri blöðin á tilboði Þessa dagana gefst einstætt tækifæri til að verða sér úti um þau VERU-blöð sem vant- ar inn í safnið, því VERA er að flytja og hefur ákveðið að fara ekki með of mikla fortíð með sér á nýja staðinn, sem verður á 3. hæð í Austurstræti 16,1 sama húsi og Reykja- víkurapótek. Þær/þeir sem vilja eignast VERU frá upphafi geta fengið 75 blöð, 1982-1994, á kostaboöi eða á aðeins kr. 4.500. Eldri árgangar til og með 1991 fást nú á kr. 500 og nýrri árgangar á kr. 1000. Sum af eldri tölublöðum VERU eru nú orðin mikiö „rarítet", uppseld eða að verða uppseld, enda er VERA mikið notuð sem heimild viö ritgerðasmíðar í framhaldsskólum og í Háskólanum. Némendur þurfa þó ekki að örvænta því VERA er til í Þjóðarbókhlöð- unni og er hver einstök grein skráð þar T gagnaskrá. Það er þó að sjálfsögðu lang- skemmtilegast að eiga VERU alla frá upphafi og við ætlum að reyna að láta þau ykkar sem koma eða hringja fýrst fá allan pakkann. Við verðum á Laugaveginum til mánaðamóta júní/júlí og nú er um að gera að drífa sig. Símar: 552-2188 og 552-6310. Heppinn áskrifandi VERA heldur áfram að safna nýjum áskrifendum og sá sem safnar tveimur nýjum áskrifendum fær sína áskrift fría T eitt ár. Heppni áskrifandinn að þessu sinni er Dóra Hlín Ingólfsdóttir, Leirutanga 17A, Mos- fellsbæ, og hún fær úttekt að upphæð kr. 4000.- hjá Atson leðurvörum, Laugavegi 15. Reykvíkingar Reglulegum fundum Borgarstjórnar Reykjavíkur sem haldnir eru 1. og 3. fimmtudag hvers mánaðar kl. 17 00 er útvarpað á 9D9T909 AÐALSTÖÐIN Skrifstofa Borgarstjóra

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.